Morgunblaðið - 15.02.2013, Side 18

Morgunblaðið - 15.02.2013, Side 18
BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Viðskiptaráð Íslands segir í nýrri skýrslu að ein leið til þess að ýta und- ir uppbyggingu innviða og stoðkerfa í atvinnulífinu sé í gegnum aukið sam- starf fyrirtækja. Dæmi um slíkt væri til að mynda samstarf um uppbygg- ingu og rekstur 4G-farsímakerfis. Samstarf af þessum toga geti haft já- kvæð áhrif á verðlag og þar með kjör neytenda. Ómar Svavarsson, for- stjóri Vodafone, hefur sagt að skyn- samlegt sé að fara í samstarf við aðra á markaðnum í uppbyggingu á slíku kerfi. „Rannsóknir McKinsey & Comp- any hafa sýnt að ná má fram allt að 30% kostnaðarhagræði af auknu samstarfi og um leið meiri gæðum kerfa – sem gagnast bæði fyrirtækj- um og neytendum,“ segir í ritinu 13 tillögur að aukinni hagkvæmni sem kynnt var á miðvikudaginn. Þar segir að samstarfið geti leitt af sér umtals- verðan efnahagslegan ábata, m.a. með auknu umfangi starfsemi, upp- bygginu þekkingar, áhættudreifingu, kostnaðarhagræði, aukinni fjárfest- ingu, auknum gæðum og fjölbreytni vara auk hraðari nýsköpunar. Samkeppniseftirlitið Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir í sam- tali við Morgunblaðið að það hafi ver- ið viðfangsefni stofnunarinnar um langa hríð hvernig megi koma á stærðarhagkvæmni á fákeppnis- markaði, en á sama tíma tryggja að samkeppni sé virk, neytendum til hagsbóta. „Við höfum afgreitt og tek- ið afstöðu til ýmissa undanþágu- beiðna frá fyrirtækjum sem óskað hafa eftir að fá að starfa saman, þrátt fyrir bann við samstarfi. Við höfum heimilað slíkt þegar við teljum það vera neytendum til hagsbóta, oft á grundvelli skilyrða,“ segir hann og nefnir tvö dæmi. Fjármálafyrirtækj- um er leyft að eiga og reka saman upplýsingatæknifyrirtækið Reikni- stofu bankanna til að sameinast um kostnað vegna tölvuþjónustu sem er nauðsynleg fjármálafyrirtækjum. Reiknistofunni voru þó sett viss skil- yrði, eins og t.d. að fyrirtækið sé rek- ið á hefðbundnum viðskiptaforsend- um, sé rekið með eðlilegri arðsemi og að þjónustan sé öllum opin. Annað dæmi er að viðskiptabankarnir fengu leyfi til að sameinast um auðkennis- lykla sem nauðsynlegir voru til að fá aðgang að netbanka. „Við veittum þessa heimild vegna þess að það er eðlilegt og skynsamlegt út frá al- mannahagsmunum að hafa þarna samstarf um sameiginlega lausn á ör- yggisatriði í netbönkum,“ segir hann. Óljós skil Skilin á milli samkeppnisforskots og grunnstoðar í rekstri geta verið óljós, að sögn Páls Gunnars. „Þetta snýst ekki bara um verðsamkeppni, heldur einnig um nýjungar, gæði, og nýbreytni.“ Hann segir að ekki megi varpa fyrir róða viðleitni til að efla samkeppni með þeim rökum að stærðarhagkvæmni sé mikilvægari. „Stærðarhagkvæmni mun ekki skila neytendum ávinningi nema sam- keppni sé virk á markaði. Ella er stærðarhagkvæmi sem hlýst af sam- starfi fyrirtækja kjörið tækifæri til að skara eld að eigin köku,“ segir hann. Í skýrslu Viðskiptaráðs segir að uppbygging margra markaða hér á landi einkennist af samþjöppun, þ.e. tiltölulega fáir stórir keppinautar keppa sín á milli. „Við fákeppni er að búast í ljósi landfræðilegrar stöðu, lítils hagkerfis og takmarkaðs mannafla hér á landi. Samspil þess- ara þátta og þörf fyrir lágmarks stærðarhagkvæmni, til að auka skil- virkni og auðvelda fyrirtækjum að stækka út fyrir landsteinana, ýtir undir slíka uppbyggingu og raunar má segja að fákeppni sé því í ein- hverjum tilvikum við hæfi. Á það einkum við markaði þar sem fyrir- tæki eru með hlutfallslega háan fast- an kostnað því þar er ábati stærðar- hagkvæmni hvað augljósastur. Með aukinni stærðarhagkvæmni má draga úr kostnaði sem aftur ætti að hafa jákvæð áhrif á verðlag og þar með kjör neytenda. Ein leið til þess er að ýta undir uppbyggingu innviða og stoðkerfa í atvinnulífinu í gegnum aukið sam- starf fyrirtækja.“ Samstarf fyrirtækja ýti undir uppbyggingu innviða  Samkeppniseftirlitið segir mikilvægt að samkeppni sé virk á markaði Samkeppniseftirlitið „Stærðarhagkvæmni mun ekki skila neytendum ávinningi nema samkeppni sé virk á markaði,“ segir Páll Gunnar Pálsson. Morgunblaðið/Eggert Minni framleiðni hér » Framleiðni í innlendri þjón- ustu er um 20% minni hér- lendis en í samanburðar- löndum, segir í skýrslu Viðskiptaráðs. » Rekja má þessa stöðu til hamlandi samkeppnis- umhverfis innlendrar þjónustu, m.a. í formi hindrana á erlendri fjárfestingu, ógagnsæis í stjórnsýslu og samkeppnis- hindrana. » Hægt er að fara í samstarf í fleiru í fjarskiptageira en 4G, t.d. í uppbyggingu nettenginga til heimila í gegn- um kopar eða ljósleiðara. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Gleymdu gamla símkerfinu, hér kemur Swyx STUTTAR FRÉTTIR ● Greiðslulausnafyrirtækið Valitor mun flytja höfuðstöðvar sínar frá Reykjavík til Hafnarfjarðar í haust. Valitor og Reit- ir fasteignafélag hafa í þessu skyni und- irritað langtíma leigusamning um rúm- lega 3.500 fm húsnæði í Dalshrauni 3 í Hafnarfirði. Um er að ræða þrjár efstu hæðirnar í nýbyggingu sem mun hýsa nýjar höfuðstöðvar Valitor hér á landi í framtíðinni. Núverandi höfuðstöðvar eru á Laugavegi 77 en auk þess rekur fyrirtækið starfsstöð í Danmörku og opnar á næstunni skrifstofu í London. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyr- irtækinu, en starfsmenn Valitor eru um 160 talsins. Valitor til Hafnarfjarðar ● Breskar ferðaskrifstofur hafa verið að skoða möguleikann á því að bjóða upp á beint leiguflug frá Bretlandi til Akureyrar næsta vetur, en um er að ræða samtals tæplega 2.000 flugsæti. Þetta kom fram í frétt á vef Vikudags í gær. Haft er eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, að skipulögð markaðs- setning sé greinilega að skila sér og að þetta geti verið fyrsta skrefið í frekari fjölgun í framtíðinni. Skoða beint flug frá Bretlandi til Akureyrar Forsvarsmenn bandarísku flug- félaganna American Airlines og US Airways hafa staðfest að félög- in muni sameinast en orðrómur hefur verið á kreiki um að þau séu á leið í eina sæng í talsverðan tíma. Í tilkynningu frá American Air- lines, móðurfélagi AMR Corp og US Airways, kemur fram að við samrunann verður til stærsta flug- félag Bandaríkjanna. Markaðsvirði þess verður um 11 milljarðar Bandaríkjadala, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. American Airlines hefur verið í gjaldþrotameðferð í rúmt ár. Sam- einað félag hefur yfir að ráða um 900 flugvélum sem sinna yfir þrjú þúsund flugleiðum. Alls starfa um 100 þúsund manns hjá félögunum tveimur í dag. AFP Sameining Eftir að félögin tvö hafa runnið saman í eitt, ræður félagið yfir 900 flugvélum, sem munu sinna yfir þrjú þúsund flugleiðum. Stór samruni staðfestur í gær  American Airlines og US Airways                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +11.2/ +,-.3, ,,.1/- ,3.,4/ ,5.,22 +31.3 +.34/ +1/.+3 +4+.31 +,-.1/ +11.12 +,-.4 ,3.530 ,3.320 ,5.353 +31./1 +.3- +1/.4+ +4+.-4 ,33./2+1 +,1.,4 ,55.2, +,1.5- ,3.+5, ,3.2+2 ,5.3/, +25.5- +.3-2 +14.,1 +4,.30 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.