Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Þrátt fyrir uppgang á evrópskum
hlutabréfamörkuðum og gengis-
styrkingu evrunnar á síðustu mán-
uðum benda hagvísar til þess að
staðan sé allt önnur og verri í raun-
hagkerfinu. Samkvæmt nýjum hag-
tölum sem birtust í gær mældist
samdráttur á evrusvæðinu á fjórða
ársfjórðungi síðasta árs 0,6% – og
hefur ekki verið meiri frá falli Lehm-
an Brothers haustið 2008. Efnahags-
samdrátturinn var talsvert meiri en
spár sérfræðinga gerðu ráð fyrir og
féll gengi evrunnar um 1% gagnvart
Bandaríkjadal í kjölfar fréttanna.
Samdráttarskeiðið á evrusvæðinu
hefur nú staðið yfir í níu mánuði.
Greinendur óttast að hátt gengi evr-
unnar, sem hefur hækkað samfellt
gagnvart flestum alþjóðlegum gjald-
miðlum síðustu sex mánuði, muni
gera það að verkum að það verður
erfitt að snúa þessari þróun við.
Það var ekki aðeins í skuldahrjáð-
ustu evruríkjunum þar sem hagkerf-
ið dróst talsvert saman á síðasta árs-
fjórðungi – á Ítalíu mældist
samdrátturinn 0,9% – heldur einnig í
kjarnaríkjum myntbandalagsins. Í
Þýskalandi mældist samdrátturinn
0,6% á meðan efnahagsumsvif í
Frakklandi drógust saman um 0,3%.
Í báðum tilfellum var um að ræða
meiri samdrátt en gert hafði verið
ráð fyrir. Minnkandi viðskiptaaf-
gangur og fjárfesting í framleiðslu-
iðnaði voru helstu orsök samdráttar í
þýska hagkerfinu.
Þær dökku hagtölur sem berast
um stöðu mála í raunhagkerfum
evruríkjanna ættu þá ekki að koma á
óvart. Á umliðnum mánuðum hafa
hagvísar sýnt minnkandi umsvif í
framleiðslugeiranum og aukna
svartsýni stjórnenda í atvinnulífinu.
Það sem vekur hins vegar ugg í
brjósti evrópskra stefnusmiða er
hversu mikill samdrátturinn reynd-
ist vera á fjórðungnum. Sumir hag-
fræðingar óttast – ekki síst í ljósi
þess að sambærilegar hagtölur, þó
ekki jafn dökkar, hafa borist frá Jap-
an, Bandaríkjunum og Bretlandi –
að framundan sé viðvarandi efna-
hagslægð í heimshagkerfinu.
Margir seðlabankastjórar hafa
einmitt viðrað áhyggjur sínar af því
á síðustu vikum um að eignaverð á
fjármálamörkuðum virðist ekki vera
í samræmi við þá þróun sem er að
eiga sér stað í heimshagkerfinu.
Mervyn King, bankastjóri Eng-
landsbanka, lét þau ummæli falla í
viðtali við Financial Times í gær að
það væri ástæða til að óttast nýja
eignabólu. Að hans viti hefur pen-
ingamálastefna helstu seðlabanka
heims – að halda vöxtum lágum og
„peningaprentun“ í formi skulda-
bréfakaupa – skapað meiri bjartsýni
á mörkuðum en efni standa til.
Kreppan dýpkar á ný
Samdráttur mældist 0,6% á evrusvæðinu á síðasta fjórð-
ungi Seðlabankastjóri varar við eignabólu á mörkuðum
AFP
Evrusvæðið Samdráttarskeiðið hefur nú varað í níu mánuði.
Aukablað alla
þriðjudaga
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
Sérfræðingar í líkamstjónarétti
Átt þú rétt á
slysabótum?
–– Meira fyrir lesendur
.
Food and Fun
verður haldin í
Reykjavík
27. febrúar
- 3. mars.
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað Food and Fun matarhátíðinni
föstudaginn 22. febrúar.
PÖNTUNARTÍMI
AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn
18. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is