Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 Efnt var til mótmæla gegn kynbundnu of- beldi í um það bil 200 löndum í gær. Mark- miðið með mótmælunum var að hvetja millj- arð manna til að rísa upp gegn kynbundnu ofbeldi og láta í ljósi stuðning við milljarð kvenna – eða þriðju hverja konu í heiminum – sem talið er að sæti barsmíðum eða nauðgunum einhvern tíma á ævinni. Fjölmenn mótmæli fóru meðal annars fram í Nýju-Delhí á Indlandi þar sem mikil reiði ríkir vegna árásar á unga konu sem beið bana eftir hrottalega hópnauðgun í strætisvagni í borginni fyrir nokkrum vik- um. Á meðal þeirra sem tóku þátt í undir- búningi mótmælanna á Indlandi er Ano- ushka Shankar, dóttir indverska sítar- leikarans Ravis Shankars. Hún sagði í myndskeiði, sem dreift var í tilefni af mót- mælunum, að hún hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi í barnæsku af fjöl- skylduvini. „Sem barn var ég beitt kynferð- islegu og tilfinningalegu ofbeldi í nokkur ár af hálfu manns, sem foreldrar mínir treystu fullkomlega,“ sagði hún. AFP Milljarður rís upp Fólk með rauðlitaða hanska tekur þátt í fjöldamótmælum gegn kynbundnu ofbeldi á torgi í Róm, Piazza di Spagna, í gær. Risu upp gegn kynbundna ofbeldinu Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistor- ius verður ákærður fyrir morð á unnustu sinni sem fannst látin á heimili hans í Pretoríu í gærmorgun, að sögn fjölmiðla í Suður-Afríku í gær. Lögreglan staðfesti að kona hefði fundist látin á heimili spretthlauparans og sagði að 26 ára karlmaður yrði ákærður fyrir morð á henni og leiddur fyrir dómara í dag. Lög- reglan nefndi hann ekki með nafni þar sem venja er að hún nafngreini ekki sakborn- inga fyrr en þeir eru ákærðir formlega fyrir rétti. Fyrstur til að hlaupa á gervifótum á Ólympíuleikum Pistorius er 26 ára og varð fyrsti fóta- lausi maðurinn til að keppa á Ólympíu- leikum. Hann hefur hlaupið á gervifótum frá stoðtækjaframleiðandanum Össuri og keppti á Ólympíuleikunum í London á liðnu ári. Fréttir um atburðinn í Pretoríu voru mjög óljósar í gær. Suðurafrískir fjölmiðlar sögðu að Pistorius hefði haldið að innbrots- þjófur væri á ferð í íbúðinni og hleypt af byssu. Talsmaður lögreglunnar neitaði þessu og sagði að áður en konan fannst lát- in hefðu „komið fram ásakanir um heimilis- erjur í húsi sakborningsins“. Lögreglan hyggst leggjast gegn því að sakborningur- inn verði látinn laus gegn tryggingu. Talsmaður lögreglunnar sagði að konan hefði orðið fyrir fjórum byssuskotum, í höf- uðið og aðra höndina. Beitt hefði verið skammbyssu sem fannst í íbúðinni. „Herra Pistorius hafði tilskilin leyfi fyrir henni,“ hafði fréttaveitan AFP eftir talsmanni lög- reglunnar. Eiginkona spretthlauparans, Reeva Steenkamp, var 29 ára og fyrirsæta. Fjöl- miðlafulltrúi hennar staðfesti að hún hefði fundist látin. Reiðarslag fyrir S-Afríkumenn Málið er reiðarslag fyrir aðdáendur Pistorius sem er meðal dáðustu íþrótta- manna Suður-Afríku og einn af þekktustu íþróttamönnum heimsins. Pistorius fæddist án kálfabeina og var ekki orðinn eins árs þegar báðir fæturnir voru teknir af honum. Hann þurfti lengi að berjast fyrir því að fá að keppa á stórmótum öðrum en þeim sem ætluð eru fyrir fatlaða. Alþjóðafrjálsíþrótta- sambandið (IAAF) samþykkti loks árið 2008 að heimila honum að keppa á stórmótunum. Hann keppti í 400 metra hlaupi á Ólympíu- leikunum í London á liðnu ári og komst þá í undanúrslit. Hann var einnig í 4x400 metra boðhlaupssveit Suður-Afríku sem komst í úrslitin. Pistorius keppti einnig á Ólympíu- móti fatlaðra í London, fékk þá tvenn gull- verðlaun og ein silfurverðlaun. Pistorius sakaður um morð  Einn dáðasti íþróttamaður heims sagður hafa myrt unnustu sína AFP Sprettharður Oscar Pistorius keppti á Ólympíuleikunum í London í ágúst. Norska öryggislögreglan (PST) kvaðst í gær vera að rannsaka hvort 27 ára maður, sem var hand- tekinn í fyrradag, hefði ætlað að gera árás á þinghúsið í Ósló eða norska þingmenn. Lögreglan handtók manninn vegna gruns um að hann hefði hót- að sprengjuárás á norska stórþing- ið í miðborg Óslóar. Áður hafði lög- reglan lokað byggingum við þinghúsið og girt svæðið af. Maðurinn sem var handtekinn er talinn tengjast hægriöfga- samtökum, Norska varnarbanda- laginu. Að sögn norskra fjölmiðla hefur maðurinn haft í frammi hatursáróður gegn íslamistum á netinu. Maðurinn var handtek- inn eftir að lögreglunni bárust upplýs- ingar frá strætis- vagnabílstjóra sem sagðist hafa heyrt í manninum vera með hótanir í far- síma. Bílstjórinn segir að maðurinn hafi m.a. hótað að gera árás á þing- húsið. Unnusta mannsins sagði hins vegar að hann hefði verið drukkinn og lýsti hótuninni sem „fyllirís- rugli“. Lögreglan fann skothelt vesti og gasvopn í íbúð mannsins. Noregur Hótun um árás á þinghúsið rannsökuð ...alveg með’etta Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.