Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
✝ SvanhildurJónsdóttir
fæddist á Seyð-
isfirði 18. október
1930. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 5. febrúar 2013.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Jón
Böðvarsson, f. 16.
mars 1887, d. 7. apr-
íl 1976 og Guðrún
Júlíanna Þorsteins-
dóttir, f. 1. júlí 1891, d. 1. apríl
1955. Svanhildur átti tvö systk-
ini. Sigurgeir Jónsson, f. 3. sept-
ember 1914, d. 3. desember 1998
og Ásdísi Jónsdóttur, f. 13. mars
1921, d. 17. maí 1996.
Svanhildur giftist 3. október
1953 eftirlifandi eiginmanni sín-
um, Bjarna Þórarinssyni, f. 5.
börn þeirra eru Anna Rún,
Bjarni og Mikael Aron. Fyrir á
Þórarinn dótturina Helgu Guð-
rúnu.
Eftir grunnskólanám á Seyð-
isfirði var Svanhildur í þrjá vetur
í Eiðaskóla og einn í Húsmæðra-
skólanum á Varmalandi.
Svanhildur og Bjarni hófu bú-
skap á Þórshöfn og voru þar í tvö
ár. Frá árinu 1955 bjuggu þau á
Suðurlandi. Í sex ár á Eyr-
arbakka, þar sem hún vann mest
á símstöðinni. Í 20 ár í Þingborg í
Hraungerðishreppi, þar var hún
handavinnukennari og ráðskona
við heimavist skólans. Næstu 20
árin bjuggu þau á Selfossi og var
hún gangavörður við barnaskól-
ann þar. Árið 2003 fluttu þau til
Reykjavíkur.
Svanhildur hafði gaman af
ferðalögum. Þau hjón fóru m.a.
til allra landa Vestur-Evrópu,
Kúbu, Rússlands og Kína.
Útför Svanhildar fer fram frá
Guðríðarkirkju í dag, 15. febrúar
2013, og hefst athöfnin klukkan
13.
október 1929. Börn
þeirra eru þrjú: 1)
Jón Rúnar, f. 9.
ágúst 1955, maki
Jóhanna Björns-
dóttir, börn þeirra
eru Elsa Þóra, maki
Gísli Elvar Hall-
dórsson og eiga þau
synina Breka Frey
og Sölva Rafn,
Svanhildur, í sam-
búð með Ólafi Tage
Bjarnasyni og eiga þau dæturnar
Hönnu Elísu og Emmu Líf og
Björn Ingi, í sambúð með Anítu
Rós Rúnarsdóttur. 2) Anna, f. 25.
september 1965, maki Birgir
Kristmannsson, synir þeirra eru
Bjarni Svanur og Ívar Nökkvi. 3)
Þórarinn, f. 2. september 1966,
maki Marý Björk Sigurðardóttir,
Ég veit ekki hvar ég á að
byrja þegar ég minnist hennar
mömmu því það er frá svo
mörgu að segja og erfitt að
koma öllu fyrir í stuttri minn-
ingargrein. Mamma var yngst
þriggja systkina og ólst upp á
Seyðisfirði. Hún talaði oft um
Seyðisfjörð því í hennar huga
var hann paradís og þar hafði
alltaf verið logn og hiti, sumar
og sól og fórum við fjölskyldan
austur á land á hverju sumri
þegar ég var lítil.
Eitt aðaláhugamál mömmu
var ferðalög og ferðuðust þau
pabbi mikið saman. Árið 1977
fóru foreldrar mínir meðal ann-
ars til Kína sem var mjög sjald-
gæft á þeim tíma. Þegar
ég var 11 ára fórum við yngri
systkinin með þeim með Smyrli
og keyrðum um Norðurlöndin
og er sú ferð mér ógleymanleg
minning. Mamma átti frændfólk
í Færeyjum og Danmörku og
voru nokkrar ferðirnar farnar
þangað.
Á Þingborg var mamma mik-
ið ein með okkur Tóta bróður
minn yfir sumartímann því
pabbi var á sjó og fór hún þá
oft með okkur í sund upp á
Skeið. Eins var oft farið á Sel-
foss að hitta Ásdísi móðursyst-
ur mína, enda voru þær systur
afskaplega góðar vinkonur.
Hún elskaði að hafa fólk í
kringum sig og átti hún margar
góðar vinkonur. Gamla stelpuk-
líkan frá Varmalandi hittist oft
og þá var mikið hlegið, sungið
og spilað. Það var eins og þær
yrðu allar 18 ára aftur þegar
þær hittust og alveg dásamlegt
að fylgjast með þeim. Þar sem
mamma var að austan og notaði
oft vinarorðið gæska eins og
tíðkaðist þar, þá kölluðu þær
hana aldrei annað en Gæskuna
sína.
Mamma hafði mikinn húmor
og sá oft spaugilegu hliðarnar á
hlutunum og þegar hún sagði
sögur lék hún oft með í leiðinni
til að gera frásögnina enn
skemmtilegri.
Hún var róttæk með sterkar
skoðanir og lét þær óspart í ljós
ef því var að skipta. Hún gat
verið beinskeytt en mikill vinur
vina sinna.
Uppáhaldsliturinn hennar
mömmu var grænn og ég
stríddi henni oft, því það var
sama hvað var, bara ef það var
grænt á litinn, þá fannst henni
það fallegt.
Eftir að Birgir maðurinn
minn fór að fara með pabba á
sjó á sumrin og strákarnir okk-
ar ennþá litlir var mamma oft
hjá mér heilu vikurnar og var
það ómetanlegur tími fyrir mig
og fyrir strákana mína að fá að
kynnast ömmu sinni.
Mamma hafði óskaplega
gaman af því að fara í leikhús
og á tónleika og þykir mér svo
vænt um að hafa náð því að
fara með henni á nokkra tón-
leika í Hörpunni og upplifa
hvað hún naut þess innilega
þrátt fyrir veikindin sín.
Undanfarin ár hafa foreldrar
mínir ásamt vinafólki sínu frá
Eskifirði farið á hverju ári til
Kanaríeyja og dvalið þar gjarn-
an 5 vikur í senn, það átti vel
við mömmu og hún naut þess
að fara í litlu íbúðina í Puerto
Rico. Við hjónin ásamt Jóni
bróður mínum og Jóhönnu
mágkonu fórum í heimsókn til
þeirra til Kanaríeyja og fann ég
þá hvað mömmu leið vel þarna
úti.
Ég hefði ekki getað eignast
betri mömmu. Hún var sú sem
ég gat alltaf leitað til ef eitt-
hvað bjátaði á, hún var alltaf til
staðar fyrir mig.
Takk fyrir allt, elsku mamma
mín.
Þín dóttir.
Anna.
Elsku amma mín, það var
alltaf gaman þegar þið afi kom-
uð til okkar upp í sumarbústað.
Ég var líka svo heppinn að
hitta þig oft því að við áttum
heima svo stutt hvort frá öðru.
Stundum fór ég með mömmu til
þín eftir að þú fórst á Eir, en
þá varstu líka orðin veik.
Ég man vel þegar ég var lítill
og var með hlaupabóluna og þú
komst til að leika við mig og
lánaðir mér gleraugun þín og
ég sá auðvitað ekki neitt með
þeim, það fannst mér skemmti-
legt og við hlógum mikið sam-
an. Ég vil trúa því að núna
sértu komin á fallegan og góðan
stað þar sem þér líður vel.
Æ, amma, hvar ertu? Æ, ansaðu
mér.
Því ég er að gráta og kalla eftir þér.
Fórstu út úr bænum eða fórstu út á
haf?
Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað?
(Höf. ók.)
Þetta ljóð samdi ég til þín
elsku amma mín:
Guð geymi
í guðs heimi
ömmu mína og
ömmu þína.
( ÍNB)
Þinn dóttursonur,
Ívar Nökkvi.
Hún var með skemmtileg-
ustu og lífsglöðustu manneskj-
um sem ég hef kynnst, litla fal-
lega, rauðhærða Svanhildur
amma mín.
Frá henni fékk ég allar
freknurnar, sem á mér, eins og
henni, spruttu fram á vorin,
töluvert fleiri á öðrum helmingi
andlitsins.
Hún reyndi einu sinni að
telja freknurnar mínar, bara í
andlitinu, en gafst upp nálægt
200. Þá var hún samt ekki
hálfnuð með „freknufésið“ mitt.
Ég man þegar við sátum
saman við eldhúsborðið í Rétt-
arholtinu, sungum lagið um litlu
fluguna, borðuðum kíví, jóla-
kökur eða nýbakað brauð, úr
sniðugu brauðvélinni sem prýð-
ir núna eldhúsbekkinn minn.
Svo voru það öll skiptin sem
ég fór að „passa“ ömmu á með-
an afi var á sjó, þá kúrðum við
saman og hún sagði mér sögur
frá því pabbi var lítill og las
fyrir mig alls konar ævintýri.
Ég man líka svo vel eftir
graslauknum sem óx við þvotta-
húsdyrnar. Ég japlaði á honum
þegar ég kom í heimsókn,
skellti mér svo í pottinn og við
ræddum um heima og geima á
meðan ég buslaði og hún naut
þess að sitja í sólinni og hlæja
svolítið með mér.
Svo kom Erna í heimsókn,
amma fór og tók á móti henni
og þær komu svo báðar út að
potti. Ég var að kafa og Erna
stökk í öllum fötunum ofan í til
að bjarga mér af því hún hélt
ég væri að drukkna. Þá stökk
ég upp og tók af mér sundgler-
augun alveg steinhissa á lát-
unum í konunni.
Amma stóð á bakkanum
rennandi blaut af skvettunum
og skellihló svo hún náði varla
andanum.
Það var líka svo gaman þeg-
ar ég kom í heimsókn og fékk
að æfa píanóhæfileikana sem
urðu þó aldrei neitt til að tala
um. Amma nennti alltaf að dun-
dast með mér í öllu svona og
alltaf voru vinir mínir velkomn-
ir með í heimsókn.
Fyrstu útlandaferðina fór ég
með ömmu, þegar við fórum
saman til Danmerkur að heim-
sækja pabba. Við sólbrunnum,
skoðuðum maura í nærmynd og
sáum strút bíta loftnet af bíl í
bíladýragarðinum. Það var allt
svo gaman með ömmu.
Nokkrum árum seinna fórum
við aftur saman til Danmerkur,
á ættarmót með frábæru fjöl-
skyldunni okkar. Við skoðuðum
Strikið fræga, borðuðum alls-
konar tegundir af spennandi
dönsku áleggi á hótelinu og
fengum stærstu jarðarber sem
ég hafði séð.
Svona gæti ég haldið enda-
laust áfram, en ég ætla að
geyma allar hinar minningarnar
í hjartanu mínu og einn góðan
dag í framtíðinni hlæjum við
amma að þeim saman.
Elsku Svanhildur amma mín.
Ég sakna þess ofsalega að
heyra ekki oftar hláturinn þinn,
eins og þegar ég sagði þér
hrakfallasögurnar af mér og
klaufsku vinum mínum.
Ég sakna þess þegar þú
hringdir, bara í gamni, til að
heyra í mér hljóðið.
Ég sakna þess hversu um-
hyggjusöm þú varst, gast alltaf
hlustað og gefið góð ráð. Og ég
sakna þess mest að geta aldrei
aftur fengið að sjá fallega glað-
lega andlitið þitt.
En elsku amma, ég veit að
það voru margir glaðir að sjá
þig þarna uppi og ég veit að þú
bíður og tekur á móti mér
seinna, með opinn faðm og
sneið af jólaköku. Ég þakka þér
svo mikið fyrir allar dýrmætu
stundirnar sem við áttum sam-
an í þessu lífi og hlakka til að
hitta þig í því næsta.
Helga Guðrún
Þórarinsdóttir.
Yndislega amma mín er nú
fallin frá og um huga minn líða
ótal minningabrot.
Réttarholtið á fallegum vor-
degi með túlípönum í fullum
blóma, pönnukökulyktin í and-
dyrinu og amma brosandi með
útbreidda arma stendur hvað
hæst.
Ég var svo heppin að afi og
amma bjuggu næstum öll mín
æskuár á Selfossi. Hafði ég því
ótal tækifæri til að njóta sam-
vista þeirra. Þegar afi var á sjó
gisti ég stundum hjá ömmu og
áttum við oftar en ekki gott
spjall ásamt því sem við bök-
uðum eða pússuðum silfur sam-
an. Í einum af þessum samræð-
um tók amma af mér loforð um
að ég skyldi bjóða henni í bíltúr
á 17 ára afmælisdeginum mín-
um og er sú bílferð mér um
margt minnisstæð. Amma ferð-
aðist mikið og hafði margar
skemmtilegar sögur að segja,
hún hafði líka mikinn áhuga á
handavinnu og tónlist. Hún var
með gróðurhús í garðinum sem
var fullt af fallegum blómum á
sumrin og hafði hún mikla
ánægju af því að hugsa um þau.
Seinna fengu þau hjónin sér
heitan pott í garðinn sem mikið
var notaður af okkur krökk-
unum.
Áfram var heppnin með mér
því að stuttu eftir að ég flutti til
Reykjavíkur lá leið afa og
ömmu einnig þangað. Vegna
þess hef ég áfram átt mörg
tækifæri til samvista við þau og
fengið ómetanleg tækifæri til
að kynna strákana mína Breka
Frey og Sölva Rafn fyrir þeim.
Amma var skemmtileg og lagði
mikið á sig til að gleðja börnin
sem voru í kringum hana á
hverjum tíma, átti alltaf eitt-
hvað gott og tók vel í leiki af
ýmsu tagi.
Hvíl í friði elsku amma, ég er
rík af minningum og innilega
þakklát fyrir þær samveru-
stundir sem við áttum.
Elsa Þóra Jónsdóttir.
Með nokkrum orðum langar
mig að minnast ömmu minnar
og alnöfnu sem hefur kvatt
þennan heim. Það sem fyrst
kemur í hugann eru þær mörgu
góðu minningar sem ég á úr
Réttarholtinu. Á mínum yngri
árum var afi oft á sjó og þá
flutti ég oft til ömmu í nokkra
daga og fékk að sofa afa megin
í rúminu, einnig færðist fjör í
leikinn þegar Inga Páls kom og
gisti. Við brölluðum ýmislegt,
t.d. bökuðum við mikið, fægðum
silfur og það var alltaf svo gam-
an að spjalla við ömmu. Amma
vildi líka meina að við tvær
værum með ýsublóð í tánum
vegna þess að okkur var alltaf
svo kalt á þeim, þess vegna
elskaði amma alltaf þegar sólin
skein og hlýtt var í veðri, og
var alveg endurnærð eftir sól-
arlandaferðirnar þeirra afa.
Amma var gangavörður í skól-
anum mínum og við urðum því
samferða í skólann á þessum
dögum sem ég átti heima í
Réttarholtinu, ég man að
krakkarnir töluðu alltaf um
hvað amma mín væri skemmti-
leg. Við eyddum mörgun stund-
um í eldhúsinu í Réttarholtinu
og alltaf var Rás 1 í útvarpinu,
þar sem við tókum reglulega
morgunleikfimi, já eða hlustuð-
um á Ragga Bjarna sem hún
hélt mikið upp á, hann kom svo
og söng eftirminnilega í 70 ára
afmælinu hennar.
Amma var dugleg að sinna
okkur barnabörnunum og á
yngri árum bauð hún okkur í
leikhús á hverju ári. Ég fékk
líka mína fyrstu sumarvinnu
hjá ömmu og afa, ég fékk að
taka við af systur minni að slá
garðinn þeirra yfir sumarið.
Hjá ömmu og afa var alltaf til
jólakaka, það klikkaði ekki, ég
fékk oft að taka þátt í bakstr-
inum, afi heldur nú þeirri hefð
áfram og gefur barnabarna-
börnunum jólaköku.
Minningarnar eru margar
þegar maður rifjar upp mitt
ferðalag með ömmu Svanhildi.
Minningarnar eru góðar og
munu aldrei gleymdast.
Elsku amma, hvíl í friði, þú
munt alltaf eiga stóran stað í
hjarta mínu.
Svanhildur Jónsdóttir
og fjölskylda.
Kæra vinkona. Komið er að
hinstu kveðjustund og gæti ég
trúað að hún hafi jafnvel verið
þér kærkomin eftir löng og erf-
ið veikindi. Ég ætla ekki að
hafa þetta langt, elsku Svan-
hildur mín, mig langar bara að
kveðja þig með nokkrum orðum
og þakka þér fyrir þær sam-
verustundir sem við áttum sam-
an, bæði heima og þegar við
lentum saman í tveggja manna
stofu á sjúkrahúsi, þá heyrðist
nú stundum tíst í okkur. Við
gátum hlegið saman að ótrúleg-
ustu uppákomum, stundum
máttum við ekki horfa hvor á
aðra, en semsagt það var ekki
alltaf leiðinlegt hjá okkur með-
an á þessari dvöl stóð. Síðast en
ekki síst þakka ég þér alla vin-
áttu og kærleika í minn garð.
Ég læt sálmaskáldið um restina
og óska þér alls hins besta í
landi ljóss og friðar. Samúðar-
kveðjur til eiginmanns, barna,
ömmubarna og allra annarra
aðstandenda og ástvina.
Guð blessi minningu þína.
Vinkonan góða, vinaskjólið hlýja,
þú varst oss bjartur geisli Drottni
frá,
af honum þáðir þrek og krafta nýja,
ef þungbær sorg á hjarta þínu lá.
Af honum þáðir þroskapundið dýra
og þrótt til dáða heil í starfagnótt.
Þín breytni sýndi sálargullið skíra
og sannan trúnað fram að dauðans
nótt.
Og Drottinn lét í friði þjón sinn fara,
nú fagnar önd þín sæl í himins rann.
Þín blíða minning – blessun vina
skara,
oss bendir þangað – Vegurinn er
Hann.
Svo helga ég þér ljóðið litla snauða,
sem laufblað falli, á gróna beðinn
þinn.
Ég þakka kynning þína allt til dauða
og þína elsku’ er tregar hugur minn.
(Sigríður Einarsdóttir, Bæ.)
Þín
Ingibjörg.
Svanhildur
Jónsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku Svanhildur.
Hjartans þakkir fyrir
allar skemmtilegu sam-
verustundirnar. Bjarna og
fjölskyldu sendum við sam-
úðarkveðjur.
Ása og Kristján.
Nú kveð ég þig elsku
langamma. Takk lang-
amma mín fyrir allar góðu
stundirnar okkar saman.
Þú varst alltaf góð og tilbú-
in að leika við mig.
Ég sakna þín mjög
mikið.
Breki Freyr.
Elsku amma, mig langar
að kveðja þig með þessu
litla ljóði.
Ég er þakklátur fyrir að
hafa fengið að kynnast þér.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þinn
Bjarni Svanur.
✝
Elskuleg eiginkona mín, systir okkar og
mágkona,
KRISTÍN M. BLOMSTERBERG AHL,
lést í Svíþjóð mánudaginn 14. janúar.
Útförin hefur farið fram.
Bengt Ahl,
Anna Lísa Blomsterberg, Hlini Pétursson,
Friðrik Blomsterberg, Alda G. Jóhannesdóttir,
Sigrún Blomsterberg,
Ellen Blomsterberg, Einar Sigurðsson.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR BJARKI RAGNARSSON,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu-
daginn 10. febrúar.
Hann verður kvaddur fimmtudaginn
21. febrúar í Fossvogskirkju kl. 15.00.
Sigríður Ólafsdóttir, Pétur Már Pétursson,
Ragnar Ólafsson, Hólmfríður Jóna Guðmundsdóttir,
Kristinn Ólafur Ólafsson, Helga Þórisdóttir,
Haraldur Ólafsson,
Helgi Ólafsson, Wanpen S. Ólafsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURRÓS KRISTJÁNSDÓTTIR,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi sunnudaginn 10. febrúar.
Útförin fer fram frá Jófríðarstaðakirkju,
Hafnarfirði, mánudaginn 18. febrúar kl. 13.00.
Kristrún Ingibjartsdóttir, Magnús Björgvinsson,
Þóroddur F.G. Jónsson
og ömmubörnin.