Morgunblaðið - 15.02.2013, Page 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
✝ Jóhanna Magn-úsdóttir fædd-
ist á Uppsölum í
Eiðaþinghá 27. júlí
1927. Hún lést á
Landakotsspítala 7.
febrúar 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Ásthildur
Jónasdóttir, f.
10.11. 1888, d. 7.12.
1968 frá Helgafelli
á Snæfellsnesi og
Magnús Jóhannsson, f. 6.12.
1887, d. 21.1. 1982 frá Innri-
Drápuhlíð á Snæfellsnesi. Jó-
hanna var ein þrettán systkina,
en hin systkinin eru: Þormóður
Helgfell, f. 1917, lést í bernsku,
Jóhann, f. 1918, Ingveldur, f.
1919, d. 2011, Þormóður, f.
1920, lést í bernsku, Matthildur,
f. 1922, Ásmundur, f. 1924, Þor-
steinn, f. 1925, d. 2000, Þórleif
Steinunn, f. 1926, d. 1983, Jónas
Helgfell, f. 12.12. 1928, d. 2012,
Ástríður og Ingibjörg, f. 1929,
létust í bernsku, og Ástráður
Helgfell, f. 1930, d. 2007.
Georg Pálsson, f. 6.11. 1897,
d. 25.8. 1983, frændi Jóhönnu og
kona hans Sesselja Hinriks-
dóttir, f. 10.9. 1897, d. 12.4. 1978
tóku Jóhönnu í fóstur fjögurra
Dagur Sverrir og María. c)
Ragnhildur Sesselja, f. 6.1. 1980,
í sambúð með Jónasi Gauta Frið-
þjófssyni. 3) Gunnar Th. Gunn-
arsson, f. 30.7. 1954, d. 10.11.
1980. Synir hans og Steinunnar
Friðgeirsdóttur, f. 10.2. 1957,
eru a) Friðgeir Örn Gunnarsson,
f. 24.7. 1975 kvæntur Írisi Dögg
Lárusdóttur. Börn: Alexandra
Ósk, Katrín Vala og Lilja (stjúp-
dóttir) b) Gunnar Magnús, f.
29.10. 1978. 4) Hinrik Gunn-
arsson, f. 12.1. 1960, kvæntur
Guðrúnu Sigurðardóttur, f.
7.10. 1956. Börn. a) Örn, f. 19.8.
1975, d. 18.3. 1994, b) Vigdís, f.
11.7. 1979, gift Markus Olsson.
Börn þeirra eru John Hinrik og
Iris. c) Jóhanna, f. 27.8. 1984, í
sambúð með Kim Persson. d)
Gunnar Theodór, f. 22.9. 1995.
Eftir komuna til Reykjavíkur
starfaði Jóhanna í nokkur ár
sem aðstoðarkona Björns Br.
Björnssonar, tannlæknis á
Hverfisgötu 14. Meðan börnin
voru ung var hún heimavinn-
andi húsmóðir. Á árunum 1967
til 1971 ráku þau Gunnar Hrað-
hreinsunina Hólmgarði 34. Jó-
hanna starfaði hjá Skrifstofu
ríkisspítalanna við skrif-
stofustörf til starfsloka. Hún var
virkur félagi í Rb.st. nr. 1 Berg-
þóru IOOF og í Gigtarfélagi Ís-
lands.
Úför Jóhönnu verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag, 15.
febrúar 2013, og hefst athöfnin
kl. 13.
ára gamla og ólst
hún upp hjá þeim á
Eskifirði frá þeim
aldri þar til Jó-
hanna flutti til
Reykjavíkur 17 ára
gömul.
Árið 1954 giftist
Jóhanna Gunnari
M. Theodórssyni,
innanhússarkitekt
og bólstrara, f.
17.7. 1920, d. 14.3.
2002. Börn Jóhönnu eru: 1) Þór-
unn Ingólfsdóttir, f. 27.8 1947,
börn hennar og fyrrv. eig-
inmanns, Stefáns Bergssonar, f.
8.3. 1947 eru a) Stefán Þór, f.
24.3. 1969 í sambúð með Jennýju
Guðmundsdóttur, og eiga þau
þrjú börn: Gabríel Þór, Önnu
Láru og Karen Lind. b) Margrét,
f. 16.3. 1973, maki Úlfar Har-
aldsson og eiga þau þrjár dætur:
Þórunni Birnu, Berglindi Hrönn
og Fanneyju. 2) Georg Heide
Gunnarsson, f. 2.1. 1950, kvænt-
ur Hildu G. Birgisdóttur, f. 6.9.
1956. Börn: a) Nanna Sigrún, f.
19.12. 1967, gift Sigurbirni
Sveinssyni og eiga þau eina
dóttur, Sól. b) Gunnhildur, f.
15.2. 1973, gift Kristjáni Óla
Sverrissyni. Börn: Elín Björk,
Tengdamóðir mín, Jóhanna
Magnúsdóttir, er látin 85 ára.
Það er lærdómsrík og krefj-
andi reynsla að fylgja annarri
manneskju síðustu sporin í þessu
lífi, standa andspænis dauðanum
og lúta í lægra haldi fyrir honum
að lokum. En ekki er hægt að
vera ósáttur þegar öldruð kona
fer yfir móðuna miklu umkringd
ástvinum sínum til hinstu stund-
ar.
Ég kynntist Jóhönnu fyrir 36
árum þegar leiðir mínar og sonar
hennar Georgs lágu saman. Það
eru tímamót í lífi ungrar konu að
eignast tengdamóður og Jó-
hanna reyndist mér góð tengda-
móðir. Síðastliðin tíu ár, eða frá
því að Gunnar Theodórsson eig-
inmaður hennar til 50 ára lést,
hafði ég meiri samskipti við Jó-
hönnu en áður og kynntist henni
betur. Hún var mörgum kostum
búin; vakandi og yfirveguð, stað-
föst og glæsileg. Hún hafði næmt
auga fyrir vönduðum og fallegum
hlutum. Og eins og venja er um
íslenskar húsmæður af þessari
kynslóð gat hún saumað, prjónað
og eldað af mikilli snilld.
Í gegnum Jóhönnu kynntist
ég mörgu góðu fólki, ekki síst
Austfirðingum og ófáar voru
ferðir okkar saman austur á
Eskifjörð og upp á Hérað, ýmist
suður eða norður fyrir landið,
allt eftir veðri og anda.
Þótt Jóhanna bæri ellina vel
hafði hún tekið sinn toll og þar
sem hún lá á dánarbeði sínum
fannst okkur hún líkjast lítilli
dúfu sem beið þess að losna og
taka flugið inn í eilífðina. Hún
skilur eftir sig tómarúm í lífi
okkar sem við fyllum upp í með
góðum minningum um Júffu,
sætu stelpuna frá Eskifirði.
Ég þakka Jóhönnu fyrir sam-
fylgdina; allar góðu stundirnar í
eldhúsinu á Klapparstígnum og í
litla kotinu okkar Ási á Eskifirði.
Ekki síður er ég henni þakklát
fyrir traustið og elskuna sem
hún sýndi mér.
Ég lýk þessum kveðjuorðum
um Jóhönnu Magnúsdóttur með
ljóði Ólafar frá Hlöðum sem end-
urómar speki Kahlils Gibran og
minnir okkur á að sorgin og sæl-
an eru óaðskiljanlegar systur
sem fylgja okkur frá vöggu til
grafar:
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
Hvíl í friði.
Hilda G. Birgisdóttir.
Ég hef verið svo lánsöm að
eiga ömmur mínar á lífi og er það
nú fyrst, á fertugs afmælisári
mínu, sem ég þarf að horfast í
augu við að missa aðra þeirra.
Ég á góðar minningar um Nönnu
ömmu frá því að ég var barn.
Gunnar afi og hún áttu einstak-
lega smekklegt og fallegt heimili
í Blönduhlíð og heimsótti ég þau
nokkuð oft og fékk að vera í
pössun. Þau sýndu mér blíðu og
natni og minnist ég þeirra sem
glaðlegs fólks. Jól og áramót
voru oft haldin í félagsskap
þeirra og standa góðar minning-
ar upp úr frá þeim tíma. Amma
og afi áttu tjaldvagn, sem í minn-
ingunni var risastór, og ferðuð-
ust þau með hann út fyrir borg-
armörkin aftan í Volvovinum í
sumarblíðunni og buðu okkur
barnabörnunum stundum með.
Við vorum einnig tíðir leikhús-
gestir Þjóðleikhússins í fylgd
þeirra.
Snyrtimennskan var í fyrir-
rúmi hjá þeim hjónum og áttu
þau að mínu mati einstakt hjóna-
band þar sem þau sinntu heim-
ilisstörfum jöfnum höndum bæði
tvö en það þótti ekki sjálfsagt hjá
þessari kynslóð. Ástin sem
Gunnar afi bar til ömmu var aug-
ljós og aðdáun hans leyndi sér
ekki. Þau voru alltaf fallega
klædd og amma var mikil dama
enda hafði hún dálæti á fallega
sniðnum flíkum úr gæðaefnum.
Þau kunnu að njóta margs sem
lífið hafði upp á að bjóða en
fengu þó sinn skerf af sorg þegar
sonur þeirra, Gunnar Theodór,
lét lífið í blóma lífsins í bílslysi í
Þýskalandi. Einnig misstu þau
barnabarn sitt Örn í hræðilegu
slysi eina júlínótt á Íslandi og
Gunnar Magnús, sonarsonur
þeirra, stríðir við erfiða fötlun.
Honum voru þau góð og sinntu
vel.
Þegar ég var í menntaskóla
útvegaði amma mér sumarvinnu
hjá skrifstofu Landspítalans þar
sem hún starfaði lengst af. Mér
fannst amma hafa skemmtilegan
húmor og hún gat hlegið dátt að
sögum sem ég sagði henni í
seinni tíð af dætrum mínum.
Hún dásamaði eiginmann minn í
samtölum okkar og tel ég hana
hafa séð í honum marga þá
mannkosti sem afi bjó yfir. Hún
upplifði djúpa sorg og einmana-
leika þegar afi dó fyrir meira en
tíu árum og síðustu ár hafa verið
henni erfið.
Notalegur friður var yfir
Nönnu ömmu þegar ég heimsótti
hana daginn áður en hún dó. Ég
veit að hún var hvíldinni fegin og
kveð ég ömmu nú með þakklæti
og frið í hjarta.
Margrét Stefánsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Nanna frænka.
Þegar ég hitti þig síðast í nóv-
ember áttum við saman yndis-
lega stund. Við vissum báðar
hvert stefndi og gátum sagt hvor
annarri hvað okkur þótti óskap-
lega vænt hvorri um aðra.
Upp í hugann koma margar
góðar minningar einkum frá
þeim tíma sem ég var heima-
gangur hjá þér og Gunnari í
Blönduhlíðinni. Eins líða seint úr
minni heimsóknir ykkar austur á
Hérað. Það var mikið öryggi í að
geta farið yfir götuna til ykkar
þegar heimþráin gerði vart við
sig eða bara til að spjalla um
heima og geima. Þá áttum við
alltaf góðar stundir og allur leiði
hvarf skjótt á braut. Þú varst
einmitt þeim hæfileikum gædd
að sjá það góða við allt og alltaf
var stutt í glettnina og grínið.
Allir bíltúrarnir sem við fórum í
og veislurnar sem ég gat aðstoð-
að þig við. Ekki þótti okkur leið-
inlegt í því stússi. Já og allar
móttökurnar sem ég og mín fjöl-
skylda fengum þegar farið var í
borgarferð. Það voru höfðingleg-
ar móttökur sem við fengum. Þú
varst alltaf til staðar með opinn
faðminn, falleg, hlý, örlát og
tilbúin að hjálpa. Fyrir þessar
góðu og dýrmætu minningar vil
ég þakka.
Ekki get ég látið hjá líða að
minnast á einstakt samband ykk-
ar pabba. Mörg og löng voru
símtölin síðustu ár, milli sam-
verustunda og heimsókna. Ég
veit að nú hafið þið hist á ný og
getið tekið upp þráðinn þar sem
frá var horfið fyrir ári. Ég trúi að
þar sé glatt á hjalla.
Þá áttum við góðar stundir
síðasta vor er þú komst í heim-
sókn austur á land. Við fórum
meðal annars á Eskifjörð. Þér
fannst gott að fá að kveðja fjörð-
inn þinn fagra og æskuslóðirnar.
Elsku Þórunn, Georg, Hinrik
og fjölskyldur. Megi góður guð
vernda ykkur og styrkja. Megi
minningin um mæta og góða
konu vera ykkur ljós og líf.
Blessuð sé minning þín
Þín bróðurdóttir,
Sigurlaug Jónasdóttir.
Elsku Nanna frænka. Nú er
þessari jarðvist þinni lokið, nýtt
ferðalag að hefjast og margs er
að minnast. Það var bara til ein
Nanna frænka og það varst þú.
Nú er rétt tæpt ár síðan pabbi dó
og það var mikill missir fyrir þig
þar sem við komum alltaf við hjá
þér reglulega í hans læknisferð-
um. Ég hugsa alltaf til þess þeg-
ar ég var að fara til Reykjavíkur
í tannlæknaferðir sem unglingur
hvað það var alltaf yndislegt að
koma til ykkar Gunnars í
Blönduhlíðina, allt gert til að
gera stoppið sem eftirminnileg-
ast fyrir sveitastúlkuna. Alltaf
var tilhlökkun hjá mér þegar von
var á ykkur austur í heimsókn.
Mér finnst yndislegt að hugsa til
þess þegar þið Gunnar komuð í
brúðkaupið okkar Grétars og þú
sagðir ýmsar sögur af mér, t.d.
þegar við vorum að labba í mið-
borginni og ég sá pylsuvagninn
og við vitum framhaldið. Börnin
mín minnast alltaf Nönnu
frænku sem einstakrar konu.
Í desember heimsótti ég þig
og þú vildir vita hvort búið væri
að fara á rjúpnaveiðar. Við kom-
umst að þeirri niðurstöðu að þú
myndir ná heilsu og fá þínar
rjúpur á jólunum. Í Reykjavík-
urferð minni í byrjun janúar
heimsótti ég þig á Landakot, fyrr
um daginn hafði ég hringt í þig
og þú spurðir mig hvort þú feng-
ir ekki að sjá mig í þessari ferð.
Það var ekki hægt að koma til
Reykjavíkur án þess að koma við
hjá þér, það var alltaf yndislegt
að hitta þig og sitja og spjalla um
heima og geima og alltaf vildir
þú fá fréttir af þínu fólki að aust-
an. Það er skrýtið að eiga ekki
eftir að heimsækja þig í næstu
borgarferð. Mig langar að biðja
þig um kveðju til pabba.
Takk fyrir allt og allt.
Blessuð sé minning þín.
Þín frænka,
Ásthildur Jónasdóttir.
Það mun hafa verið á bollu-
degi fyrir röskum áttatíu árum
að ég hitti Jóhönnu jafnöldru
mína og ævivinkonu í fyrsta sinn.
Heimskreppan var í algleymingi
og þessi skemmtilega og kot-
roskna stúlka var nýkomin ofan
af Héraði í fóstur til hjónanna
Sesselju Hinriksdóttur og
Georgs Pálssonar á Eskifirði.
Þau tóku Jóhönnu til sín til að
létta á barnmargri fjölskyldu
hennar og naut hún þess að
verða einkadóttir þeirra hjóna og
augasteinn. Mér er afar minn-
isstætt hvað mér fannst hún fal-
leg með sitt þykka og dökka hár,
og meira að segja sjálfliðað. Hin-
ar leiksystur mínar voru allar
ljóshærðar eins og ég, þannig að
hún skar sig strax úr. Það var
ekki til feimni í þessari stelpu,
hún var skrafhreifin og skemmti-
leg og með svo smitandi hlátur
að það lyfti stundinni í hæstu
hæðir.
Við fylgdumst að öll æskuárin;
fyrst í smábarnaskólanum hjá
fröken Einarínu þar sem við
lærðum að stauta og svo í barna-
skóla Eskifjarðar. Þá urðum við
fermingarsystur vorið 1941 og
áttum æ síðan hlutdeild í lífi hvor
annarrar, í gleði og sorg. Þótt
leiðir hafi skilið um stund þá
slitnaði aldrei strengurinn sem
við hnýttum ungar og uppátekta-
samar stelpur austur á Eskifirði.
Við vorum ekki alltaf á sama
máli en kæmi það fyrir að snurða
hlypi á þráðinn var drifið í að
gera gott úr því sem á milli bar.
Við vissum báðar að fyrirgefn-
ingin er besta lækningin.
Jóhanna eignaðist góðan lífs-
förunaut í Gunnari Theodórs-
syni. Hann var mikill fyrirmynd-
armaður og fjölskyldufaðir og
þau voru einstaklega falleg og
samhent hjón. Margar skemmti-
legar samverustundir átti ég
með þeim á þeirra fallega heim-
ili, fyrst í Gnoðarvogi og síðar í
Blönduhlíðinni. Einhvern veginn
finnst mér að ég hafi alltaf verið
þiggjandi í þeim félagsskap.
Jóhanna mátti svo sannarlega
reyna margt í lífinu. Sjálf barðist
hún alla tíð við mikið heilsuleysi
og það var henni þungt högg
þegar fjölskylda Gunnars Theo-
dórs sonar hennar lenti í hörmu-
legu bílslysi í Þýskalandi með
þeim afleiðingum að hann lést og
eiginkona hans og synir stórslös-
uðust. En í þessu sára mótlæti
kom best í ljós hvað vinkona mín
bjó yfir miklu sálarþreki og
hvernig hún gat gefið öðrum
styrk. Hún var alla tíð höfðingi í
lund og það lýsti sér best í trygg-
lyndi hennar og hjálpsemi, hvort
heldur var á sorgar- eða gleði-
stundum.
Ef til er einhver tilvera eftir
veru okkar hér á jörðu, þá þarf
Jóhanna vinkona mín ekki að
kvíða viðtökunum hinum megin.
Þar verður tekið fagnandi á móti
henni af Gunnurunum hennar
tveimur og öðrum ættingjum og
vinum sem á undan eru gengnir.
Vertu kært kvödd kæra vin-
kona og þakka þér alla þá tryggð
og elsku sem þú sýndir mér og
dætrum mínum um dagana.
Anna Sigurðardóttir.
Jóhanna
Magnúsdóttir
hjálpuðust þeir bræður að við
bygginguna eins og þeir höfðu
gert með okkar hús. Enda varð
það til þess að þessar tvær fjöl-
skyldur urðu sem ein. Alltaf vor-
um við saman, alla hátíðisdaga
sem og aðra, og börnin okkar
nutu góðs af því að hafa Ósk og
Helga svo nálægt sér. Eftir að
Helgi dó, á besta aldri, fylgdi Ósk
okkur eftir sem áður og enginn
var sá viðburður í fjölskyldunni
að hún væri ekki með okkur.
Margar voru ferðirnar innan-
lands og utan sem við fórum sam-
an og alltaf hélt hún uppi fjörinu
á sinn einstaka hátt. Seinni árin
varð svo til hress og skemmti-
legur ferðahópur vina og vanda-
manna sem kallaði sig Tíuna og
var Ósk þar hrókur alls fagnaðar.
Hún var alla tíð vinsæl meðal
samferðamanna sinna, því þrátt
fyrir galsaganginn var Ósk orð-
vör og hallmælti aldrei nokkrum
manni. Alltaf sá hún jákvæðar og
spaugilegar hliðar á tilverunni.
Hún hafði yndi af lestri góðra
bóka og las mikið en á seinni ár-
um dapraðist sjónin svo mikið að
hún gat ekki lengur stytt sér
stundir á þann hátt. Ósk var alla
tíð iðin við að halda hlutum til
haga og safnaði blaðaúrklippum
og tók ljósmyndir sem hún
merkti vandlega. Einnig hélt hún
alltaf dagbók og var því oft gott
að leita til hennar þegar vantaði
áreiðanleg gögn. Mér finnst ég
afar rík að hafa átt hana Ósk
mína að vinkonu í rúm sextíu ár
og fyllist þakklæti er ég hugsa til
þess hversu vel hún reyndist mér
og fjölskyldu minni alla tíð. Guð
geymi þig kæra vinkona.
Kristín Guðmundsdóttir
(Stína).
Við systurnar erum svo ótrú-
lega heppnar að hafa notið nær-
veru Óskar í lífi okkar. Frá því að
við vorum lítil börn var hún mik-
ilvægur þáttur í tilverunni. Hún
var með okkur á öllum stórum
stundum og okkur fannst við eiga
afar mikið í henni. Ósk hafði alla
tíð sérstakt lag á börnum. Þau
sóttu í félagsskap hennar og við
systurnar vorum engin undan-
tekning. Hún var algjör drauma-
leikfélagi, alltaf til í leik og spjall
og sparaði sko ekki tímann í það.
Við vissum að við gætum alltaf
platað Ósk í einhver skemmtileg-
heit og notuðum okkur það
óspart. Ferðirnar í Munaðarnes-
ið eru mjög eftirminnilegar, þar
var Ósk með í för og auðvelt að fá
hana til að taka í spil eða yatzy.
Það þótti okkur nú ekki leiðin-
legt. Við drógumst að henni eins
og aðrir því hún var sannkallaður
gleðigjafi.
Þegar við urðum stálpaðar
minnkaði aðdáun okkar á Ósk
svo sannarlega ekki. Hún var af-
ar traust og lét sig aldrei vanta
þegar eitthvað var um að vera.
Hún var ein þeirra einstaklinga
sem virðist í blóð borið að sjá
kómísku hliðarnar á lífinu. Það
var alltaf stutt í grínið og fífla-
gangurinn og uppátækin fengu
okkur sem aðra oft til að liggja í
hláturskasti. Hún var stuðbolti í
partíum fjölskyldunnar, spilaði á
munnhörpu og hélt uppi fjörinu.
Stína amma okkar og Ósk voru
miklar vinkonur og algjörir húm-
oristar báðar tvær, orðaskipti
þeirra voru oft gríðarlega fyndin
og því mikið hlegið innan um þær
stöllur. Nú þarf amma að sjá á
eftir þessari góðu vinkonu sinni
og við vitum að það er henni ekki
auðvelt, þær voru svo stór hluti
af lífi hvor annarrar.
Það er erfitt að koma í orð allri
þeirri væntumþykju og þeim til-
finningum sem við berum til Ósk-
ar. Hún var algjörlega einstök og
svo stór hluti af lífi okkar. Við
hefðum viljað fá að hafa hana hjá
okkur alltaf og finnst svo erfitt að
kveðja hana en við ætlum að trúa
því að við fáum að sjá hana aftur
á fallegum stað. Takk fyrir allt
elsku Ósk, við eigum eftir að
sakna þín óendanlega mikið.
Þínar
Lilja, Kristín og Sigrún.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
HERBORG LAUFEY HAUGEN
(f. ÓLAFSDÓTTIR),
Ljósheimum 22,
lést þriðjudaginn 12. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Anni G. Haugen, Margrét Arnljótsdóttir,
Halla S. Margrétardóttir Haugen, Jón Hjörtur Þrastarson
og barnabarnabörn.
✝
Elsku bróðir okkar og frændi,
JÓHANNES GÍSLI OLGEIRSSON,
Fellsenda,
Búðardal,
lést miðvikudaginn 6. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Kolbrún Olgeirsdóttir.