Morgunblaðið - 15.02.2013, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
Fertugasti afmælisdagur Halldóru Árnýjar Skúladóttur fer aðmiklu leyti í að undirbúa stóra afmælisveislu sem hún hyggsthalda á morgun. „Þetta verður 50-60 manna veisla. Ég mun
bjóða upp á pinnamat og tilheyrandi. Síðan kemur plötusnúður og í
kjölfarið verður dansað fram á nótt,“ segir Halldóra sem býr í Hafn-
arfirði. Hún segist hafa gaman af því að skipuleggja og halda veislur
þó þær þurfi ekki alltaf að tengjast afmælum. Hún nefnir t.d. eftir-
minnilegt búningapartí sem hún hélt í tilefni af 35 ára afmæli sínu.
Halldóra er mikil áhugamanneskja um líkamsrækt og er m.a.
dreifingaraðili á Herbalife-vörum. Hún kann virkilega vel við starf-
ið. „Þetta er náttúrlega mitt áhugamál í leiðinni. Við köllum okkur
lífsstílsleiðbeinendur. Við hjálpum fólki að laga lífsstílinn,“ segir
Halldóra og tekur fram að það sé einkar gefandi að sjá fólk upp-
skera laun erfiðsins eftir mikla vinnu. Sjálf reynir Halldóra að
stunda líkamsrækt á hverjum degi. Hún er með líkamsrækt-
araðstöðu heima þar sem hún hjólar og boxar svo eitthvað sé nefnt.
Halldóra á stóra fjölskyldu, eiginmann og fjórar dætur á aldrinum
12-20 ára. Hún segir fjölskylduna hafa náð að tileinka sér heil-
brigðan lífsstíl. Dæturnar stundi íþróttir og fari í ræktina þess á
milli. Fjölskyldan reyni að borða mat í hollari kantinum, hreyfa sig
og tileinka sér jákvætt hugarfar. heimirs@mbl.is
Halldóra Árný Skúladóttir 40 ára
Fjör Halldóra Árný ætlar að bjóða vinum og vandamönnum í stærð-
arinnar veislu á morgun, þar sem dansað verður langt fram á nótt.
Reynir að hreyfa
sig á hverjum degi
A
rnþór fæddist á Skjald-
þingsstöðum í Vopna-
firði en missti foreldra
sína kornungur og ólst
því upp á Hauksstöðum
hjá hjónunum Sigurbjörgu Sig-
urbjörnsdóttur og Friðbirni Krist-
jánssyni. Hann stundaði nám við
Bændaskólann á Hólum 1951-53 og
stundaði síðan ýmis störf í Reykjavík
og Danmörku til 1956 er hann hóf
störf hjá lögreglunni í Reykjavík.
Arnþór starfaði við allar deildir
lögreglunnar, var fyrst í götulögregl-
unni, síðan í þjóðvegaeftirliti, þá
varðstjóri í umferðardeild, yfirmaður
fjarskipta lögreglunnar, aðalvarð-
stjóri vaktar, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn og yfirlögregluþjónn frá
1991-97 er hann hætti störfum hjá
lögreglunni eftir að hafa starfað þar í
fjörutíu og eitt ár.
Arnþór gerðist þá meðhjálpari og
Arnþór Ingólfsson, fyrrv. yfirlögregluþjónn – 80 ára
Langafabarn Ísabella Líf Steinarsdóttir skemmtir sér konunglega hjá langafa og langömmu, Arnþóri og Jóhönnu.
Við löggæslu í 41 ár
Fyrir 40 árum Arnþór við lögreglubíl þar sem Seðlabankinn stendur nú.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hjónin Hilmar Guðbrandsson og
Bjarney Guðjónsdóttir eru áttræð
um þessar mundir. Hilmar varð
áttræður 16. janúar síðastliðinn
og Bjarney verður áttræð 28.
febrúar næstkomandi. Í tilefni
þess munu þau taka á móti ætt-
ingjum og vinum á morgun, 16.
febrúar frá kl. 17- 20, í Salnum á 7.
hæð í Firðinum, Fjarðargötu 13-15
í Hafnarfirði.
Árnað heilla
80 ára
Vestmannaeyjar María Sigrún fædd-
ist 21. maí. Hún vó 3.975 g og var 51
cm löng. Foreldrar hennar eru Helga
Sigrún Þórsdóttir og Jónas Guðbjörn
Jónsson.
Nýir borgarar
Reyðarfjörður Rúnar fæddist 16. maí
kl. 15.20. Hann vó 3.810 g og var 54
cm á lengd. Foreldrar hans eru Re-
bekka Rán Egilsdóttir og Sigurjón
Rúnarsson.
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI