Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 43
kirkjuvörður við Bústaðakirkju og starfaði þar fram á sumarið 2002 er hann lét af störfum. Arnþór sat um skeið í stjórn Lög- reglufélags Reykjavíkur, hefur setið í stjórn Lögreglukórs Reykjavíkur, sat í sóknarnefnd Digranessóknar, Umferðarnefnd Kópavogsbæjar og var um skeið formaður Vopnfirðinga- félagsins í Reykjavík og sat í stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs. Arnþór hefur verið sæmdur fjölda orða frá erlendum þjóðhöfðingjum. Smaragðsbrúðkaup í dag Arnþór og eiginkona hans, Jó- hanna Maggý eiga 55 ára brúðkaups- afmæli í dag. Þau hittust í Ólafsvík þar sem hún starfaði þá í kaupfélag- inu en hann var nýkominn í plássið sem fyrsti lögregluþjónn staðarins: „Það varð auðvitað uppi fótur og fit. Allir vildu sjá þennan unga lög- regluþjón sem þarna var mættur í öllum skrúða,“ segir Jóhanna. „Ég sá hann svo þarna niðri við „Brú“. Hann var nú ansi myndarlegur í júníform- inu en ég veit ekki hvort hann tók nokkuð eftir mér þarna. Hann var nú svolítið feiminn á þessum árum en það kom nú ekki í veg fyrir að við kynntumst betur.“ Söngmaður og lestrarhestur Arnþór er mikill söngmaður. Hann hefur alla tíð haft gaman af góðum sönglögum og samsöng af öllu tagi. Hann söng með Lögreglukórnum nánast allan sinn starfsferil þar og söng auk þess með kór Frímúr- arareglunnar um skeið. Þá er hann sílesandi, les nánast allt milli himins og jarðar en er þó sérstaklega hrifinn af góðum ævisög- um. Fjölskylda Arnþór kvæntist 15.2. 1958 Jó- hönnu Maggýju Jóhannesdóttur, f. 28.5. 1931, húsfreyju. Hún er dóttir Jóhannesar J. Alberts lögregluþjóns og Kristínar Sigmundsdóttur hús- freyju sem búsett voru í Vest- mannaeyjum. Börn Arnþórs og Jóhönnu eru Kristín Arnþórsdóttir, f. 4.10. 1950, skrifstofumaður, búsett í Reykjavík, og á hún þrjú börn og sex barnabörn; Sigurgeir Arnþórsson, f. 14.10. 1957, aðalvarðstjóri á stjórnstöð lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, búsett- ur í Kópavogi, kvæntur Ásdísi Gígju Halldórsdóttur og eiga þau tvö börn; Friðbjörg Arnþórsdóttir, f. 5.10.1961, fyrrv. skjalavörður, búsett í Kópavogi, gift Guðmundi Þór Sig- urbjörnssyni verktaka og á hún tvö börn og fimm barnabörn; Margrét Arnþórsdóttir, f. 6.1. 1964, djassball- ettkennari og veitingastjóri, búsett í Reykjavík, í sambúð með Hinrik Ol- sen sölumanni og á hún þrjú börn; Elín Inga Arnþórsdóttir, f. 10.11. 1966, starfsmaður hjá Þjóðskrá, bú- sett í Mosfellsbæ, gift Benedikt Pétri Guðbrandssyni, starfsmanni við ál- verið í Straumsvík, og eiga þau þrjú börn. Arnþór átti níu systkini en á nú tvær systur á lífi. Auk þess eina upp- eldissystur á lífi. Foreldrar Arnþórs voru hjónin Ingólfur Eyjólfsson, f. 18.10. 1877, d. 4.9. 1938, bóndi á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, og Elín Salína Sigfús- dóttir, f. 10.11. 1889, d. 27.7. 1934, húsfreyja sama stað. Arnþór heldur upp á daginn í faðmi fjölskyldunnar. Úr frændgarði Arnþórs Ingólfssonar Arnþór Ingólfsson yfirlögregluþjónn Anna Jónsdóttir Talinn vera Björn Hannesson b. á Hnitbjörgum Guðrún „Hansdóttir“ húsfr. á Einarsstöðum Sigfús Jónsson b. á Einarsstöðum í Vopnafirði Elín Salína Sigfúsdóttir húsfr. á Skjaldþingsstöðum Sigríður Sigurðardóttir frá Lýtingsstöðum Jón Jónsson b. frá Hjarðarhaga Guðrún Ingólfsdóttir húsfr. á Höfn í Hornafirði Halldór Ásgrímsson, fyrrv. forsætis- ráðherra Pétur Jóhannesson b. í Hraungerði í Aðaldal Sesselja Pétursdóttir húsfr. í Fagraneskoti Eyjólfur Guðmundsson b. í Fagraneskoti og Fagradal á Fjöllum Ingólfur Eyjólfsson b. á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði Anna Sæmundsdóttir húsfr. í Fagranesi Guðmundur Björnsson b. í Fagranesi í Aðaldal Yfirlögregluþjónninn Arnþór Ing- ólfsson í fullum skrúða. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 Guðrún Stefánsdóttir lyfjafræðingur, sérfræðingur í lyfjagát hjá Astellas Pharma Global Development (APGD) í Evrópu, hefur varið doktorsritgerð sína í lyfjafaraldsfræði við Háskólann í Utrecht í Hollandi. Vörnin fór fram hinn 5. desember síðastliðinn í að- albyggingu Háskólans í Utrecht. Titill ritgerðarinnar er „Innovations in Post- Marketing Safety Research“ en í rann- sókn sinni leitaðist Guðrún við að finna nýjar lausnir á sviði lyfjagátar. Rannsóknin var hluti af Escher-verk- efninu sem kennt er við hollenska myndlistarmanninn M.C. Escher. Til- gangur verkefnisins var að auðvelda nýjum lyfjum aðgengi að markaði, meðal annars með því að skoða nýja möguleika í hönnun klínískra rann- sókna og bæta skráningarferla án þess þó að slaka á kröfum um öryggi lyfja. Guðrún rannsakaði hvernig upplýs- ingar eru meðhöndlaðar eftir að lyf kemur á markað og hvort upplýsingar um lyf í sama lyfjaflokki séu sambæri- legar. Hún skoðaði hvernig upplýs- ingar úr klínískum rannsóknum eru notaðar þegar grunur leikur á að ör- yggi lyfs sé ábótavant og hvernig bæta megi faraldsfræðilegar rannsóknir sem byggjast á gögnum úr klínískum rannsóknum sem hannaðar voru með önnur markmið í huga. Við fram- kvæmd þess hluta rannsóknarinnar var Guðrún í samstarfi við ADVANCE- hópinn við George Institute í Háskól- anum í Sydney, Ástralíu sem fram- kvæmdi stóra alþjóðlega rannsókn til að skoða áhrif mismunandi sykursýk- ismeðferða á hjarta- og æðasjúkdóma. Lokakafli ritgerðarinnar fjallar um hvort hægt sé að bæta eftirlit með lyfjum með tölfræðilíkani sem sam- einar upplýsingar úr klínískum rann- sóknum og faraldsfræðirannsóknum. Í rannsókn sinni komst Guðrún að því að með þessu móti megi auðveldlega auka styrk rannsóknarinnar auk þess sem hægt er að vinna með upplýs- ingar úr stærra og fjölbreyttara þýði en hægt er að taka inn í klínískar rann- sóknir. Þannig er mögulegt að bæta og flýta fyrir mati á öryggi lyfja.  Guðrún fæddist í Reykjavík árið 1983. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 2002, M.Sc-gráðu í lyfjafræði frá HÍ árið 2008 og M.Sc-gráðu í lyfjafaraldsfræði við Háskólann í Utrecht árið 2011. Foreldrar Guð- rúnar eru Stefán S. Guðjónsson forstjóri og Helga Ottósdóttir hjúkrunarfræð- ingur. Doktor Doktor í lyfjafaraldsfræði 85 ára Guðmundur Hermanníusson Karl Kristinsson Pálína Guðmundsdóttir 80 ára Edda Ingibjörg Margeirsdóttir 75 ára Bergljót Halldórsdóttir Ólafur Einar Júníusson Stefán Örn Stefánsson Sveinn Vilhjálmsson 70 ára Bjarni Ólafsson Emma María Krammer Jónatan Jóhann Stefánsson 60 ára Áslaug Ingibjörg Skúladóttir Gróa Guðbjörg Ágústsdóttir Guðmundur M. Björnsson Gunnhildur Tryggvadóttir Ian Wilkinson Ragnhildur Jóna Björnsdóttir Þorgerður Einarsdóttir Þóra Eygló Sigurðardóttir 50 ára Guðmundur Gíslason Hallur Eiríksson Helga Kristín Ðiep Nguyen Hermann Björnsson Jiamrat Thimla-Or Stefán Hrafn Stefánsson Vignir Svavarsson 40 ára Arunas Kacinskas Ágústa Birgisdóttir Ásta Hjördís Valdimarsdóttir Ester Daníelsd Van Gooswilligen Gregory Kruk Guðrún Halla Jónsdóttir Gunnhildur H. Georgsdóttir Halldóra Árný Skúladóttir Jórunn Ósk Ólafsdóttir Kjartan Pálmason Linda Sólveigard. Guðmundsdóttir Matthías Guðni Jónsson Steinn Kári Ragnarsson Sveinn Atli Gunnarsson 30 ára Helga Kristín Bjarnadóttir Hörður Einar Einarsson Snorri Marteinsson Stefán Karl Sævarsson Til hamingju með daginn 30 ára Þórdís ólst upp í Reykjavík, lauk kenn- araprófi frá Mennta- vísindasviði HÍ og kennir nú við Grunnskóla Horna- fjarðar. Maki: Guðjón Björnsson, f. 1982, sjómaður á Höfn. Sonur: Garpur Guð- jónsson, f. 2012. Foreldrar: Sólrún Guð- jónsdóttir, f. 1954, snyrti- fræðingur og sjúkraliði, og Þór Benediktsson, f. 1945, bílstjóri. Þórdís Þórsdóttir 40 ára Svava ólst upp í Hafnarfirði en er búsett í Vogum. Hún er nú þjón- ustufulltrúi hjá bæj- arfélaginu í Vogum. Maki: Vilhjálmur Agnar Erlendsson, f. 1967, starfsmaður við Alcoa. Börn: Þengill Þór, f. 1994; Gabríel Gísli, f. 1997, og Diljá Dögg, f. 2005. Foreldrar: Sigmundur Heiðar, Magnússon, f. 1954, og Birgitta Helga- dóttir, f. 1952. Svava Sigmundsdóttir 40 ára Valgeir ólst upp á Akranesi, lauk vélvirkja- prófi frá FVA og er vélvirki hjá Vélasölunni. Maki: Stefanía Marta Kat- arínusardóttir, f. 1978, skólastjóri Elite Fashion Academy. Dætur: Þórdís Líf, f. 1999, og Gabríela Mist, f. 2010. Foreldrar: Guðjón Val- geirsson, f. 1950, vél- stjóri, og Ólína Lúðvíks- dóttir, f. 1949, húsfreyja. Valgeir Þór Guðjónsson Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Lífshlaupið Allir sem mæta í kynningartíma fá viku passa í Veggsport. Verið í sambandi og pantið tíma hjá hilmar@veggsport.is Bjóðum starfsmannahópum (ca 10-20 manns) í kynningartíma Lífshlaupið stendur yfir frá 6. - 26. febrúar 2013 Ketilbjöllutími3 Spinningtími3 Skvasstími3 Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.