Morgunblaðið - 15.02.2013, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt á hættu að verða fyrir
barðinu á manneskju sem á mjög erfitt um
þessar mundir. Nútíðin er fjári fín að þínu
mati.
20. apríl - 20. maí
Naut Allt virðist leika í höndunum á þér og
þú nýtur aðdáunar annarra. Gættu þín í
öllu sem snýr að fjármálum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Öllu gríni fylgir einhver alvara svo
þú skalt gæta orða þinna og hafa aðgát í
nærveru sálar. Losaðu þig við kæk sem þú
hefur haft frá barnæsku.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur alltaf verið gefin/n fyrir
það óvenjulega og þess vegna ætti dag-
urinn í dag að verða þér til ánægju. Gættu
þess að ofmetnast ekki þegar vel gengur
því dramb er falli næst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það eru ýmsar nýjungar að banka
upp á hjá þér og þér finnst erfitt að sinna
þeim öllum í einu. Gakktu samt ekki fram
af þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Leitaðu eftir hverju tækifæri til að
gjalda góðmennsku sem þér hefur verið
sýnd. Getur verið að þú sért ástfangin/n?
23. sept. - 22. okt.
Vog Greindu þig frá öðrum með því að
koma með yfirlýsingu sem sker sig úr. Ef
þitt hlutverk er að slökkva elda núna þá er
næsti mánuður tilvalinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert að því að láta
tilfinningar sínar í ljósi ef það er gert á við-
eigandi máta. Kláraðu allt sem er fyrirliggj-
andi. Einhver vill þér vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að sjá til þess að fjöl-
skyldan deili ábyrgðinni, en þú sitjir ekki
uppi með allan höfuðverkinn. Taktu frá
nokkra klukkutíma fyrir þig og sinntu
hugðarefnum þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur búist við miklu álagi í
starfi í dag. Einhver sem áður var hægt að
leita til er ekki jafnoft til reiðu og áður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt fjármálin séu þér ofarlega í
huga skaltu ekki láta þau ná svo miklum
tökum á þér að þú hafir ekkert annað að
tala um. Sumir krefjast meira af þér en þér
er fært og þú hleður varnarvegg.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú mátt ekki halda svo aftur af þér
að þér verði ekkert úr verki. Ef maður upp-
lifir þægindi, frið eða lausn á maður bara
að halda sínu striki.
Skáldið Muhammad ibn al-Dheeb al-Ajami var dæmdur í
lífstíðarfangelsi í lok nóvember
fyrir að móðga emírinn af Katar
og hvetja til byltingar – í ljóði.
Þorgeir Tryggvason orti af því
tilefni:
Meinar skáldum mest að tjá
á mannréttindum gatar,
þrífist aldrei auli sá
emírinn af Katar.
Páll Ásgeir Ásgeirsson lagði
orð í belg:
Liggur bak við lás og slá
lepur tár og horið.
Orti um það sem ekki má
arabíska vorið.
Þá Gísli Ásgeirsson:
Fyrir austan ekki má
yrkja um svona kalla
Oní mógröf emír sá
ætti helst að falla.
Að lokum bætti Þorgeir við:
Ljóðið það að lokum til
lesendanna ratar.
Engu breytir um það spil
emírinn af Katar.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrk-
ir um helstu frétt stórblaða Evr-
ópu um þessar mundir:
Í blöðunum koma Findus-fréttir
– þar framleiddir eru úr kjöti réttir –
í næstum því fullum níu dálkum:
Nautakjöt þeirra er ekki af jálkum.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir,
Fía á Sandi, segir menn vera
ósköp „vandætna“ að gera veður
út af þessu:
Margir virðast matvandir
margir sloj á taugum.
Oft hef ég hrossin etið fyr
einkanlega á Laugum.
Af þeim þrifust börnin best
best að ég fari að kaupa hest.
Ingólfur Ómar Ármannsson
yrkir um þann mæta hagyrðing,
Óttar Einarsson, sem fallinn er
frá:
Ljóðahörpu lempinn sló
lofgerð honum færi;
vísan góða gleði og fró,
gaf þér vinur kæri.
Og hann hendir inn hring-
hendu:
Brunar skeið um bólginn sjá
bylgjur freyða stríðar,
ávallt seiðir sjómenn þá
sjávarleiðir víðar.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af Findus, ljóðahörpu
og emírnum af Katar
Ég er ljós í heiminn komið svo að eng-
inn, sem á mig trúir, sé áfram í
myrkri. (Jóhannesarguðspjall 12:46)
Í klípu
„BÍDDU, EF ÞÚ VEIST SVARIÐ, AF HVERJU
ERTU ÞÁ AÐ SPYRJA MIG?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ER REYNDAR EKKI SVONA FÆR Í
STARFIÐ. FERILSKRÁIN MÍN ER BULL OG
VITLEYSA!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... er að leyfa
einhverjum að koma
aftur í líf þitt.
ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ
KOMA MEÐ FISK Í
MATINN! ÉG GERÐI
ÞAÐ!
HVALUR ER
SPENDÝR, EKKI
FISKUR!
FLEST DÝR
GERA EKKI DYRA-
AT OG HLAUPA
Í BURTU!
EN, HALLÓ!
EF ÞÚ LABBAR,
ÞÁ VERÐUÐRU
GRIPINN!
STARFSMANNAHALD
KOMUR
SKRÍPÓ
Ekki alls fyrir löngu greindi maðurfrá því á bloggsíðu sinni að hann
hefði átt fótum fjör að launa þegar
rottweiler-hundur kom hlaupandi að
honum og stökk upp á hann til að ná
í hund sem hann hafði gripið í fangið
til að forða honum frá stóra hund-
inum sem „gekk laus og valsaði um
eins og hann ætti Laugaveginn“,
eins og bloggarinn orðaði það.
x x x
Í samþykkt um hundahald frá 2002með síðari breytingum 2005 og
2007 segir meðal annars í 14. grein:
„Óheimilt er að fara með hunda um
Bankastræti, Laugaveg að Rauð-
arárstíg, Lækjartorg, Austurstræti,
Aðalstræti og Ingólfstorg.“
Í samþykkt um hundahald frá því
í maí í fyrra er þessa setningu ekki
að finna, en varla er hægt að ætlast
til þess að laus rottweiler-hundur
geri sér grein fyrir breytingunni.
x x x
Maðurinn með hundinn slapp meðskrekkinn en málið er í raun
grafalvarlegt. 14. grein um hunda-
hald hljóðar svo:
„Taumskylda er í öllu borgarland-
inu nema annað sé tekið fram og
skal umráðaaðili hunds virða hana.
Heimilt er að vera með hunda í
taumi á göngustígum borgarinnar, í
almenningsgörðum, í Heiðmörk,
nema á brunnsvæðum, á hesthúsa-
svæðum í Víðidal og á Víðivöllum og
ávallt í fylgd ábyrgs aðila.
Óheimilt er að fara með hunda á
almennar samkomur, á útivistar-
svæðin utan göngustíga í Heiðmörk
og Öskjuhlíð á varptíma fugla (1. maí
til 15. ágúst), í hólmana í Elliðaárdal,
bakka Elliðaánna um laxveiðitíma
við merkta veiðistaði (1. júní til 15.
október) og í Nauthólsvík.“
x x x
Skítlogandi hræddur hundamað-urinn hafði samband við lögregl-
una og komst að því að Reykjavík-
urborg sér um að fanga lausa hunda
á milli klukkan átta og 16 á virkum
dögum. Óbeint er sagt að ætli menn
eða hundar að brjóta lögin sé ráðlagt
að gera það utan þess tíma. Öðrum
ráðlagt að halda sig innandyra á
sama hundatíma vilji þeir losna við
ónæði af lausum hundum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Bæjarlind 16 Kópavogur Sími 553 7100 www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16
Hönnun: Jahn Aamodt
Stóll + skemill kr. 381.400
Tímalaus skandinavísk hönnun þar sem hreinar línur, gæði og þægindi haldast í hendur. Stillanlegt bak og
hnakkapúði sem tryggja hámarks þægindi. Fáanlegur í hnotu, eik eða svartbæsaður. Frábært úrval af leðri
og áklæðum í boði.
TIMEOUT