Morgunblaðið - 15.02.2013, Síða 49

Morgunblaðið - 15.02.2013, Síða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 Cannibal Holocaust Kvikmyndin Cannibal Holocaust verður sýnd í Bíó Paradís á sunnudaginn á vegum kvikmynda- klúbbsins Svartra sunnudaga sem sýnir í febrúar myndir sem hafa verið og eru jafnvel enn bann- aðar í ýmsum löndum. Í myndinni segir af kvik- myndagerðarmönnum sem halda til Suður- Ameríku í þeim tilgangi að gera heimildarmynd um ættbálka í frumskóginum. Þeir skila sér ekki heim og er þá farið að leita þeirra. Það eina sem Warm Bodies Uppvakningurinn R veit ekki hvað varð til þess að hann varð lifandi dauður og kann illa við það ástand, vildi heldur vera endanlega dauður. Hann hittir fyrir fagra stúlku og í stað þess að ráðast á hana og rífa hana í sig, að hætti upp- vakninga, lifnar hann við, þ.e. hjarta hans tekur að slá á ný. Hann tekur stúlkuna undir sinn verndarvæng og upphefst þá allsérstök ást- arsaga. Leikstjóri myndarinnar er Jonathan Levine og með aðalhlutverk fara Nicholas Hoult, Teresa Palmer, John Malkovich, Dave Franco, Anna- leigh Tipton og Rob Corddry. Rotten Tomatoes: 78% Öskubuska í villta vestrinu Teiknimynd sem heitir á frummálinu Cendrillon au Far West. Í henni segir af kúrekastelpu sem vinnur nótt sem dag fyrir illgjarna stjúpmóður sína og stjúpsystur, líkt og í ævintýrinu um Ösku- busku, í landamærabæ einum í miðri eyðimörk villta vestursins. Þegar hertogaynju er rænt af bófaflokki freistar Öskubuska þess að bjarga henni og að endurheimta tönn sem hún missti á dansleik og í kjölfarið að heilla prins nokkurn. Leikstjóri er Pascal Hérolt. Beyond the Hills Kvikmynd eftir rúmenska leikstjórann Cristian Mungio sem á m.a. að baki verðlaunamyndina 4 Months, 3 Weeks and 2 Days. Hér segir af tveim- ur ungum konum, Alinu og Voichitu, sem ólust upp saman á munaðarleysingjahæli í Rúmeníu og hittast á ný á fullorðinsárum. Voichita er orðin nunna og Alina vill að hún yfirgefi klaustrið og fari með henni til Þýskalands. Voichita er ekki á því og upphefst þá skelfileg atburðarás. Myndin hlaut m.a. tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra, fyrir besta handrit og bestu leik- konu í aðalhlutverki. Með aðalhlutverk fara Cosmina Stratan og Cristina Flutur. Rotten Tomatoes: 73% finnst eru filmubútar og hafa þeir að geyma afar óhugnanlegt myndefni. Cannibal Holocaust var bönnuð víða um heim, bæði vegna þess að hún þótti ansi ofbeldisfull, en þó aðallega vegna þess orðróms sem spurðist út um að kona hefði verið myrt í raun og veru fyrir framan myndavél- arnar, eins og segir á vef Bíó Paradísar. Enginn fótur reyndist fyrir því. Leikstjóri myndarinnar er Ruggero Deodato og í aðalhlutverkum Robert Kerman, Francesca Ciardi og Perry Pirkanen. Rotten Tomatoes: 60% Bíófrumsýningar Uppvakningar, Öskubuska, átök í klaustri og mannætumartröð Lifandi Uppvakningurinn R og stúlkan sem hann elskar í Warm Bodies. Ástin fær hjarta R til að slá á ný. Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn og -leikarinn Eli Roth hefur end- urgert hina margfrægu hryllings- mynd Cannibal Holocaust, frá árinu 1980 sem vill svo til að sýnd verður í Bíó Paradís á sunnudaginn (sjá umfjöllun hér til hliðar). Mynd Roth mun bera titilinn The Green Inferno sem ku vera upphaf- legur titill framhaldsmyndar Cannibal Holocaust, Cannibal Holo- caust 2. Roth er staddur á kvik- myndahátíðinni í Berlín og kynnti þar myndina með því að veita fjöl- miðlum aðgang að stillum úr henni. Í endurgerð Roth segir af hópi ungra mannfræðinema sem komast í kynni við ættbálk nokkurn í frum- skógum Suður-Ameríku og reynist hann heldur óvinveittur ferða- mönnunum og er þá vægt til orða tekið. Fleiri leikstjórar hafa tekið upp á því að endurgera sígildar hryllings- myndir í Bandaríkjunum hin síð- ustu ár og má þar nefna leikstjór- ann Fede Alvarez sem endurgerði hrollvekju Sam Raimis, The Evil Dead frá árinu 1981. Hryllingur Stilla úr The Green Inferno sem er endurgerð Cannibal Holocaust. Roth endurgerir sígilda hrollvekju -VARIETY  -HOLLYWOOD REPORTER  EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP WARM BODIES KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 WARM BODIES VIP KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 ÖSKUBUSKA Í VILLTA VESTRINU ÍSLTAL KL. 4 - 6 HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8 (10:10 3DÓTEXTUÐ) BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10:20 PARKER KL. 8 - 10:30 GANGSTER SQUAD KL. 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 5:40 - 8 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 3:40 - 5:50 WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 3:40 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 3:40 KRINGLUNNI WARM BODIES KL 5:50 - 8 - 10:20 ÖSKUBUSKAÍVILLTAVESTRINU ÍSLTAL KL. 6 HANSEL AND GRETEL KL. 8- 10:10 BULLET TO THE HEAD KL. 10:30 GANGSTER SQUAD KL. 8 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 AGOODDAYTODIEHARD KL. 5:50 - 8 - 10:10 WARM BODIES KL. 5:50 - 8 - 10:10 BULLET TO THE HEAD KL. 5:50 - 10:30 PARKER KL. 8 - 10:30 GANGSTER SQUAD KL. 8 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK WARM BODIES KL. 8 A GOOD DAY TO DIE HARD KL. 10:10 BULLET TO THE HEAD KL. 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 8 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 6 ÖSKUBUSKA Í VILLTA VESTRINU ÍSLTAL KL. 6 AKUREYRI WARMBODIES KL.6-8 ÖSKUBUSKAÍVILLTAVESTRINU ÍSLTAL KL. 6 HANSEL AND GRETEL KL. 10:10 BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10 ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ JEREMY RENNER Í AÐALHLUTVERKI NAOMI WATTS TILNEFNDTIL ÓSKARSVERÐLAUNA MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ -NY OBSERVER -ZOO  700.KR NÝTTÚTLITÁKLASSÍSKUÆVINTÝRI Í VILLTA VESTRINU ÖSKUBUSKAEMPIRE EIN FRUMLEGASTA GAMANMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ FÓRBEINT ÁTOPPINN ÍUSA Skechers GOwalk fisléttir og sveigjanlegir GO Like Never Before Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi Blómsturvellir, Hellisandi | Mössuskór, Akureyri Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum Skóbúðin, Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.