Morgunblaðið - 15.02.2013, Side 52

Morgunblaðið - 15.02.2013, Side 52
FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 46. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Pistorius banaði unnustu sinni 2. Efast um frásögn um innbrots… 3. Opnaðist eins og niðursuðudós 4. Stakk unnusta sinn 29 sinnum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvikmyndinni Prince Avalanche, endurgerð íslensku myndarinnar Á annan veg, hefur verið vel tekið á kvikmyndahátíðinni í Berlín, skv. frétt á vef Reuters. Þá hafa kvik- myndagagnrýnendur almennt verið jákvæðir í garð hennar og hefur hún m.a. hlotið lofsamlega dóma í kvik- myndaritunum Hollywood Reporter og Variety. Prince Avalanche er í að- alkeppni hátíðarinnar í Berlín. Prince Avalanche hlýtur góðar viðtökur  „Við erum að taka atriðið í þessum töluðu orðum og það verður sýnt á laugardag,“ sagði Pálmi Gestsson í gær. Evróvisjón- farinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson með lagið Ég á líf er gestur Spaug- stofunnar að þessu sinni. „Við reynd- um að fá hann í þáttinn, en honum fannst það ekki mjög spennandi. Þá ætlaði Siggi að leysa málið og leika hann. En það gekk ekki sem skyldi.“ Líf í Spaugstofunni  Hljómsveitin Sigur Rós hóf tónleika- ferð sína um heiminn í fyrradag með tónleikum í Porto í Portúgal. Hljóm- sveitin lék fyrir fullu húsi og flutti þrjú ný lög: Yfirborð, Hrafn- tinnu og Kveik, auk lags- ins Brennisteins sem hún flutti á tón- leikum sínum á Ice- land Airwaves í Laugardals- höll 4. nóv- ember sl. Fjögur ný lög á tón- leikum Sigur Rósar Á laugardag Vaxandi austanátt og þykknar upp sunnantil á land- inu, 10-18 m/s og fer að rigna syðst um kvöldið. Á sunnudag Austan 10-18 m/s og rigning einkum S- og SA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG N og NA 5-13 m/s. Súld eða rigning víða við ströndina N- og A-lands og éljagangur inn til landsins. Hiti 0 til 6 stig við suðurströndina, en annars víða um og undir frostmarki. VEÐUR „Ég er að vonum mjög glað- ur með það að vera byrjaður að spila aftur enda ekkert gaman að vera meiddur, staddur í smábæ í Þýska- landi,“ segir Rúnar Kárason, landsliðsmaður í hand- knattleik og leikmaður þýska A-deildarliðsins Grosswallstadt. Rúnar sleit krossband í hné á æfingu með landsliðinu síðastliðið sumar en sneri aftur inn á völlinn á dögunum. »3 Rúnar kominn aftur á ferðina „Ég er með svolítið öðruvísi hlutverk en ég hafði í fyrra. Ég tek miklu meira af skotum og tek miklu fleiri þriggja stiga skot en ég hef vanist hingað til. Ég er ennþá að læra og venjast þessu hlutverki,“ segir körfuboltakonan Helena Sverrisdóttir sem leikur með Good Ang- els í Slóvakíu. »4 Er með svolítið öðruvísi hlutverk en í fyrra Stefán Logi Magnússon, markvörð- ur norska úrvalsdeildarliðsins Lille- ström, verður lánaður til Ullen- saker/Kisa í B-deildinni en gengið verður frá samningi þess efnis á næstu dögum. „Það er ekkert frá- gengið ennþá. Menn voru fullfljótir á sér að segja að ég væri genginn í raðir liðsins,“ segir Stefán Logi í samtali við Morgunblaðið. »1 Stefán fer en ekkert er enn frágengið ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is „Það er mjög óvenjulegt að gömul og stæðileg tré fari svona í veðri sem þessu. Trjábrot í þessum mæli er alls ekki eitthvað sem hendir á hverju ári,“ segir Þórólfur Jónsson, garð- yrkjustjóri Reykjavíkur. „Trén sem brotna svona eru nán- ast undantekningarlaust haldin ein- hverjum veikleikum fyrir. Stundum hefur þau kalið, jafnvel einhverjum árum áður, og eru því ekki jafnsterk og þau ættu að vera. Eins getur gerst að þau hafi staðið við húsvegg eða grafið hafi verið í kringum þau. Þá er rótakerfi þeirra ekki alveg heilt og þau ekki eins vel í stakk búin að tak- ast á við svona veður. Það sama ger- ist ef grunnvatnsstaða er mjög há, þá ná tré ekki að festa rætur nema mjög grunnt. Heilbrigt og frískt tré ætti ekki að brotna við svona lagað nema eitthvað mikið komi til.“ Að sögn Þórólfs þurfa borgarbúar þó ekki að vænta þess að trjágróður borgarinnar beri sýnilegan eða var- anlegan skaða af þessu. „Þetta verður allt saman meira og minna gleymt í sumar. Það er bara í undantekningartilvikum sem fólk tekur eftir að einstaka tré hafi skemmst, helst ef eftirlætistré fólks hefur farið illa yfir veturinn, annars verður fólk lítið vart við þetta,“ sagði Þórólfur. Mestar skemmdir á birkitrjám Ingibjörg Sigurðardóttir, skrúð- garðyrkjumeistari og flokksstjóri hjá Reykjavíkurborg, var ásamt vinnu- flokki sínum að saga niður grenitré sem voru við það að leggjast á hliðina við Kringlumýrarbraut í hádeginu í gær. „Birkið og víðirinn urðu sér- staklega illa úti í vetur. Víðirinn er með rætur sem liggja mjög grunnt og leggst því hreinlega niður við þessar aðstæður. Eins virðist þessi blanda af blautum snjó, rigningu, skyndilegu frosti og miklum vindi hafa borið birkið ofurliði,“ sagði Ingi- björg. „Meira og minna allt víðiskógar- beltið frá Skeifunni og vestur að Kringlunni varð fyrir mjög miklum skemmdum og við höfum þurft að snyrta það trjábelti mikið.“ Ingibjörg sagði að venjulega væru hún og hennar vinnuflokkur í „sum- arfríi“ milli jóla og nýárs, því á sumr- in væri þeirra helsti annatími. Önnur staða hefði hins vegar verið uppi á teningnum í fyrra. „Þegar við erum búin með okkar verk hér förum við bara eitthvað annað. Við höfum unnið meira og minna sleitulaust við þetta frá ára- mótum og það er hellingur eftir,“ sagði Ingibjörg. „Trén fóru á tveimur dögum“  Mikill snjó- þungi fór illa með trén í Reykjavík Morgunblaðið/Styrmir Kári Vígalegur Starfsmaður Reykjavíkurborgar sagar niður grenitré við Kringlumýrarbraut. „Skemmdirnar urðu fyrst og fremst á tveimur dögum rétt fyrir áramót. Á gamlársdag var Foss- vogskirkjugarður illfær sökum trjábrotsins. Elstu birkitrén urðu verst úti og það mun taka 25 til 50 ár fyrir trén sem við gróðursetjum á næstu árum að ná sömu hæð,“ sagði Þorgeir Adamsson, garð- yrkjustjóri Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæma. „Þetta mun samt ekki hafa var- anleg áhrif á ásýnd garðsins.“ Að sögn Þorgeirs er erfitt að meta tjónið á trjánum, en mesti kostn- aðurinn felst í að saga niður grein- ar og tré og koma þeim til förg- unar. „Við höfum verið með mannskap í að hreinsa þetta meira og minna frá áramótum. Okkur bárust líka fjöldamargar fyrir- spurnir í tilefni af þessu, fólki var brugðið við að trén færu svona illa,“ sagði Þorgeir. Birkið varð áberandi verst úti HUNDRUÐ TRJÁA SKEMMDUST Í FOSSVOGSKIRKJUGARÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.