Morgunblaðið - 28.02.2013, Síða 1
Óvenjuhlýtt hefur verið í veðri undanfarið,
landsmönnum öllum til mikillar gleði og ekki
laust við að vorfiðringur hafi gert vart við sig
hjá mörgum. Það eru þó líklegast börnin sem eru
ánægðust með veðrið enda skemmtilegra að
vera úti þegar hitatölurnar eru rauðar.
Eru þau byrjuð að dusta rykið af hjólum og
hlaupabrettum, finna til skærlituðu fötin og hita
upp fyrir leiki sumarsins.
Kankvísar í hlýindunum með hlaupahjól í eftirdragi
Morgunblaðið/Golli
Yngsta kynslóðin tekur rauðu hitatölunum fagnandi og bíður spennt eftir sumri
F I M M T U D A G U R 2 8. F E B R Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 49. tölublað 101. árgangur
DRAMA FRÁ
GAMANSÖMU
SJÓNARHORNI
TEKIST
Á UM
ERFÐAVÍSA
HEIMURINN FULL-
UR AF TÆKIFÆRUM
OG INNBLÆSTRI
VIÐSKIPTABLAÐ 24 SÍÐNA BLAÐ UM ÍMARKÞETTA REDDAST! 42
Skrifstofur í 14 löndum
» Creditinfo er með starfsemi
í 14 löndum, þar á meðal í Lett-
landi, Litháen, Tansaníu og
Kasakstan.
» Starfsmenn eru 250, þar af
60 á Íslandi. Meirihluti tekn-
anna kemur erlendis frá.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Íslenska fyrirtækið Creditinfo hefur
gert 300 milljóna króna samning við
Seðlabankann í Afganistan um inn-
leiðingu á hugbúnaði sem aðstoðar
við að meta útlánaáhættu. Verkefnið
er fjármagnað með styrk frá Al-
þjóðabankanum. Landið er eitt það
hættulegasta í heimi en það hefur
verið stríðshrjáð í þrjá áratugi. Með-
an á samningstímanum stendur er
ráðgert að leggja um 25 milljónir í að
gæta öryggis starfsmanna.
Þetta kemur fram í viðtali við
Reyni Grétarsson, stjórnarformann
fyrirtækisins, í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins.
Fyrirtæki Creditinfo í Tékklandi
mun annast uppsetningu á kerfinu,
og munu starfsmenn þaðan, m.a. Ís-
lendingar, þurfa að sækja landið
heim enda er um flókið verkefni að
ræða. Creditinfo hefur gert fjóra
sambærilega samninga frá árinu
2009 og nemur heildarvirði þeirra
átta til níu milljónum dollara. Þá var
samið við Íran, Súdan, Palestínu og
Tansaníu. „Við höfum átt í viðskipt-
um við mörg framandi og jafnvel
hættuleg lönd en sem betur fer hafa
starfsmenn okkar aldrei verið í
hættu,“ segir Reynir.
Semja við Afganistan
Creditinfo gerði 300 milljóna kr. samning við Seðlabankann í Afganistan um inn-
leiðingu á hugbúnaði Samningar líka gerðir í Íran, Súdan, Palestínu og Tansaníu
MCreditinfo sækir fram »Viðskipti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjallafjör Leiðbeinandi reglurnar
munu m.a. taka til jeppaferða.
Starfsmenn Slysavarnafélagsins
Landsbjargar hafa rætt við stjórn-
völd um hvort ástæða sé til að setja á
fót rannsóknarnefnd ferðaslysa sem
myndi hafa það hlutverk að rann-
saka slys sem verða við ferða-
mennsku. Nefndin myndi gefa út
skýrslur þar sem m.a. kæmi fram
hvað hefði farið úrskeiðis og til
hvaða aðgerða þyrfti að grípa til að
koma í veg fyrir að annað slys yrði.
„Þetta hefur verið ansi mikið í um-
ræðunni nú síðustu mánuði,“ segir
Jónas Guðmundsson, verkefnisstjóri
hjá Landsbjörg.
Nefndin myndi starfa með svip-
uðum hætti og rannsóknarnefnd
umferðarslysa og rannsóknarnefnd
flugslysa.
Jónas vill ekki ræða um óhappið
sem varð við Landmannalaugar á
mánudag þegar bjarga þurfti fimm
manns af þaki jeppa sem var fastur í
á. Hjá Landsbjörgu séu menn þó
hugsi yfir því að menn séu á ferð um
hálendið að vetrarlagi á einum jeppa
en ekki í samfloti við aðra, líkt og
raunin var á mánudag.
Ferðamálastofa mun á næstu dög-
um gefa út leiðbeinandi reglur um
hvaða kröfur þeir sem sjá um skipu-
lagðar ferðir þurfa að uppfylla. »24
Rannsaki slys í ferðamennsku
Ferðamálastofa birtir brátt leiðbeinandi reglur Ef áform þeirra sem þegarhyggja á fiskeldi í sjó hér við land
ganga eftir gæti framleiðslan orðið
40-50 þúsund tonn á ári eftir 15 ár.
Framleiðsluverðmætið á árinu 2028
gæti þá numið 30 milljörðum króna.
Þetta kom fram í erindi Jóns
Kjartans Jónssonar, formanns
Landssambands fiskeldisstöðva,
þegar hann kynnti stefnumörkun
samtakanna um eldi í sjókvíum.
Sagði hann að hluti þessara áforma
væri kominn vel af stað en tók jafn-
framt fram að margt þyrfti að
ganga eftir til þess að af allri þess-
ari framleiðslu yrði.
Heildarframleiðsla fiskeldisins
var um 7.400 tonn á síðasta ári. »7
40-50 þúsund
tonn í pípunum
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
„Við erum í skýjunum með hvernig
til tókst,“ segir Gunnar Björnsson,
forseti Skáksambands Íslands, eftir
að 49. Reykjarvíkurskákmótinu
lauk í gær. Á mótinu kepptu 227
keppendur af 38 þjóðernum.
„Á næsta ári á mótið 50 ára af-
mæli og þá stefnum við að því að
hafa það enn stærra og sterkara,“
segir Gunnar.
Að sögn hans stendur upp úr ár-
angur hins 13 ára gamla Wei Yi
sem var ósigraður á mótinu og náði
þriðja og síðasta stórmeistara-
áfanga sínum. Telst hann nú yngsti
stórmeistari í heimi. Yngsti kepp-
andinn á mótinu var 7 ára og sá
elsti 78 ára. „Þú sérð þetta ekki í
neinni annarri íþrótt,“ segir Gunn-
ar. »12
Jafntefli Eljanov og So eru tveir
þriggja sigurvegara á mótinu.
Enn stærra
mót að ári
Afar neikvæðar umsagnir hafa
borist frá fagaðilum um frumvarp
innanríkisráðherra til breytinga á
almennum hegningarlögum.
Engilbert Sigurðsson, prófessor í
geðlæknisfræði, segir t.d. að frum-
varpið sé meingallað. Það sé ekki
tækt til þinglegrar meðferðar fyrr
en úr því hafi verið bætt í samráði
við geðlækna.
Geðlæknafélag Íslands segir
mikla afturför birtast í tillögunum í
frumvarpinu. »13
Frumvarpið sagt
mikil afturför