Morgunblaðið - 28.02.2013, Page 13
FRÉTTASKÝRING
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Fjöldi fagaðila hefur skilað inn afar
neikvæðum umsögnum um frum-
varp Ögmundar Jónassonar innan-
ríkisráðherra um breytingar á al-
mennum hegningarlögum
(öryggisráðstafanir o.fl.). Á meðal
þeirra umsagnaraðila sem gagnrýna
frumvarpið eru Landspítalinn, Geð-
hjálp, Læknafélag Íslands, Geð-
læknafélag Íslands, Öryrkjabanda-
lag Íslands, Mannréttindaskrifstofa
Íslands og Engilbert Sigurðsson,
prófessor í geðlæknisfræði við
læknadeild Háskóla Íslands.
Í frumvarpinu eru gerðar nokkrar
veigamiklar breytingar á hegning-
arlögum sem allar tengjast svoköll-
uðum öryggisráðstöfunum. Dóm-
urum yrðu skv. frumvarpinu veittar
heimildir til að kveða á um að ósak-
hæfur einstaklingur skuli vistaður á
geðdeild, viðeigandi heimili, eða
stofnun ef ætla má að lífi, heilsu eða
frelsi annarra þyki hætta búin og að
slík ráðstöfun teljist nauðsynleg til
að fyrirbyggja þá hættu. Ef viðkom-
andi hefur gerst sekur um mann-
dráp, rán, frelsissviptingu, alvarlega
líkamsárás, brennu, nauðgun eða
annað alvarlegt kynferðisafbrot skal
vistunin vera ótímabundin. Hið sama
gildir ef um er að ræða tilraun til
brots af þessu tagi eða hlutdeild í
því.
Þá er kveðið á um í 5. grein frum-
varpsins að sé maður dæmdur í
fangelsi fyrir manndráp, stórfellda
líkamsárás eða annað gróft ofbeldis-
eða kynferðisbrot, eða tilraun til
slíkra brota, og dómur telur veru-
legar líkur á því í ljósi sakaferils við-
komandi og andlegs ástands hans við
lok afplánunar, svo og af undanfar-
andi breytni hans, að hann muni
drýgja ofbeldis- eða kynferðisbrot
þegar afplánun lýkur og sé því
hættulegur umhverfi sínu má dóm-
ari ákveða í sérstöku máli, sem höfð-
að er að tilhlutan ákæruvaldsins eigi
síðar en þremur mánuðum fyrir lok
afplánunar enda komi reynslulausn
ekki til greina, að beitt skuli örygg-
isráðstöfunum
Fráleitar hugmyndir
Engilbert Sigurðsson, prófessor í
geðlæknisfræði, segir í umsögn sinni
að frumvarpið sé meingallað og geti
ekki orðið tækt til þinglegrar með-
ferðar fyrr en úr því hefur verið bætt
með samráði við sérfræðinga á sviði
geðlæknisfræði
„Hugmyndir um að vista sakhæfa
borgara til refsivistar á geðdeildum
sjúkrahúsa en ekki í fangelsum tel
ég fráleitar. Heimildir til að dæma
sakhæfa menn til ótímabundinnar
dvalar á stofnun eru forneskjulegar
og stangast á við þá meginreglu að
dæmdum sakhæfum einstaklingum
beri að vita tímalengd refsingar
sinnar að gengnum dómi,“ segir m.a.
í umsögn Engilberts. Þá bendir hann
einnig á að í frumvarpinu komi fram
mikill þekkingarskortur á því hvern-
ig aðstæður á geðdeildum hér á landi
séu frábrugðnar aðstæðum á geð-
deildum í Noregi og Danmörku, en
ýmsar fyrirmyndir frumvarpsins eru
sóttar þangað. Segir í umsögn Eng-
ilberts að á geðdeildum í Noregi og
Danmörku séu margfalt fleiri pláss
en jafnframt sé þar beitt beltum og
ólum en slík vinnubrögð hafa ekki
tíðkast hér á landi síðan árið 1933.
Fyrir neðan allar hellur
„Tillögur í frumvarpi þessu eru
mikil afturför. Hugmyndir um að
dæma sakhæfa menn til refsivistar á
sjúkrahúsi – geðdeild – eru mjög al-
varlegar og ber að mótmæla harka-
lega,“ segir í umsögn Geðlækna-
félags Íslands en einnig er bent á að
hugmyndir um að dæma sakhæfa
menn til ótímabundinnar dvalar á
stofnun séu fyrir neðan allar hellur.
Þá leggur félagið áherslu á að ekki
sé alið á fordómum og mælist til þess
að frumvarpið verði dregið til baka í
heild sinni.
Í umsögn Landspítalans um frum-
varpið segir m.a.: „Með því að nota
orðið geðdeild í frumvarpinu er
þeirri hættu boðið heim að sakhæfir
einstaklingar verði dæmdir til vistar
á geðdeild. Spítalinn bendir einnig á
að ákvæði um ótímabundna vistun
fyrirfram víkki heimildir ríkisvalds-
ins til að svipta borgarana frelsi og
séu bæði óþörf og vandmeðfarin.
Loks bendir Læknafélag Íslands í
umsögn sinni á að ákvæði frum-
varpsins brjóti jafnvel í bága við svo-
kallaða Havaíyfirlýsingu Alþjóða-
samtaka geðlækna en ef svo er þá
myndi það gera geðlæknum ókleift
að vinna eftir ákvæðum frumvarps-
ins yrði það að lögum.
Frumvarp ráðherra mikil afturför
Harða gagnrýni á frumvarp innanríkisráðherra um breytingar á hegningarlögum má finna í umsögn-
um fjölmargra fagaðila Ákvæði frumvarpsins sögð fráleit, forneskjuleg og fyrir neðan allar hellur
Morgunblaðið/Sverrir
Kleppsspítali Fagaðilar gagnrýna harðlega frumvarp Ögmundar.
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Mercedes-Benz E 200 NGT Kompressor
Verð 6.390.000 kr.
Árg. 2007, ekinn 92 þús. km,
bensín, 303 hö., sjálfsk.
Aukabúnaður: Fjarlægðar-
skynjarar, dráttarbeisli,
glertopplúga, handfrjáls
búnaður, hraðastillir, hiti
í sætum, leðuráklæði, litað gler,
loftkæling, minni í sætum,
rafdrifin sæti, Xenon aðalljós,
þjófavörn, fjórhjóladrif.
Árg. 2008 (nýskráður 2010),
ekinn 37 þús. km, eyðsla
8,3 l/100 km í bl. akstri.
bensín/metan, 164 hö., sjálfsk.
Aukabúnaður: Glertopplúga,
fjarlægðarskynjarar, hiti
í sætum, hraðastillir, leður-
áklæði, loftkæling, rafdrifin
sæti, Xenon aðalljós og margt
fleira.
Mercedes-Benz GLK 220 CDI 4x4 Mercedes-Benz B 180
Árg. 2012, ekinn 14 þús. km,
dísil, 170 hö., sjálfsk., eyðsla 6,6
l/100 km í bl. akstri.
Aukabúnaður: Leðuráklæði,
hiti í sætum, rafdrifin sæti,
PARKTRONIC fjarlægðar-
skynjarar, off-road tæknipakki,
aftengjanlegur dráttarkrókur,
17" felgur.
Verð 7.390.000 kr.
Árg. 2012, ekinn 7 þús. km,
bensín, 123 hö., beinsk., eyðsla
6,2 l/100 km í bl. akstri.
Aukabúnaður: Aksturstölva,
fjarlægðarskynjarar, kastarar,
loftkæling, hraðastillir,
rafdrifnar rúður og speglar,
rafdrifin leðursæti með minni,
upplýsingaskjár, stafrænt
mælaborð, þjófavörn.
Verð 4.590.000 kr.
Mercedes-Benz ML 500 4x4
Verð 5.990.000 kr.
Tilboðsverð 4.990.000 kr.
Í umsögn Mannréttinda-
skrifstofu Íslands segir að ef
ákvæði 67. gr. núv. laga verður
ekki fellt út heldur aðeins þrengt
líkt og lagt er til með 5. gr. frum-
varpsins sé hætta á að mönnum
verði refsað tvisvar fyrir sama
brot en slíkt brýtur gegn megin-
reglu réttarfars, ne bis in idem.
Þá gæti mönnum verið refsað
fyrir fyrri hegðun eða vegna þess
að þeir gætu í framtíðinni gerst
sekir um afbrot, en slíkt brýtur
gegn meginreglunni um að engin
refsing skuli vera án afbrots.
Engin refsing
án afbrots
„NE BIS IN IDEM“