Morgunblaðið - 28.02.2013, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Borgartún • Fákafen • Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
HEILSUSPRENGJA
Veldu gæði á góðu verði.
Bættu heilsuna fyrir þig og þína.
Allt Rapunzel
með 20%
afslætti
Hágæða lífræn
matvörulína
með mjög breitt vöruúrval.
20%
afsláttu
r!
Safaríkir safar
Safarnir frá The
Berry Company eru
án allra aukaefna,
án viðbætts sykurs,
fullir af andoxunarefnum
og vítamínum.
20%
afsláttu
r!
Áttamismunanditegundir.
Hátt í200vörutegundir.
Ti
lb
o
ð
in
gi
ld
a
ti
l7
.m
ar
s
20
13
Keppt verður í fimmgangi á þriðja
móti Meistaradeildarinnar í hesta-
íþróttum sem fram fer í Ölfushöll-
inni á Ingólfshvoli í kvöld.
Sigurvegarinn frá fimmgangs-
keppninni í fyrra, John Kristinn
Sigurjónsson, reynir að verja titil
sinn á Konsert frá Korpu. Viðar
Ingólfsson og Már frá Feti sem
urðu í öðru sæti mæta einnig til
leiks og Elvar Þormarsson á
Skugga frá Strandarhjáleigu sem
lenti í þriðja til fjórða sæti síðast.
Guðmundur Björgvinsson ríður
Sólbjarti frá Flekkudal sem varð í
þriðja til fjórða sæti í fyrra undir
stjórn Artemisiu Bertus.
Staðan í stigakeppni einstaklinga
á mótaröðinni er jöfn. Guðmundur
Björgvinsson og Sigurður Sigurð-
arson eru efstir og jafnir með 20
stig. Lið Lýsis leiðir stigakeppni lið-
anna með 113 stig. Top Reitar / Ár-
mót er með 105,5 stig.
Mótið hefst klukkan 19.
Hörð
keppni í
fimmgangi
Þriðja mót Meist-
aradeildarinnar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fylgst með Búist er við spennandi
keppni í Ölfushöllinni í kvöld.
„Ég veit eiginlega ekki hvort ég á að
vera glaður eða hryggur,“ segir Elv-
ar Eyvindsson, bóndi á bænum Skíð-
bakka 2 í Austur-Landeyjum. Túnin
umhverfis bæinn eru orðin iðjagræn
og gras farið að spretta.
Síðastliðin ár hafa Elvar og fleiri
bændur í sveitinni verið að prófa sig
áfram með nýja grastegund, rýgresi.
Það er jafnan grænna yfir veturinn
en aðrar grastegundir. Þó er óvenju-
legt að það sé farið að vaxa svona
snemma. „Rýgresið gefur mikla og
góða uppskeru og hefur gefist vel er-
lendis,“ segir Elvar en í fyrrasumar
náði hann fjórum sláttum.
Elvar segir veturinn hafa verið
vægast sagt undarlegan og á þar við
hlýindin. Hann vonar að vetrar-
sprettan komi ekki niður á uppsker-
unni næsta sumar.
„Ef það verða ekki miklar frost-
hörkur ætti þetta að vera í lagi.
Þessari grastegund er þó hættara
við skemmdum en ýmsum öðrum,“
segir hann.
Of snemmt að fagna vori
Elvar segir fallegt um að litast í
sveitinni og að tíðarfarið minni um
margt á vorið. „Það er óneitanlega
léttara yfir bændum þegar þeir
finna vorið nálgast. Maður er samt
svolítið óviss hvort það sé tímabært
að fagna því strax,“ segir hann.
arh31@hi.is
Allt orðið iðjagrænt
Allt orðið grænt Túnin í Austur-Landeyjum minna óneitanlega á vorið.
Tún í Austur-Landeyjum farin að grænka og gras tekið
að spretta Bóndi segir ástandið vægast sagt óvenjulegt
Nýsköpun í orku-
málum verður í
brennidepli á ráð-
stefnu sem sveit-
arfélagið Horna-
fjörður stendur
fyrir á Hótel
Höfn í dag, kl. 15.
Á ráðstefnunni
verður reynt að
skyggnast inn í
framtíðina og
fjallað um hugsanlega nýja orku-
gjafa á Íslandi, bætta orkunýtingu
með sátt við umhverfið að leiðarljósi.
Meðal annars verða kynntar nýj-
ungar á sviði orkuöflunar, niður-
stöður tilrauna með ræktun olíu-
fræja, áætlun um uppbyggingu
gagnavers, yfirstandandi jarð-
hitaleit Rarik og tilraunir með
varmadælur. Einnig verður fjallað
um aðgerðir í loftslagsmálum og
starfsemi landbúnaðarins í orku-
málum.
Nýsköpun
í orkumálum
í Hornafirði
Nýjung Rætt er um
nýja orkugjafa.