Morgunblaðið - 28.02.2013, Page 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Komdu með í gott form
Frír prufurtími
Opnir tímar:
Cross bells
þriðjudaga og fimmtudaga,
kl 12.00 og 17.15
laugardaga, kl. 10.00
Styrkir alla vöðva líkamans.
Spinning
mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga, kl 12.00 og 17.15
Mikill hraði og brennsla.
Sjá sölustaði á istex.is
LOPI 32
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
„Öldurót hefur oft leikið um Páfa-
garð á undanförnum árum,“ sagði
Benedikt páfi XVI. á Péturstorginu í
Róm í gær þar sem síðasta, vikuleg
áheyrn hans fór fram, að þessu sinni
undir berum himni vegna þess hve
mannfjöldinn var mikill. En páfi
minntist einnig gleðistunda á átta
ára embættisferli sínum. Hann lætur
af embætti í dag en liðlega sjö aldir
eru síðan páfi hætti síðast sjálfvilj-
ugur. Það var Selestínus V.
Um 150.000 manns voru á torg-
inu, meðal þeirra margir frá Þýska-
landi, ættjörð Benedikts. Margir
tárfelldu á þessari sögulegu en við-
kvæmu stund. Sjónarvottar sögðu
páfa þó hafa verið brosmildan og
mannfjöldinn hyllti hann ákaft.
Benedikt mun áfram verða
ávarpaður Yðar heilagleiki en verður
nú kallaður páfi með viðbótinni em-
eritus, eins og tíðkast um prófessora
sem hætta. Páfi hefur í embættistíð
sinni þurft að takast á við fjölda
hneyksla vegna barnaníðs klerka
sem upplýst hafa verið. Langflest
málanna eru áratuga gömul en þau
hafa skekið kirkjuna, ekki síst vegna
þess að ljóst er að oft hefur verið
reynt að þagga þau niður. Einnig
hafa fjölmiðlar komist yfir gögn sem
sýna að flokkadrættir og spilling
hafa grafið undan innra starfi Páfa-
garðs í tíð hans og banki ríkisins var
staðinn að þátttöku í peningaþvætti.
Páfi minnti á söguna af því er
frelsarinn lægði öldur á Galíleuvatni
er hann er þar á fiskibáti með læri-
sveinunum, þ. á m. fyrsta páfanum,
Pétri. „Ég vissi alltaf að guð var í
bátnum. Ég vissi alltaf að bátur
kirkjunnar er ekki minn, hann er
ekki okkar, heldur hans. Hann mun
ekki láta hann sökkva,“ sagði páfi.
Minntist ölduróts en
einnig gleðistunda
Söguleg stund á Péturstorginu í Rómaborg þegar Bene-
dikt XVI. páfi kvaddi söfnuðinn eftir átta ár í embætti
AFP
Kveðjustund Benedikt XVI. páfi, andlegur leiðtogi um 1.200 milljóna kaþólskra karla og kvenna um allan heim,
veifar til mannfjöldans á leið sinni á Péturstorgið þar sem síðasta, vikuleg áheyrn hans fór fram.
Benedikt páfi XVI. sagði að sú
ákvörðun hans að segja af sér páfa-
dómi hefði verið sér þungbær en
hann hefði tekið hana með hagsmuni
kaþólsku kirkjunnar í huga. Hann er
orðinn 85 ára og segist vera orðinn
of veikburða til að gegna embættinu.
Mjög er deilt um það hver eft-
irmæli Benedikts páfa muni verða
þótt fáir dragi í efa að hann sé af-
burða fræðimaður á sviði guðfræði.
Meira er efast um stjórnunarhæfi-
leika hans. Hann er einkum gagn-
rýndur fyrir að hafa ekki þegar í
stað eftir embættistökuna 2005 tekið
á barnaníðsmálunum sem honum
hafi verið fullkunnugt um enda bú-
inn að vera einn af æðstu embætt-
ismönnum Páfagarðs um árabil.
Hann lagði þess í stað áherslu á
baráttu gegn veraldar- og afstæðis-
hyggju. En honum til varnar er
nefnt að páfi varaði mjög við trúar-
ofstæki, sem oft leiddi til ofbeldis, og
andúð á skynsemi. Guð væri í eðli
sínu skynsamur, sjálft sköpunar-
verkið væri bæði rökrétt og skyn-
samlegt og þess vegna væri engin
mótsögn milli sannrar trúar og
skynsemi.
Þess má geta að á páskum 2005,
nokkrum dögum fyrir andlát Jó-
hannesar Páls II., minntist Bene-
dikt, þá Joseph Ratzinger kardínáli,
á „óþverrann“ sem flekkað hefði
nafn kirkjunnar. Veltu margir vöng-
um yfir því hvað hann ætti aðallega
við en nú er löngu orðið ljóst að hann
átti við barnaníð og kynlífshneyksli.
Ljóst þykir að áhrifamikil öfl innan
kirkjunnar hafi víða haldið hlífiskildi
yfir brotamönnum. Biskupar voru
hræddir við opinbera umfjöllun og
völdu oft þá leið að færa menn frek-
ar til í starfi en láta þá svara til saka.
En bent er á að röggsamari páfi
hefði ef til vill strax mokað fjósið.
kjon@mbl.is
Óvíst hver eftirmæli
Benedikts verða
Ásakanir um hik og lélega stjórnun
Örfáir glæpamenn
» Um 500.000 prestar og
biskupar þjóna í kaþólsku
kirkjunni um allan heim.
» Þar af hafa nokkur hundruð
með vissu reynst sek um
barnaníð síðustu áratugina.
» Margra alda hefð er fyrir því
í kirkjunni að hún leysi innri
vandamál sín sjálf.