Morgunblaðið - 28.02.2013, Page 25

Morgunblaðið - 28.02.2013, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013 Sólarglenna Það hefur verið heldur þungbúið í höfuðborginni síðustu daga en af og til brýst sólin fram og þá láta sumir hendur standa fram úr ermum. Golli Þekkt er að í rekstri staðnaðra fyr- irtækja og stofnana leggja vanhæfir leið- togar mikið upp úr að safna að sér hjörð svokallaðra „já- manna“. Jámaðurinn hefur þá eiginleika að geta umborið hvers- kyns vanhæfni leið- toga síns. Einhver sérstæðustu „hagsmunasamtök“ sem hér starfa er fyrirbærið „Já Ísland“ sem er vettvangur já- manna Evrópusambandsins. Sam- tökin gáfu nýlega út einblöðung þar sem kostir þess að Ísland segi ekkert nema „já“ við kröfum ESB eru tíundaðir. Á vefnum eru ótal rök tínd til fyrir aðild en ekkert minnst á s.k. samningsmarkmið eða yfirhöfuð eitthvað sem segja eigi nei við. Nú þarf ekki að fara mörgum orðum um staðfestu eða lagaþekk- ingu þess fólks sem aðhyllist ESB-aðlögunarferlið því sama fólki þótti þjóðargjaldþrot, með hinum lagalausu Icesave-kröfum, hreint smámál í aðlögunarferlinu. Í kynningarbæklingnum kennir ýmissa grasa en grunntónninn er að þjóðinni sé óhætt að afsala sér eigin fullveldi því að við munum nánast örugglega fá sjálfsákvörð- unarrétt í einhverjum málum eins og stjórnun fiskveiða aftur. Undir liðnum „Ríki stjórni sjálf veiðum á sínum hafsvæðum“ segir að „Lík- legt er að nýju reglurnar auðveldi samningamönnum Íslands að ná ásættanlegri niðurstöðu. Þau at- riði sem einkum standa út af eru þá fjárfestingar útlendinga í greininni og það að Ísland verði sérstakt fiskveiðistjórnunarsvæði.“ Það sem landsmenn ættu að ótt- ast mest er það sem ekki sést fyr- ir, svo sem eins og miklar breyt- ingar í lífríki sjávar sambærilegt við hina skyndilegu aukningu makríls hér við land. Nú er álitið að makríll hrygni hér og þyngist um 900.000 tonn innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Ljóst er að nýir „flökkustofnar“ muni taka hér ból- festu og aðrir láta undan síga. ESB telur sig hins- vegar ekki geta litið á málið öðru vísi en að um flökkustofn sé ræða, hvar við höfum enga veiðireynslu. Í samræmi við það álit, býður ESB okkur 2% af þeirri verðmæta- aukningu sem verður í okkar eigin lögsögu. Það undarlega er að margir í hópi þeirra sem styðja að ESB taki yfir stjórn fiskveiða hér við land, hafa jan- fnramt barist gegn íslenskri út- gerð undir þeim formerkjum að arðurinn af auðlindinni eigi að renna til þjóðarinnar. Gagnrýn- endur aðlögunarferilsins hafa bent á að afrakstur aðlögunarferilsins sé enginn og ekkert sem skipti máli hafi klárast. Þetta er vita- skuld ekki rétt því af spjalli við fólk kemur berlega í ljós að áróð- ursherferð ESB hefur skilað þeim árangri að stór hluti þjóðarinnar trúir því að verið sé að semja um e.k. „pakka“ sem verði svo opn- aður í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í ní- unda lið umrædds bæklings segir að með inngöngu muni verða veittur „Stuðningur við strand- veiðar smábáta“. Nú liggur fyrir að smábátaútgerð er ekki jafn hagkvæm og önnur útgerð og skil- ar einfaldlega minna aflaverðmæti til þjóðarbúsins. Íslendingar ættu að hafa hugfast að með orðinu „stuðningur“ er átt við að al- mannafé eigi að verja í að nið- urgreiða óhagkvæma starfsemi í útgerð. Í framhaldinu kemur svo undarleg þversögn þess efnis að ESB muni tryggja að útgerð verði „alvöru atvinnugrein en ekki rík- isstyrkt félagsmálastofnun“. Hér er ESB eflaust að vísa til eigin sjávarútvegs sem er undirmáls- atvinnugrein og háð styrkjum frá skattgreiðendum. Menn geta svo velt fyrir sér hversu raunhæft það er að Íslend- ingar geti tryggt að útlendingar fái ekki að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi, og hvernig slíkt að vera réttlætanlegt án fordæm- isgildis innan sambandsins í krafti tveggja atkvæða af 732! Í bækl- ingnum er einnig vikið að land- búnaðarmálum og ekki annað að skilja en að halda eigi áfram óarð- bærum búskap í íslenskum land- búnaði. Hingað til hafa stuðnings- menn ESB-aðildar haldið því fram að með aðild sé fyrst hægt að ná fram hagræðingu í landbúnaði hér á landi. Þvert á móti kemur fram að „Aðalatriðið sé að viðhalda byggð …“ en ekkert minnst á hag- kvæman samkeppnisrekstur með hagsmuni neytenda í huga. „Land- búnaðarstefna ESB stuðlar ekki að verksmiðjubúskap heldur bein- ist að því að efla fjölbreytt hlut- verk landbúnaðar, fjölga atvinnu- tækifærum til sveita, bæta lífskjör og efla félagslíf í dreifðum byggð- um …“ Ennfremur er athyglisvert að mati jámanna að „… ákvarðanir þurfum við að taka byggðar á staðreyndum, þekkingu og reynslu fremur en tilfinningasemi.“ Lík- lega er þar verið að vísa í ákvarð- anir ESB um bann við hvalveiðum og bann við selveiðum! Fátt er Evrópusambandinu óviðkomandi, allt frá stöðlun ban- ana yfir í ljósaperur og skal eitt yfir alla ganga. Nú hafa umhverf- isvænar glóperur verið bannaðar hér á landi í stað kvikasilf- ursfylltra sparpera sem eru ESB þóknanlegar í nafni umhverf- isverndar. Glórulaus endurvinnsla t.d. eins og á glerumbúðum, skal nú stunduð að viðlögðum sektum og gildir þá einu þó svo að meiri orku þurfi í að endurvinna gler heldur en að búa til nýtt. Evrópu- sambandið er þó ekki alslæmt þar sem það hefur lengst af barist gegn tollum milli aðildarríkja og hindrunum á flæði vinnuafls, al- menningi til hagsbóta. Til að ná augljósum almannahagsmunum fram þurfum við hinsvegar ekki að afsala sjálfstæði þjóðarinnar. Eftir Arnar Sigurðsson » Fátt er Evrópu- sambandinu óviðkomandi, allt frá stöðlun banana yfir í ljósaperur og skal eitt yfir alla ganga. Arnar Sigurðsson Höfundur starfar á fjármálamarkaði. Jámenn Samtök atvinnulífsins héldu á dögunum áhugaverðan fund um atvinnumál undir yfirskrift- inni „Fleiri störf – betri störf“. Eftir fundinn sat að ógrynni tækifæra eru til staðar fyrir ís- lenskt atvinnulíf. Það á ekki síst við ef skattkerfið yrði ein- faldað og gert skilvirkara, skýr gjaldmiðlastefna mótuð og efl- ing menntunar, rannsókna og nýsköpunar sett í forgang. Allt eru þetta gömul sannindi og ný sem vert er að ræða. Hér mun ég fara stuttlega yfir síðasta at- riðið en þar er af mörgu að taka. Rétt er að draga fram að ekki alls fyrir löngu skilaði starfshópur um samþættingu atvinnuvega- og menntastefnu á vegum forsætisráðherra af sér niðurstöðu. Hún var skýr. Efla þarf iðn- og verknám og stytta námstíma til stúdentsprófs. Niðurstaða sem svo sann- arlega er hægt að taka undir en einhverra hluta vegna var eins og ég væri að upplifa svonefndan „Groundhog day“, svo vitnað sé í kvikmyndasöguna. Að vinna gegn brottfalli, efla iðn- og starfsnám og auka sveigjanleika Á árunum 2004-2008 voru skipaðir sér- stakir starfshópar sem fengu nákvæmlega þetta verkefni. Þeirra niðurstaða og ann- arra starfshópa um skólalöggjöf varð til þess að árið 2008 var samþykkt heildstæð skólalöggjöf um öll skólastigin. Eftir mikið samráð voru gerðar nýjar kröf- ur til kennarastarfsins og var sérstaklega litið til Finnlands sem fyrirmyndar í þeim efnum. Mikilvægt skref þó það sé hins vegar umhugsunarefni hvernig það skref hefur verið útfært. Meginmarkmið skólalöggjaf- arinnar var að minnka brottfall, efla iðn- og starfsnám og auka sveigjanleika bæði innan skóla og á milli skólastiga. Það þýddi m.a. fjölbreyttari stúdentspróf en einnig var markvisst stefnt að fjölgun þeirra sem verðu skemmri námstíma til stúdents- prófs. Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og síðan Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingar studdu þessar um- bætur, sem allir flokkar samþykktu síðan á Alþingi. Því er ekki að leyna að ágreiningur var um málið í upphafi við Kennarasamband Ís- lands. Við vinnslu málsins náðist svonefnt 10 skrefa samkomulag sem fól í sér heild- stæða nálgun á skólakerfinu og uppbygg- ingu þess. Þótt samstarfið við Kenn- arasambandið hafi á stundum verið erfitt var það bæði lærdómsríkt og ánægjulegt enda prýðilegt fólk í forsvari. Formaður Fé- lags framhaldsskólakennara fór þó ekki í grafgötur með að ekki mætti hrófla við námstíma til stúdentsprófs. Með því að taka heildstætt á skólalöggjöf- inni og á menntun kennara var reynt að koma til móts við ýmis sjónarmið af hálfu hagsmunasamtaka kennara en einnig for- eldra, skólastjórnenda og atvinnulífs. Ljóst var í mínum huga að óbreytt ástand var ekki í boði. Ísland hafði lengi búið við mikið brottfall en einnig hafði verið kallað eftir aukinni virðingu og eflingu iðn- og verk- náms. Jafnframt var ekki hægt að líta fram hjá því að íslensk ungmenni eyða lang- mestum tíma til stúdentsprófs, ekki bara innan Norðurlandanna heldur meðal allra OECD-ríkjanna. Þetta hefur áhrif m.a. á brottfall en einnig samkeppnisstöðu lands- ins til lengri og skemmri tíma litið. Vannýtt tæki Lögin um leik-, grunn- og framhaldsskóla, sem innihéldu þessi mikilvægu markmið, áttu að taka gildi árið 2009 ásamt lögum um kennaramenntun. Fyrsta ákvörðun vinstri stjórnarinnar var að fresta þeim hluta fram- haldsskólalaganna sem hefði eflt iðn- og starfsnám hvað mest, hefði stuðlað að minna brottfalli og ýtt undir styttri náms- tíma til stúdentsprófs. Einum mikilvægasta hluta menntastefnunnar var því frestað til ársins 2015. Það er svona eins og að pissa í skóinn sinn enda undirstrikar niðurstaða fyrrnefnds starfshóps forsætisráðherra hversu mikil mistök það voru að fresta gildistöku laganna. Það er skrýtið ef for- gangsraða á í þágu menntunar að fyrsta verk ríkisstjórnar er að gelda þau tæki sem menn hafa komið sér saman um að efli ís- lenskt menntakerfi. Þegar formaður Félags framhaldsskóla- kennara skrifar síðan grein um mennta- stefnu sem inniheldur í grundvallaratriðum varðstöðu um núverandi fyrirkomulag er líklegast að ætla að vinstri flokkarnir hafi látið undan þrýstingi frá því félagi. Dag- skrárvaldið virðist því hafa flust úr ráðu- neyti menntamála yfir til launþegasamtak- anna. Annað hvort er mönnum alvara í því að vilja sporna við brottfalli, efla iðn- og starfs- nám og auka sveigjanleika í skólastarfi líkt og löggjafinn samþykkti eða menn velja undanlátssemi, enda átakaminnst að halda bara í horfinu. Er þetta reyndar í takti við það sem er að gerast á mörgum öðrum svið- um samfélagsins í dag þar sem langtíma- hugsun er ýtt út af borðinu af ótta við óvægna og oft á tíðum öfgakennda umræðu hinna íslensku orðháka. Slíkt mun hins veg- ar verða afar kostnaðarsamt fyrir íslenskt samfélag þegar fram í sækir. Eftir stendur, sem fyrr, mikilvægi mennt- unar fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélag. Efling menntunar þýðir aukinn hagvöxt til lengri tíma. Fundur SA um atvinnumál var hvatning til að gera betur, meðal annars á sviði menntunar. Það er hægt, möguleik- arnir eru til staðar, tækin og tólin líka. Þau þarf að nýta. Við höfum einfaldlega ekki efni á öðru. Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur »… var reynt að koma til móts við sjónarmið af hálfu kennara, foreldra, skólastjórnenda og atvinnulífs. Í mínum huga var óbreytt ástand ekki í boði. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Frestun menntastefnu Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.