Morgunblaðið - 28.02.2013, Page 42
VIÐTAL
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Á morgun verður frumsýnd hér á
landi kvikmyndin Þetta reddast!
sem Börkur Gunnarsson, blaða- og
kvikmyndagerðarmaður, leikstýrði.
– Segðu mér aðeins frá aðferðinni
við gerð þessarar myndar?
„Þú gerir bara mynd í þeim að-
stæðum sem þú ert í. Ef þú ert ekki
með einhverjar 200 milljónir, þá þýð-
ir ekkert að fara í búningadrama. Í
sögu úr samtímanum þá er aldrei
neitt klikk í mynd. Svo reynirðu að
notast við og semur sögu út frá því
hvar þú færð frítt að borða og býrð
til karaktera í kringum þá leikara
sem þú ert með. Þú passar að eitt-
hvað af fataskápnum þeirra passi við
þá. Þá ertu búinn að spara svakalega
mikinn pening, án þess að það sjáist
neitt á gæðum myndarinnar. Ef þú
semur í samtímanum, þá er eitthvað
sem myndi kosta svaka pening að
búa til í forgrunni, þegar til staðar.“
Byggist ekki á einum manni
– Nú hefur þú gert kvikmynd í
Tékklandi líka. Er mikill munur á
því að gera kvikmynd þar og hér?
„Nei, það er ekki mikill munur í
raun og veru. Ég gerði þetta ná-
kvæmlega eins og síðast, nema það
er meira leikaraval úti í tíu milljóna
manna þjóð. En þeir eru góðir þessir
fáu leikarar sem hér eru. Það er al-
veg karakteraval hér líka.“
Myndin fjallar um ungan blaða-
mann sem kominn er af beinu braut-
inni í lífinu vegna ofdrykkju. Hann
er á síðasta séns í vinnunni og ástar-
sambandið í uppnámi.
– Byggist þessi karakter á ein-
hverjum tilteknum úr stéttinni?
„Nei, nei – en það eru margir úr
stéttinni sem hafa átt við svona
vandamál að glíma, eins og fólk úr
öllum stéttum samfélagsins.“
– Endurspeglar þetta að ein-
hverju leyti hinn dæmigerða blaða-
mann?
„Eins og rifið út úr raunveruleikanum“
Þetta reddast!
frumsýnd í bíó-
húsum á morgun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reddast það? Myndin er um ungan blaðamann sem kominn er af beinu
brautinni í lífinu. Hann tekur kærustuna með í „rómantíska“ vinnuferð í
Búrfellsvirkjun til að bjarga hvoru tveggja – vinnunni og ástarsambandinu.
„Nei, ekki lengur. Hann er til
samt sem áður á öllum fjölmiðlum –
einhver sem er í vandræðum með
þetta. En þetta er ekki sá týpíski.
Týpíski íslenski blaðamaðurinn í
samtímanum er samviskusamur,
vinnusamur, í crossfit og borðar hrá-
fæði – frekar heldur en þessi klisja
um fulla blaðamanninn með sígarett-
una sem gagnrýnir með viskírödd
allt og alla í kringum sig.“
Börkur lærði leikstjórn í Tékk-
landi og kom heim aftur til Íslands
árið 2005 með kvikmynd sína Sterkt
kaffi í farteskinu.
– Hverjar voru helstu áherslurnar
í náminu í Tékklandi?
„Ég var á leikstjórnarbraut.
Þannig að ég var mikið með leikara á
sviði og vann mikið með þeim. Mikil
áhersla var á leikaraleikstjórn í
náminu. Það hentar vel í „low bud-
get“ myndir. Þá ertu mikið með
„close up“ á leikarana og tryggir að
leikurinn sé góður því þú hefur ekk-
ert mikinn pening til að búa til eitt-
hvert rosa „show“ með kvikmynda-
vélina. En ef þú ert með góða leikara
í höndunum, þá skiptir það ekki máli
í framleiðsluferlinu. Þá vinnur þú
bara vel með leikurunum.“
Mynd sem einblínir á fólk
Spurður að því hvort hann fylgi
einhverri sérstakri stefnu í handrita-
gerð segist Börkur hafa tileinkað sér
margt af því sem hann hefur lært af
öðrum handritshöfundum.
– Eiga áhorfendur von á einhverju
nýju í kvikmyndagerð og upplifun
sem þeir hafa ekki séð áður?
„Sérhver mynd er náttúrlega ný í
sjálfu sér. Ég held að menn fái þarna
flott drama frá gamansömu og já-
kvæðu sjónarhorni, þar sem hlegið
er að breyskleikum mannanna. Það
er nýtt fyrir suma en aðra ekki.
Þetta er mynd sem einblínir á fólk
og leikarana. Einblínir á karaktera
sem allir ættu að þekkja. Dramað er
ekki hástemmt, heldur lítið og sætt.
Þetta er eitthvað sem flestir ættu að
kannast við úr eigin lífi. Fólkið á
tjaldinu er eins og rifið út úr raun-
veruleika flestra og hent á tjaldið.
Sumir ættu jafnvel að kannast við
sjálfa sig þarna.“
Undir áhrifum frá Mike Leigh
– Aðhyllist þú eina tegund kvik-
myndagerðar umfram aðra?
„Nei, en þessi er náttúrlega undir
einhverjum áhrifum frá Mike Leigh
og eitthvað er frá mér sjálfum og
reynslu af fyrri mynd sem gekk
mjög vel í Tékklandi. Þótt það hafi
gengið vel í Tékklandi langaði mig
heim og að tala við íslenska áhorf-
endur. Ég finn að það er mér mik-
ilvægara að tala við mitt fólk en að
tala við tíu sinnum fleiri Tékka. Þótt
Tékkar séu yndisleg þjóð og hafi
reynst mér vel þá er ég og verð Ís-
lendingur og það skiptir mig máli að
vera hér.“
– Engin hræðsla við að frumsýna
myndina hér á landi?
„Nei, og ég hlakka mjög mikið til.“
Leikstjórinn Þetta reddast! er önnur kvikmyndin sem Börkur Gunnarsson leikstýrir. Hann leikstýrði og skrifaði
einnig handritið að kvikmyndinni Sterkt kaffi – sem hlaut menningarverðlaun DV árið 2005 sem besta mynd ársins.
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
FERMINGAR
:
–– Meira fyrir lesendur
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
8. mars.
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 4. mars.
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins og
verður blaðið í ár
sérstaklega
glæsilegt.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
Sýning á stórum ljósmyndum Ragnars Axelssonar,
RAX, úr verkefninu „Veiðimenn norðursins“ var opnuð í
vikunni í Pierre et Marie Curie-háskólanum í París, í
tengslum við ráðstefnu um málefni norðurslóða. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem er heimsókn í
París í boði franskra stjórnvalda, flutti erindi á þinginu,
rétt eins og Michel Rochard, fyrrverandi forsætisráð-
herra Frakklands, og virtir vísindamenn. Hér skoða
Ólafur Ragnar og fleiri gestir sýninguna sem er í sýn-
ingarými í súlnagöngunum við háskólabygginguna.
Sýningar á þessum verkum Ragnars, þar sem sjónum
er beint að lífi veiðimanna og þorpsbúa á Grænlandi og í
inúítabyggðum Kanada, hafa verið settar upp víða á und-
anförnum misserum og fengið afar góðar viðtökur. Þessi
sýning var síðast á Bretagne-skaga í Frakklandi og önn-
ur útgáfa og stærri var sett upp í Svíþjóð. Þá hefur heim-
ildarkvikmyndin „Andlit norðursins“, um verk og feril
Ragnars, þar sem meðal annars er fylgst með honum
ljósmynda á Grænlandi, verið sýnd víða um heim í sjón-
varpi og á kvikmyndahátíðum.
Ljósmyndir RAX í París
Kvikmyndin Þetta reddast! fjallar
um ungan blaðamann sem er kom-
inn út af sporinu vegna óhóflegrar
drykkju. Hann er í góðu starfi en
kominn á síðasta séns og ástar-
sambandið í molum. Hann skipu-
leggur rómantíska ferð á Snæfells-
nes í von um að bjarga samband-
inu en ritstjórinn krefst af honum
að fara í vinnuferð í Búrfells-
virkjun. Góð ráð eru dýr og hann
ákveður að slá tvær flugur í einu
höggi. Býður kærustunni með í
vinnuferðina til að bjarga vinnunni
og sambandinu. Við Búrfell taka þó
hlutirnir óvænta stefnu. Háspenna
var kannski ekki það sem sam-
bandið þurfti á að halda.
Leikarar í aðalhlutverki eru:
Björn Thors, Jón Páll Eyjólfsson,
Maríanna Clara Lúthersdóttir og
Guðrún María Bjarnadóttir.
Ráðagóður á
raunastund?
ÞETTA REDDAST!