Morgunblaðið - 28.02.2013, Side 45

Morgunblaðið - 28.02.2013, Side 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013 Mikið óskaplega geta fjöl-skyldur verið flókinfyrirbæri. Leyndarmálog lygar, óheiðarleiki og undirferli, en undirliggjandi er væntumþykja og bönd sem erfitt getur reynst að slíta. Hanne-Vibeke Holst tekur á öllu þessu og meira til í nýjustu bók sinni sem hefur hlotið nafnið Iðrun á íslensku og er sjötíu ára ættarsaga Tholstrup-fjölskyld- unnar. Holst er geysi- vinsæl í heima- landi sínu og víða á Norðurlönd- unum. Rithöfund- arferill hennar hófst upp úr tví- tugu og síðan þá hefur hún skrifað fjölda bóka þar sem konur eru oft í aðalhlutverki. Sem dæmi má nefna Theresu- þríleikinn, þar sem fjallað er um fréttakonu á framabraut, stór- skemmtilegar bækur sem því miður hafa ekki komið út á íslensku. Að auki hafa sjónvarpsþættir verið byggðir á bókum hennar, einhverjir þeirra hafa verið sýndir hér á landi við miklar vinsældir, en þar var fjallað um siðblinda og spillta stjórn- málamenn. Iðrun er um margt öðruvísi en sumar aðrar bækur Holst. Til dæmis eru karlmenn hér í aðalhlutverkum; predikarinn og andspyrnuhetjan Thorvald sem ekki er allur þar sem hann er séður og synir hans, tvíbur- arnir heillandi Leif og Leo, en marg- slungið samband þeirra og baráttan um glæsikvendið Ninni er ein af þungamiðjum bókarinnar. Dóttir Leos, Helena og dóttir hennar Sop- hie þurfa svo að vissu leyti að takast á við syndir feðranna og taka ákvörðun um hvernig þessi ætt- arsaga muni halda áfram. Þetta eru sem sagt fjórar kyn- slóðir, þrjár þær fyrstu gera sömu mistökin í tilteknum athöfnum og samskiptum, það mætti halda að þetta væri eins konar ættarbölvun (nú má ekki segja of mikið) en eftir magnað uppgjör á milli mæðgnanna, þeirra Helenu og Sophiu, virðist sem bjartari tíð sé framundan hjá Tholst- rup-fjölskyldunni. Hanne-Vibeke Holst lætur óskap- lega vel að skrifa um fólk og hvers vegna það hegðar sér eins og það gerir. Sumar persónur hennar haga sér reyndar á býsna undarlegan hátt, en það er ekkert erfitt að átta sig á því af hverju þær gera það, því svona er fólk nú bara og það er þessi óútreiknanleiki sem gerir persónur Holst svo lifandi og skemmtilegar. Það er kannski ekkert alltaf verið að kafa neitt sérlega langt undir yf- irborðið í þessari bók, en það er ekk- ert alltaf þörf á því. Undirrituð hefur lesið flestar bækur sem Holst hefur skrifað, misgóðar eru þær, en allar skemmtilegar og halda manni við efnið og sú bók sem hér um ræðir er ein sú allra besta. Annars hefur Holst verið gjörn á að skrifa framhald bóka sinna og vonandi verður þannig með Iðrun. Samskipti mæðgnanna eru nefnilega meira en lítið áhugaverð og gaman væri að lesa meira um þau. Morgunblaðið/Kristinn Fær Hanne-Vibeke Holst lætur óskaplega vel að skrifa um fólk og hvers vegna það hegðar sér eins og það gerir, segir m.a. í gagnrýni um skáldsöguna Iðrun. Skáldsaga Iðrun mn Eftir: Hanne-Vibeke Holst. Vaka-Helgafell, 2013, 496 blaðsíður. ANNA LILJA ÞÓRISDÓTTIR BÆKUR Fyrsta flokks fjölskyldusaga Árni Páll Jóhannsson opnar kl. 20 í kvöld sýningu í Skúrnum að Greni- mel 7-9 í Reykjavík og ber hún yf- irskriftina A Slower Speed of Light. Sýningin verður opin allan sólar- hringinn en þar sem verkið er myrkraverk eru bestu aðstæður til að skoða það á meðan dimmt er, eins og segir í tilkynningu. Árni hélt sína fyrstu einkasýningu í Gallerí Súm árið 1976, hefur haldið átta einkasýningar og tekið þátt í á þriðja tug samsýninga, hér á landi sem erlendis. Árni Páll sýnir í Skúrnum við Grenimel Myrkraverk Verk Árna Páls í Skúrnum. Í tilefni af 150 ára afmæli Þjóð- minjasafns Íslands, sem haldið var upp á á sunnudaginn var, stendur Lýðháskólinn í Kaupmannahöfn fyrir málþingi nú um helgina. Þing- ið fer fram í Þjóðminjasafni Dana, Ny Vestergade 10, 1.-3. mars 2013 frá kl. 12.15-16.00 alla dagana. Ávörp flytja Per Kristian Mad- sen, safnstjóri Þjóðminjasafns Dana, og frú Vigdís Finnbogadótt- ir. Fulltrúar frá Þjóðminjasafni Ís- lands flytja erindi sem og danskir sérfræðingar. Málþing um þjóð- minjar í Danmörku Morgunblaðið/Eggert Afmæli Frá hátíðardagskrá í Þjóðminja- safninu á sunnudaginn var. Í Kaupmanna- höfn verður rætt um safnið um helgina. Fyrsta breiðskífa kvennasveit- arinnar Grúska Babúska verður gefin út í Bretlandi 1. apríl næst- komandi af breska útgáfufyrirtæk- inu Static Caravan. Platan verður einnig gefin út á netinu 14. apríl af íslensku útgáfunni Synthadelia Re- cords. Grúska Babúska er fyrsta ís- lenska hljómsveitin sem Static Ca- ravan sér um útgáfu fyrir. Á plötunni verða sex lög eftir hljóm- sveitina auk myndbands eftir Krist- ínu J. Þorsteinsdóttur. Grúska Ba- búska heldur í tónleikaferðalag vegna útgáfunnar og hefst það á Ís- landi með útgáfutónleikum í KEX Hosteli, 3. apríl nk. Viku síðar halda stöllurnar til Lundúna og halda þar þrenna tónleika 11.-14. apríl. Útgáfa Hljómsveitin Grúska Babúska gefur út sína fyrstu breiðskífu. Fyrsta plata Grúsku Babúsku væntanleg Ljósmynd/Úr myndasafni Grúsku Babúsku Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM Á TOPPNUM Í ÁR KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP BEAUTIFUL CREATURES KL. 5:20 - 8 - 10:40 BEAUTIFUL CREATURES VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40 FLIGHT KL. 5:30 - 8 - 10:10 WARM BODIES KL. 8 - 10:10 HANSEL AND GRETEL KL. 8:20 - 10:50 PARKER KL. 8 - 10:20 FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:50 ÖSKUBUSKA Í VILLTA VESTRINU ÍSLTALKL. 6 KRINGLUNNI BEAUTIFUL CREATURES KL. 8 - 10:40 THIS IS 40 KL. 5:10 - 8 - 10:45 THE IMPOSSIBLE KL. 8 BULLET TO THE HEAD KL. 10:20 FJÖLSKYLDUDAGARTILBOÐ590KR.MIÐAVERÐ MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 BEAUTIFULCREATURES KL.5:20-8-10:40 FLIGHT KL.5:20-8-10:10 ARGO KL.5:20-8-10:10 WARM BODIES KL. 5:50 - 8 PARKER KL. 10:30 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK BEAUTIFUL CREATURES KL. 8 FLIGHT KL. 10:40 THIS IS 40 KL. 8 BULLET TO THE HEAD KL. 10:20 AKUREYRI BEAUTIFUL CREATURES KL. 8 FLIGHT KL. 10:20 BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10:20 EMPIRE  EINFRUMLEGASTA GAMANMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ FÓRBEINT ÁTOPPINN ÍUSA TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA  R.EBERT ENTERTAINMENT WEEKLY 100/100 BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND 3ÓSKARSVERÐLAUNÞAR Á MEÐALBESTA MYNDIN Alden EHRENREICH Alice ENGLERT Jeremy IRONS Viola DAVIS Emmy ROSSUM Thomas MANN AND Emma THOMPSON DARK SECRETS WILL COME TO LIGHT.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.