Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nýtt félag hefur yfirtekið rekstur skógræktarstöðvarinnar Barra hf. á Fljótsdalshéraði. Í gær var gengið frá samningum um kaup Gróðrar- stöðvarinnar Barra ehf. á lausa- fjármunum og birgðum af þrotabúi Barra og leigusamningi við Byggðastofnun um fasteignirnar á Valgerðarstöðum í Fellum. Félagið mun ekki halda áfram rekstri gróðrarstöðvar á Tumastöðum. Fyrrverandi starfsmenn Barra beittu sér fyrir stofnun nýja fyrir- tækisins. Skúli Björnsson fram- kvæmdastjóri segir að tekist hafi að safna bindandi hlutafjárlof- orðum fyrir 18,5 milljónir kr. og meira sé eftir að bætast við. Skóg- arbændur og skógareigendur eru stærsti hluthafahópur nýja félags- ins ásamt sveitarfélögunum og starfsmönnum. Hlutafjárframlag sveitarfélag- anna miðast einkum við að halda áfram þróun nýrra verkefna til að skjóta styrkari stoðum undir rekst- urinn. Þar er einkum um að ræða stofnræktun á jarðarberjaplöntum og fleiri berjaplöntum fyrir íslensk- an markað. Skúli bendir á að 30-50 þúsund jarðarberjaplöntur séu fluttar inn með mold og öllu til- heyrandi. Töluverður markaður sé því fyrir framleiðsluna. Sala á skógarplöntum hefur dregist mikið saman í landinu auk þess sem Barri hefur tapað mark- aðshlutdeild. Skúli segir að fyrir- tækið hafi fáa fasta samninga og því ekki útlit fyrir aukningu í skóg- arplöntuframleiðslu fyrstu árin. Fyrirtækið er með tvö stór gróð- urhús á Valgerðarstöðum. Annað húsið verður tekið undir aðra rækt- un, væntanlega matjurtaræktun fyrir heimamarkað. Barri rekur gróðrarstöð á Tuma- stöðum í Fljótshlíð og hefur eign- irnar á leigu hjá Skógrækt ríkisins. Skúli sér ekki grundvöll fyrir áframhaldandi rekstri þar en von- ast til að einhverjir heimamenn verði tilbúnir að taka við honum. Nýtt fyrirtæki tekur við rekstri stöðvar Barra  Áhersla á stofnræktun jarðarberja- plantna og matjurtarækt Skipti Barri rak gróðrarstöð á Val- gerðarstöðum á Fljótsdalshéraði. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Vafasamt er að sameining rannsóknarnefnda sjó-, flug- og umferðarslysa í eina leiði af sér sparnað eins og lagt er upp með í nýjum lögum um rann- sóknir á samgönguslysum. Þetta segir Ingi Tryggvason, formaður rannsóknarnefndar sjó- slysa. Ný rannsóknarnefnd samgönguslysa tekur til starfa þann 1. júní en hún mun hér eftir rannsaka þau slys sem gömlu nefndirnar þrjár rannsökuðu áður. Í athugasemdum með frumvarpinu að lög- unum segir að með sameiningunni verði unnt að koma þekkingu og starfskröftum úr öllum nefnd- unum í eina sterkari sameinaða nefnd. Þannig sé unnt að efla og samnýta fagþekkinguna. Þá segir þar að rekstrarleg hagræðing felist í sameining- unni. Til dæmis muni nefndarmönnum fækka úr þrettán í heildina eins og nú er niður í sjö. „Við höfum gert athugasemdir við þetta frá upp- hafi og talið óheppilegt að sameina nefndirnar en þetta er búið að standa til í 4-5 ár,“ segir Ingi. Í lagi sé að sameina nefndirnar undir einni stofnun og samnýta húsnæði og starfsfólk en erfitt sé að sameina sérfræðiþekkinguna úr þremur nefndum í sjö mönnum. „Núna eru nefndirnar skipaðar sérfræðingum en það er ekki hægt að spanna eins vítt svið með sjö mönnum,“ segir hann og telur einsýnt að rann- sóknum á minniháttar málum verði hætt þegar sameinuð nefnd taki til starfa. Slík mál geti þó skipt verulegu máli. Þá telur Ingi að kostnaður vegna sérfræðiað- stoðar eigi eftir að vaxa eftir sameininguna. „Laun nefndarmanna eru í raun hlægilega lág og það má segja að menn líti á þetta sem áhuga- mál. Þau fáu skipti sem við höfum þurft að leita til sérfræðinga utan nefndarinnar fara mánaðar- laun nefndarmanna í nokkurra klukkustunda vinnu sérfræðinganna. Við teljum mjög vafasamt að þetta muni leiða af sér sparnað.“ Efast um gagn sameiningar  Rannsóknarnefndir sjó-, flug- og umferðarslysa sameinaðar í eina nefnd  Ný rannsóknarnefnd samgönguslysa tekur til starfa 1. júní  Á að skila sparnaði Samkvæmt lögunum verða for- stöðumönnum gömlu nefnd- anna boðin störf rannsóknar- stjóra hjá þeirri nýju þar til skipunartíma þeirra lýkur. Tveir starfsmenn rann- sóknarnefndar sjóslysa hafa verið í Stykkishólmi. Óvíst er hvort störf þeirra flytjast til Reykjavíkur. Nefndirnar funda með ráðuneytinu um framhaldið í dag. Tveir í Stykkishólmi FUNDAÐ Í DAG Guðni Einarsson gudni@mbl.is Norsk olíufyrirtæki hafa nú meiri áhuga á að leita að olíu í suðaustan- verðu Barentshafi og við Lofoten, Vesterålen og Senja við norð- vesturströnd Nor- egs en á Jan Ma- yen-svæðinu, að mati Rogers Ped- ersens, yfirmanns upplýsingamála hjá Norsk olje & gass. Það eru hagsmunasamtök olíufélaga sem tengjast leit og nýtingu olíu og gass á norska land- grunninu. Pedersen var einn fyrirles- ara á námsstefnu Norræna blaða- mannaklúbbsins í Norður-Noregi í síðustu viku. Hann var spurður hver hann teldi að yrðu næstu skref á norska landgrunninu við Jan Mayen. Fremur lítill áhugi hingað til Pedersen sagði búist við því að norsk stjórnvöld muni opna fyrir starfsemi á Jan Mayen-svæðinu fyrir næsta sumar. „Hingað til hefur áhugi fyrirtækja sem starfa á norska landgrunninu ekki verið sérlega mikill á þessu svæði,“ sagði Pedersen. Ástæðurnar eru m.a. þær að svæðið er mjög langt frá Noregi og að mörgu leyti óþekkt. Það verði því mjög krefjandi verkefni að nýta svæðið frá Noregi. Hann sagði að olíufyrirtækin hefðu meiri áhuga á svæðum sem lægju nær landi. Nú eru fjarlægustu olíuvinnslu- svæðin á norska landgrunninu um 200 km frá landi en Jan Mayen er tæpa 1.000 km frá Noregsströndum. Pedersen sagði að Norska olíu- stofnunin (Oljedirektorated) bindi vissulega miklar vonir við Jan Ma- yen-svæðið og niðurstöður hljóð- bylgjumælinga þar lofi góðu. Óvissan þar sé þó enn mikil og olíufyrirtæki sem starfi á norska landgrunninu hafi sýnt svæðinu lítinn áhuga. Hann vildi engu spá um tilraunaboranir við Jan Mayen. Möguleg aðstaða á Íslandi Pedersen bendir á að norska ríkis- olíufélagið Petoro eigi aðild að báðum sérleyfunum sem Íslendingar gáfu út varðandi oíuleit á íslenska hluta Drekasvæðisins. Fá önnur norsk fé- lög hefðu enn sem komið er lýst op- inberlega yfir áhuga á svæðinu, þótt þau kunni að hafa hann. Pedersen sagði og að hefji Íslend- ingar einhvers konar starfsemi tengda olíuvinnslu á svæðinu megi vel hugsa sér að einnig verði hafist handa á norska landgrunninu með aðstöðu á Íslandi. Norska landgrunnið og olían Heimild: Norsk olje & gass Opið fyrir olíustarfsemi Ekki opið fyrir olíustarfsemi Engin olíustarfsemi, né sérstakar áætlanir Opnunarferli er hafið Svæði tilbúin til úthlutunar Norsku landgrunnsmörkin Eldri mörk sem gert var tilkall til Áætluð ystu mörk setlaga sem gætu geymt olíu Jan Mayen Svalbarði Norður-Íshaf Norður-Barentshaf Suður-Barentshaf Ísland Noregshaf Rússland Finnland Svíþjóð Hjaltland Noregur Norðursjór Önnur svæði eru á undan Jan Mayen  Meiri áhugi er í Noregi á olíuvinnslusvæðum nær landi Roger Pedersen. Morgunblaðið/Árni Sæberg Langt í burtu Sigurður Ásgeirsson hjá Landhelgisgæslunni mælir vega- lengdina frá Jan Mayen til Íslands. Myndin er úr safni. Sími 555 2992 og 698 7999 VERIÐ VIÐBÚIN VETRINUM Hóstastillandi og mýkjandi hóstasaft frá Ölpunum NÁTTÚRUAFURÐ úr selgraslaufum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.