Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í 18 mánaða fang- elsi fyrir að hafa brotið kynferðis- lega gegn barnabarni sínu. Þá var manninum gert að greiða barninu 800 þúsund krónur í miskabætur auk einnar milljónar króna í sakar- kostnað. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið þrívegis á stúlkubarni á tímabilinu 2009-2011, tvisvar á heimili sínu og einu sinni í tjaldi á tjaldsvæði. Upp komst um málið þegar stúlkan upplýsti umsjónar- kennara sinn, í kjölfar umræðna í bekknum um kynferðislegt ofbeldi, að hún hefði orðið fyrir kynferð- islegu ofbeldi af hendi afa síns á heimili hans. Maðurinn neitaði sök og sagðist ekki minnast þess að hafa snert stúlkuna með þeim hætti sem greindi í ákæru. Í yfirheyrslum bar maðurinn, að hann hafi á umræddu tímabili verið ofdrykkjumaður, drukkið daglega og iðulega misst minnið vegna drykkju. Ákæran byggðist á framburði sem stúlkan gaf við rannsókn máls- ins. Fram kemur í dómnum, að framburður hennar hafi verið skýr og skilmerkilegur miðað við aldur hennar og jafnframt stöðugur og í innbyrðis samræmi, þrátt fyrir að við skýrslutökuna væri farið nokk- uð fram og til baka milli atburða. Braut gegn barnabarni  Dæmdur í 18 mánaða fangelsi Dómur Héraðsdómur Austurlands. „Það segir manni bara eitt, að ráð- herrann hafi haft þann eina ásetning að stoppa rannsókn íslensku lögregl- unnar á þessu máli, allavega grípa inn í,“ sagði Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, í umræðum á Alþingi í gær um þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að stöðva samstarf íslenskra lögreglu- yfirvalda við bandarísku alríkislög- regluna FBI sumarið 2011. Vísaði hún til fundar allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í gær. Eftir þann fund sagði Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylk- ingarinnar og formaður nefndarinn- ar, við mbl.is að atburðarásin hefði verið rakin en ekkert nýtt í sjálfu sér komið fram. Fundurinn hafi staðfest þá skoðun hans, að ráðu- neytið hafi farið fram með eðlilegum hætti. Þorgerður Katrín sagði hins veg- ar að á fundinum í gær hefði komið ótvírætt fram að ráðherra hefði enga heimild haft eða forsendur til að trufla rannsókn íslensku lögreglunn- ar á máli sem m.a. leiddi til rann- sóknar í Bandaríkjunum. „Þetta er mál sem má ekki sofna því við erum orðin uppvís að því að hið pólitíska framkvæmdavald, póli- tískur ráðherra, hefur með ásetningi gripið inn í sjálfstætt ákæruvald. Málið er grafalvarlegt,“ sagði hún. Mál sem ekki má sofna Morgunblaðið/Ómar Á þingi Alþingismenn hlýða á umræður í þinghúsinu.  Þingmenn ósammála um hvort afskipti ráðherra af rann- sókn FBI hér á landi hafi verið eðlileg eða ekki Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði á mánudagskvöld ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglu var maðurinn færður á lögreglustöð, þar sem sýnatökur staðfestu neyslu hans á amfetamíni. Hann var með átta grömm af amfetamíni á sér og við leit á heimili hans fannst lítilræði af amfetamíni til viðbótar. Lögreglan á Suðurnesjum hand- tók nýverið sama mann vegna akst- urs undir áhrifum amfetamíns. Hann játaði þá, auk fíkniefnaakst- ursins, að hafa selt fíkniefni. Við húsleit heima hjá honum í það skipti fundu lögreglumenn 100 grömm af amfetamíni, sem hann hafði að stærstum hluta komið fyrir í frysti. Að auki fannst lítilræði af kannabisefnum. Ók ítrekað undir áhrifum Það tekur stutta stund að gefa blóð. Atvinnurekendur! Auðveldum starfsfólki að gefa blóð og bjarga mannslífum. Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðarforstjóri Marel hf. BRETTUM UPP ERMAR GEFUM BLÓÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.