Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu óhræddur við að viðra skoðanir þínar og láttu menntasnobb annarra ekki hafa nokkur áhrif á þig. Vertu bjartsýnn. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér finnst öll spjót standa á þér og langar mest að draga þig í hlé. Reyndu að vinna bak við tjöldin til að skapa rými fyrir þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ekki rétti tíminn núna til að vænta stöðuhækkunar. Aðrir ætlast til að þú skapir eftir pöntunum. En kröfur þeirra skaltu láta sem vind um eyru þjóta. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur lofað svo upp í ermina á þér að þú verður að sætta þig við að komast hvorki lönd né strönd fyrr en allt er frá. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Efasemdir um vin læðast að þér. En gætið þess að ganga ekki of langt því hver er sinnar gæfu smiður. Gerðu eitthvað til að gera heimili þitt meira aðlaðandi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Veittu tilfinningunni athygli og forðastu gildr- ur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vogin hefur velt því fyrir sér upp á síð- kastið hvernig hún á að fara að því að vinna skynsamlegar, í stað þess að vinna sífellt meira. Reyndu að vera hugrakkur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Í samstarfi hefst ekkert án mála- miðlana. Eins og stendur hefurðu meiri trú á innsæi þínu en rökhugsun. Búðu þig undir samkeppni sem þú átt að geta sigrast á. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Samskipti við vini munu leiða til nýrrar reynslu sem gefur þér betri innsýn í umheiminn. Kannski er ástæðan sú að þú hefur framkvæmt í stað þess að hafa áhyggj- ur upp á síðkastið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er ekki slæmt að þarfnast pínulítið meiri ástar en vanalega. Margt er sagt í öfund og afbrýðisemi en þú skalt láta vera að detta niður á það plan. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert eitthvað orkulaus í dag og því er hætt við að þú búir ekki yfir nægilegu sjálfstrausti til að verja hagsmuni þína. Líttu á atburði dagsins sem vísbendingu um það sem koma skal. 19. feb. - 20. mars Fiskar Flest virðist ganga þér í haginn en gættu þess að ganga ekki á rétt annarra því þá getur margt farið úrskeiðis. Hlýja þín er hjálp hinna ráðalausu. Hjálmar Freysteinsson bregður áleik í limru: Þegar Friðþjófur flaug með SAS fékk hann sér ærlega í glas, fyrst greip hann kæti, svo flugdólgslæti, seinast fór hann að bíta gras. Friðrik Steingrímsson prjónar við limruna: Í ölæði gáskinn þá greip’ann og gargand’í farþega kleip’ann sem nóg af því fengu og fram í því gengu. að tak’ann úr umferð og teip’ann. Á dögunum birtist í Vísnahorninu slitra eftir Elías Mar um Jósep Thorlacius frá því um 1946. Árni Björnsson skrifar í framhaldi af því: „Ég man eftir annarri sem hlýtur að vera mun eldri, en ég veit ekki hversu gömul né eftir hvern hún er. Ég heyrði Einar Magnússon menntaskólakennara fara með hana og hún er líklega úr rímum um her- hlaup Alexanders mikla í Austur- lönd nær: Archipela- yfir gus öðling sigla náði. Fjöllum Káka- fram í sus fólkorrustu háði. Fyrir þá sem ekki muna hvað Archipelagos er, þá mun það vera latneskt heiti á gríska Eyjahafinu.“ Jóhann Gunnarsson bendir á að í Vísnasafni Skagfirðinga sé slitran eignuð Andrési Björnssyni frá Brekku. Hann rifjar upp að Valdi- mar Briem hafi gert á henni bragar- bót, ekki fundist hún nógu dýrt kveðin, og vitnar þar í Lesbók Morg- unblaðsins 18. desember árið 1995: Arki- sjáinn yfir -pela- öðling frá eg sigla-gus. Hann við Gága- harða -mela hosti-máir líf af -bus. „En af vísunni sem Árni fer með er til önnur útgáfa, einnig sótt í Les- bók Morgunblaðsins, 50. tölublað, desember 1939, bls. 398. Doktor pró- fessor Magnús Jónsson frá Hvammi segir þar Þorstein bróður sinn vera höfund að eftirfarandi: Arkipela- yfir gus öðling sigla náði. svo á omni- einum - bus ók á Persaláði.“ Björgvin R. Leifsson þakkar slitr- urnar: U vil kveða eina slitr, af því hefi gaman. Á af huga a ég glitr alveg hreint að framan. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af flugdólgslátum, limr- um, fólkorrustu og slitrum Í klípu „ÞETTA ER EKKI MÉR AÐ KENNA, OKKUR VAR GEFIÐ GOTT ÁN ÞESS AÐ VIÐ YNNUM FYRIR ÞVÍ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVERNIG Á ÉG AÐ GETA DREGIÐ TÖNNINA ÚR ÁN ÞESS AÐ SNERTA HANA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... töfrum líkust. EI NK UN NI R ÁÐUR EN LENGRA ER HALDIÐ VERÐ ÉG AÐ FÁ AÐ SJÁ RÁN- OG GRIPDEILDARLEYFIÐ YKKAR. HÆTTU AÐ RISTA BRAUÐ! NÚ? ÁTTI ÉG EKKI FÁ MÉR ÁHUGAMÁL? Um miðja liðna viku lamaði blind-bylur umferð á höfuðborgar- svæðinu og mælt var með því að fólk héldi kyrru fyrir. Mitt í óveðrinu ók Víkverji eftir Hringbrautinni og sá þá hvar maður kom á hjóli út úr hríð- armuggunni eins og ekkert hefði ískorist. Á sama tíma sátu menn fast- ir út um allar trissur. Um helgina var síðan skollið á blíðskaparveður að nýju, sól skein í heiði, fuglar sungu og hiti vel yfir frostmarki. Svei Vík- verja ef ekki var vorblær í lofti. Í það minnsta minnti ekkert á óveðrið, sem allt setti á annan endann nokkrum dögum áður og gerði höfuðborgar- búa ugglaust nokkuð hlægilega í aug- um þeirra landsmanna, sem búið hafa við fannfergi í allan vetur. x x x Víkverji skilur ekki alltaf hvað ræð-ur verðlagi. Sérstaklega finnst honum furðulegt hversu oft dýrara er að kaupa vörur í stórum pakkn- ingum en litlum. Nýverið var hann í verslun og reiknaðist til að einfaldur pakki af Kókópöffsi, sem snúið hefur aftur í amerískri útgáfu, var hlut- fallslega ódýrari en tvöfaldur pakki. Sama átti við um ávaxtasafa, eins lítra brúsi var hlutfallslega ódýrari en tveggja lítra. x x x Víkverji hélt að fídusinn á bak viðstórar pakkningar væri að höfða til sparnaðarvitundar neytandans og lokka hann til að kaupa meira gegn því að hann borgaði minna. Kannski er þessi lógík svo innprentuð í neyt- andann að hann kaupir ósjálfrátt stóru pakkninguna án þess að athuga hvort það sé yfirhöfuð hagstæðara – gerir bara ráð fyrir að svo sé. x x x Víkverji er reyndar vís til þess aðhegða sér með þessum hætti – hann er einn af þeim neytendum sem eins gætu verið með bundið fyrir augun – og hrein tilviljun að hann skoðaði verðið. Fyrir vikið keypti hann minni pakkningarnar og tóku nýlenduvörurnar því minna pláss í skápunum þegar heim var komið en ella og buddan var aðeins þyngri, þótt ekki væri hún beinlínis sligandi. víkverji@mbl.is Víkverji Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld því að frá honum kemur von mín. Hann einn er klettur minn og hjálp- ræði, vígi mitt, mér skrikar ekki fótur. (Sálmarnir 62:6-7) Vandaðir og vottaðir ofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is 10 - 50% LAGERSALA Á THOR MIÐSTÖÐVAROFNUM Allt að afsláttur á völdum ofnum *ATH. Lagersalan gildir út mars 2013 Eura L Eura C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.