Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 ✝ Rannveig Þor-gerður Jónsdóttir fæddist í Bolungarvík 24. ágúst 1927. Hún lést á Hrafnistu í Boðaþingi 27. febr- úar 2013. Faðir Jón Leví Friðriksson, sjó- maður, f. 1. sept- ember 1886, d. 31. október 1970. For- eldrar Jóns voru Friðrik Jóns- son, pósts og bóndi Svalbarða, Álftanesi, og Guðrún Jónsdóttir. Móðir Guðrún Jónsdóttir, f. 23. maí 1885, d. 30. mars 1967, Mið- dal í Bolungarvík. Foreldrar Guðrúnar voru Jón Örnólfsson, bóndi Miðdal í Bolungarvík, og Rannveig Engilbertsdóttir frá Vatnsfirði í Ísafjarðardjúpi. Systkin: Ásdís Guðrún Pálína Jónsdóttir, f. 30.4. 1919, d. 16.1. 1946, Friðrik Guðmundur Albert Jónsson, f. 1.1. 1921, d. 20.5. 2007, Halldór Sófus Jónsson, f. 26.2. 1923, d. 24.1. 1982, Jón Örn- ólfs Jónsson, f. 20.3. 1926, d. 9.2. 1946, Hrefna Levi Jónsdóttir, f. 1990, Jón Daníel Jóhann, f. 15. febrúar 1995, Örnólf Ágúst, f. 5. janúar 1998, og Ágústu Mar- gréti, f. 15. nóvember 1999. 3) Magni Gunnar, arkitekt, Frakk- landi, f. 24. apríl 1967. Maki Mar- ie-Ange Roms Steindórsson, Frakklandi. Magni Gunnar og Marie-Ange eiga þrjá syni. Max- imilien Magni, f. 1. maí 1993, Jó- hann Nicolas, f. 19. apríl 1995, og Florian Pierre, f. 29. janúar 1999. Rannveig útskrifaðist sem ljósmóðir með ljósmæðrapróf LMSÍ 1. október 1950. Hún starf- aði sem ljósmóðir, fyrst í Reyk- hóla- og Geiradalshreppi 1951- 30. desember 1952; tók síðan á móti nokkrum börnum í Kópa- vogi 1954-1966. Þá fór hún að vinna sem hjúkrunarstarfs- maður á Elliheimilinu Grund, Reykjavík 1. júní 1976-6. nóv- ember 1977; einnig á Kópavogs- hæli 9. október 1978-30. júní 1979; þá fór hún í sumarafleys- ingar hjá Heilsuverndarstöð Kópavogs, mæðradeild, 1979. Síðast starfaði hún við aðhlynn- ingu á Hrafnistu, Reykjavík - nóvember 1997. Rannveig var mjög virk í starfi fyrir Íþrótta- félag Kópavogs og Kirkjufélag Digranessóknar. Útför Rannveigar fer fram frá Digraneskirkju í dag, 13. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 15. 26.10. 1929, d. 21.6. 1991. Samfeðra: Kristinn Jón Leví Jónsson, f. 29.9. 1916, d. 26.11. 2005. Rannveig Þor- gerður ólst upp frá tveggja ára aldri hjá móðurforeldr- um og Margréti Sal- ome móðursystur sinni, Ytri-Búðum í Bolungarvík. Rannveig giftist 17. apríl 1954 Steindóri Daníelssyni, múrara Kópavogi, f. 10. september 1923, d. 13. mars 2002, Guttormshaga, Holtum, Rangárvallarsýslu. Syn- ir þeirra eru: 1) Rafn Hagan, f. 27. ágúst 1956. Maki Sigrún Guð- jónsdóttir, Hvolsvelli. Rafn á einn son, Emanúel Rafnsson, f. 6. ágúst 1981. Emanúel á tvær dæt- ur. 2) Jón Örnólfur, múr- arameistari Kópavogi, f. 13. október 1961. Maki Ágústa Magnea Jónsdóttir ritari, Reykjavík. Jón Örnólfur og Ágústa eiga fimm börn, tví- burana Magneu Hildi og Guð- rúnu Þorgerði, f. 15. janúar Sofðu vært hinn síðsta blund, uns hinn dýri dagur ljómar, Drottins lúður þegar hljómar hina miklu morgunstund. (Vald. Briem) Mikil vinkona mín hefur nú kvatt þetta líf eftir langan vinnudag. Þessi vinkona mín fylgdist með mér frá fæðingu og var meira að segja viðstödd hana. Ef til vill fannst henni eins og hún ætti dálítinn hlut í mér fyrir bragðið. Mig langar í örfáum orðum til þess að minn- ast Rannveigar Þorgerðar Jónsdóttur, sem lést að Hrafn- istu við Boðaþing þann 27. febrúar 2013, á 86. aldursári. Rannveig var Bolvíkingur og A-Húnvetningur að ætt og upp- runa og var ljósmóðir lungann úr starfsævi sinni, en starfaði einnig á Hrafnistu í Reykjavík um tíma. Hún var gift Steindóri Daníelssyni, múrarameistara frá Guttormshaga í Holtum í Rangárþingi. Fluttu þau hjónin til Kópavogs árið 1956 og voru á meðal frumbyggja hins unga kaupstaðar. Bjuggu þau þar síðan, á meðan bæði lifðu. Eignuðust þau þrjá syni sem allir lifa foreldra sína og hafa eignast afkomendur. Steindór var sérlega glaðsinna maður og mun tístandi og smitandi hlátur hans mér aldrei úr minni líða. Nokkur kaflaskil urðu í lífi hennar við andlát Steindórs í mars árið 2002 og í framhaldi af því auðnaðist mér að kynn- ast henni enn betur. Rannveig var yndisleg kona sem naut þess að gefa af sér, bráðskýr og minnug. Mér þótti alltaf gott að koma til hennar í dagsins önn, spjalla við hana um lífið og tilveruna og einatt enduðu heimsóknirnar á því að við átt- um ljúfar bænastundir, enda var hún trúuð kona. Oft hringdi hún til mín og bauð mér í heim- sókn. Hún fylgdi mér einnig stundum til guðsþjónustu eða messu þegar mér bauðst að prédika og nokkrum sinnum fórum við saman til Bolvíkinga- guðsþjónustu og í kaffi í Bú- staðakirkju, sem þar er jafnan fyrri hluta októbermánaðar ár hvert. Fyrir tveimur árum bauð hún mér einnig á þorrablót Bol- víkingafélagsins og lét hún sig ekki muna um að koma upp á efstu hæð Turnsins í Kópavogi, komin nokkuð á níræðisaldur. Einnig var gaman að ræða við hana um stjórnmálaástandið og oft skellti hún sér á lær þegar það bar á góma. Já, þær eru margar, minn- ingarnar sem leita á hugann þegar Rannveig Þorgerður Jónsdóttir er kvödd í hinsta sinn. Auðmjúkur þakka ég fyrir samfylgdina og góð kynni. Guð blessi minninguna um þau hjónin og megi hið eilífa ljós lýsa þeim í ríki hins hæsta. Hvíli þau í friði. Aðstandendum þeirra öllum votta ég mína dýpstu samúð. Þorgils Hlynur Þorbergsson. Hún Rannveig ljósa mín er dáin. Ég heimsótti hana á Landakotsspítala fyrir nokkr- um vikum og það var í síðasta skiptið sem ég sá hana. Við spjölluðum saman í góða stund og höfðum bæði gaman af því. Undir lokin dvaldi hún á hjúkr- unarheimili Hrafnistu í Boða- þingi, þar sem hún lést. Rann- veig nýtti sér engin öldrunarúrræði fyrr en í lengstu lög. Hún var dugleg og sjálfstæð kona og vildi búa ein í stóra húsinu sínu eins lengi og hún gat, í stað þess að fara inn á stofnun. Minningarnar um gamla góða tíma í brekkunni á Digra- nesveginum koma upp í hug- ann, þar á meðal leikur okkar krakkanna á grasfletinum á lóðinni hjá Steindóri og Rann- veigu. Mjólkursopi og kökur við eldhúsborðið hjá Rannveigu og skemmtilegar stundir fyrir framan sjónvarpið í stofunni hjá þeim hjónum. Það var nefnilega ekki almennilegt sjónvarp á öllum heimilum á þessum árum. Það var mikill vinskapur á milli foreldra minna og þeirra Rannveigar og Steindórs. Þetta fólk kom allt úr sveit og hafði hjálpast að í upphafi búskap- arins í Digranesbrekkunni, al- veg eins og sönnum frumbyggj- um sæmir. Sá vinskapur sem þarna myndaðist varði alla æv- ina og bar aldrei skugga á hann. Faðir minn og Steindór höfðu kynnst, þá ungir sveita- piltar nýfluttir til Reykjavíkur í atvinnuleit. Sá vinskapur leiddi þá í ferðalag til Danmerkur þar sem þeir gerðust vinnumenn á sveitabæjum. Eftir að foreldrar mínir fluttu inn í nýbyggt hús sitt í Digranesbrekkunni bjuggu Rannveig og Steindór hjá þeim meðan þau kláruðu sitt hús. Það var bara ein lóð á milli húsanna og mikil sam- gangur á milli heimilanna. Rannveig var lærð ljósmóðir og tók á móti mér í stofunni heima. Ég kallaði hana alltaf „ljósu mína“ fyrir vikið. Við átt- um smávegis hvort í öðru ég og ljósa mín, því ég var jú fyrsta barnið sem hún tók á móti í Kópavogi. Rannveig var mjög trúuð og kirkjurækin og sótti messur í Digraneskirkju, eftir að kirkjan var tekin í notkun í Kópavogs- dalnum. Hún tók líka virkan þátt í safnaðarstarfinu. Eftir að Steindór féll frá bjó hún ein í sínu stóra húsi. Ég hugsa að hún hafi verið mjög einmana. En hún átti gamlar og góðar vinkonur og nágranna sem kíktu inn hjá henni eftir atvik- um. Þannig fékk ég fréttir af Rannveigu í gegnum móður mína, sem var í reglulegu sam- bandi við hana. Rannveig og Steindór eign- uðust þrjá syni. Rafn Hagan er búsettur á Hvolsvelli, Jón Örn- ólfur er búsettur í Kópavogi og Magni Gunnar býr í Frakk- landi. Eftir að ég stofnaði fjöl- skyldu passaði Rannveig dyggi- lega upp á að senda mér og mínu fólki jólakort sem alltaf báru trúfesti hennar og hjarta- hlýju skýr merki. Okkur fannst reyndar engin jól vera komin fyrr en kortið frá „ljósu minni“ datt inn um lúguna. Hún hafði líka oftast samband við mig á afmælisdaginn minn og mér þótti vænt um það. Að leiðarlokum vil ég þakka Rannveigu fyrir gamlar og góð- ar stundir og hlýhug til mín og minna og bið Guð um að blessa minningu hennar. Elsku Rabbi, Nonni og Magni, við sendum ykkur og fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. Arnór Heiðar Arn- órsson og fjölskylda. Elskuleg vinkona mín og ná- grannakona, Rannveig Þor- gerður Jónsdóttir ljósmóðir, er látin. Okkar leiðir lágu saman fyrir nærri sextíu árum. Eig- inmenn okkar, Arnór minn maður og Steindór maður Rannveigar, voru góðir vinir, en þeir kynntust í Reykjavík, þá ungir sveitastrákar nýfluttir á mölina. Vinskapur þeirra stóð alla ævi, en þeir eru báðir falln- ir frá. Málin þróuðust þannig að báðar fjölskyldurnar ákváðu að byggja sér hús í Kópavogi. Það var ein lóð á milli okkar. Ég og Arnór eiginmaður minn, feng- um lóð í Digranesbrekkunni í júní árið 1953 og fluttum inn í mars 1954. Þá um vorið fluttu Rannveig og Steindór inn til okkar og byrjuðu að byggja sitt hús. Þau bjuggu hjá okkur meðan þau gerðu húsið sitt íbúðarhæft. Þetta var skemmti- legur tími og sambúðin hjá okkur gekk mjög vel. Rannveig var lærð ljósmóðir. Hún tók á móti mínu fyrsta barni, sem var drengur og fæddist í stofunni heima hjá okkur 28. júlí árið 1954. Þetta var jafnframt fyrsta barnið sem Rannveig tók á móti í Kópa- vogi, en hún tók á móti fleiri börnum í bænum næstu árin. Fæðingar í heimahúsum voru mjög algengar á þessum árum og Rannveig þótti góð og nær- gætin ljósmóðir og vann starf sitt af mikilli samviskusemi. Það voru ýmsar skrítnar til- viljanir í lífi okkar Rannveigar. Til dæmis vildi svo til að við giftum okkur sama daginn en hvorug vissi um það fyrr en eft- ir á. Í þau rúmlega 50 ár, sem við Rannveig vorum nágrannar í Digranesbrekkunni, var mikill samgangur á milli okkar. Eftir að menn okkar létust héldum við sambandi okkar áfram og hittumst nokkuð reglulega, þó að ég hefði fært mig um set innan bæjarmarkanna. Þegar ég hitti Rannveigu síðast var hún flutt í Boðaþing. Heilsunni hafði hrakað mikið og hún var orðin rúmliggjandi. Rannveig var stolt af vest- firskum uppruna sínum, en hún var líka einn af frumbyggjum Kópavogs. Mér finnst því vel við hæfi að kveðja vinkonu mína með fyrsta erindinu úr ljóðinu Kópavogsbær eftir Þor- stein Valdimarsson. Vagga börnum og blómum, borgin hjá vogunum tveimur. Risin einn árdag úr eyði – heill undrunar heimur; og blikið í bernskum augum er bros gegnum tár sögunnar, sem oss fæddi og signir oss þurrar brár. Rannveig mín, bestu þakkir fyrir góðan vinskap í gegnum árin. Guð blessi minninguna um þig. Elsku Rafn Hagan, Jón Örn- ólfur og Magni, við Guðbjörn Bjarni og Þuríður sendum ykk- ur og fjölskyldum ykkar sam- úðarkveðjur okkar. Svanfríður Ingunn Arnkelsdóttir. Rannveig Þorgerð- ur Jónsdóttir ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU MARGRÉTAR FRIÐRIKSDÓTTUR. Einstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilinu Hlíð fyrir frábæra umönnun. Fanney Rósa Jónasdóttir, Jónas Jose Mellado, Ásta Hrönn Jónasdóttir, Aðalsteinn Baldursson, Heiðrún Hulda Jónasdóttir, Sigurmar Gíslason, Lilja Margrét Jónasdóttir, Erna Guðný Jónasdóttir, Þröstur Magnússon, Jenný Edda Jónasdóttir, Jón Benóný Hermannsson, Sandra Friðriks Jónasdóttir, Eiríkur Ellertsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður Grandavegi 47, er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Matthildur Björnsdóttir, Malcolm Shephard, Anna Sigríður Björnsdóttir, Einar Bergmann Gústafsson, Inga Dóra Björnsdóttir, Björn Birnir, Helga Birna Björnsdóttir, Kristinn Hallgrímsson, Sigrún Björnsdóttir, Magnús Stephensen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR ÓLAFSSON, fv. útibússtjóri, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 15. mars. Athöfnin hefst kl. 13.00. Erla Björgvinsdóttir, Hildur Halldórsdóttir, Jónas Kristjánsson, Ólafur Brynjar Halldórsson, Halldór Jónasson, Helga Jónasdóttir. ✝ Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi, TRYGGVI ÓLAFSSON, Skeiðflöt í Mýrdal, lést á Hjallatúni, dvalarheimili aldraðra í Vík, þriðjudaginn 5. mars. Útför hans verður gerð frá Skeiðflatarkirkju laugardaginn 16. mars kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hins látna láti Skeiðflatarkirkju njóta þess, reikningsnr. 0317-13-300261, kt. 590269-0699. Eyþór Ólafsson, Sæunn Sigurlaugsdóttir, Sigurður Ó. Eyþórsson, Svafa K. Pétursdóttir, Halldór I. Eyþórsson, Sigríður E. Sigurðardóttir, Reynir Örn Eyþórsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Jón Þór Grímsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÓSINBERG GÍSLASON, Nesvegi 44, Reykjavík, lést fimmtudaginn 7. mars. Útför hans fer fram frá Neskirkju mánudaginn 18. mars kl. 13.00. Leifur Rósinbergsson, Kristín Pálsdóttir, Kristín Rósinbergsdóttir, Guðrún Rósinbergsdóttir, Páll Hólm Hrefna Rósinbergsdóttir, Guðjón Elí Sturluson, Steinunn Steinþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra EGILS GR. THORARENSEN, Bólstaðarhlíð 50, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólkinu á Mörk fyrir frábæra umönnun og hlýju. Ásdís Matthíasdóttir, Grímur Thorarensen, Lilja Andrésdóttir, Egill Thorarensen, Darri Már Grímsson, Kristín Thorarensen, Örn Vigfússon, Guðríður Thorarensen, Þórður Ásgeirsson, Guðlaugur Thorarensen, Gloría Thorarensen, Daníel Thorarensen, Sigurður Thorarensen, Áslaug Guðmundsdóttir. ✝ Elskulegi maðurinn minn, faðir okkar og sonur, STEFÁN JÖKULL JÓNSSON, Miðhúsum, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 11. mars. Viktoría Sigrún Böðvarsdóttir, Herdís Ósk og Ásrún Fjóla Stefánsdætur, Jón St. Gíslason, Sigríður Garðarsdóttir og aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.