Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 17

Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 17
BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Landmælingar Íslands gætu lokið við gerð kortagrunns um vegi og vegslóða á hálendi Íslands á tveim- ur árum, að því gefnu að fjármagn fáist til að ljúka kortlagningunni og að sveitarfélögin ljúki skipulags- vinnu þ.e. að taka ákvarðanir um hvaða vegir og slóðar eigi að vera opnir almennri umferð. Þetta segir Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmællinga Íslands. Í frumvarpi til nýrra náttúru- verndarlaga er mælt fyrir um op- inberan kortagrunn um vegi og vegslóða sem heimilt er að aka um. Þegar umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um kortagrunninn telst akstur utan þeirra vega og slóða í kortagrunninum vera utanvega- akstur. Áform um kortagrunninn hafa verið gagnrýnd m.a. af hópn- um sem stendur á bak við Ferða- frelsi.is. Ekkert kortlagt frá 2009 Fram til ársins 2009 höfðu Land- mælingar Íslands og Ferðaklúbb- urinn 4x4 um árabil unnið saman verkefni sem fólst í að í að aka vegi og slóða á hálendinu og skrá GPS- hnit þeirra niður. Viðkomandi sveit- arfélög eða þjóðgarðar eiga síðan að taka afstöðu til þess hvort slóð- arnir eigi að vera lokaðir eða opnir. Magnús segir að eftir 2009 hafi ekkert verið unnið að verkefninu vegna fjárskorts. Eftir sé að fara um slóða víða á hálendinu, ekki síst austanlands, og hann gerir ráð fyrir að það taki um tvö sumur að kort- leggja þá. Að því gefnu að sveitar- félögin ljúki sinni vinnu hratt og örugglega ætti kortagrunnurinn því að geta orðið tilbúinn eftir um 2-3 ár. Slíkur grunnur verði þó aldrei fullgerður enda breytist vegir, nýir bætist við og öðrum verði hugsan- lega að loka. Kortlagning á vega- slóðum á láglendi, þ.e. þeim sem eru utan hins hefðbundna vegakerf- is, er ekki hafin með markvissum hætti og Magnús segir að hún geti hugsanlega reynst flóknari. Menn þurfi þó ekki að hafa áhyggjur af því að hefðbundnum slóðum, t.d. upp með veiðiám verði lokað. Vilja traustar upplýsingar Með breyttri tækni verður útgáfa rafrænna korta af Íslandi sífellt einfaldari og nokkur fyrirtæki hafa haslað sér völl á þessu sviði, bæði innlend og erlend, s.s. Google. Magnús bendir á að erlendir ferðamenn reiði sig umfram allt á kort hvort heldur er á pappír, í leiðsögukerfum eða í tölv- um og símum. Erlendir ferðamann hafa þeir almennt ekki staðþekkingu á Íslandi og því mikilvægt að þeir geti fengið traustar upplýsingar um hvar megi aka. Tvö ár til að ljúka kortlagningu  Ef fjármagn fæst gætu Landmælingar Íslands lokið við að kortleggja vegi og slóða á hálendinu á tveimur sumrum  Eftir að fara um slóða víða á hálendinu, einkum austanlands  Aldrei fullgerður Morgunblaðið/RAX Umferð Í umsögn Landmælinga um frumvarpið segir að stafræni kortagrunnurinn sé mikilvægt skref í þá átt að stýra umferð og koma í veg fyrir óafturkræf umhverfisspjöll. Myndin er frá Fossabrekkum við rætur Heklu. FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 Dæmi eru um að vegaslóðar sem löngu eru aflagðir hafi ratað inn á nýleg GPS-kort. Skúli H. Skúlason, fram- kvæmdastjóri Útivistar, segir að gamall slóði sem lá að hluta um Þjórsárver hafi verið settur inn á kort en verið tek- inn út þegar ábendingar bár- ust. Þá hafi slóði úr Hólmsár- botnum inn að Strútslaug verið setttur inn á pappírskort fyrir nokkru. Morgunblaðið hefur sagt frá fleiri dæmum um slíka villu- slóða á pappírskortum. Hver sem er getur gefið út landa- kort, á pappír eða tölvutæku formi og enginn fylgist með hvort réttar upp- lýsingar komi þar fram. Skúli segir nauðsyn- legt að kortagrunnur af hálendinu verði tekinn í notkun. „Það er nauð- synlegt að það sé skipu- lag á hálendinu en síðan geta menn deilt um hvað eigi að fara inn á skipu- lagið,“ segir hann. Skipulag nauðsynlegt VILLUSLÓÐAR Í GPS-UM Hyundai Santa Fe Comfort 2,2 dísil, sjálfskiptur. Verð 7.650 þús. kr. Eyðsla 6,6 l/100 km* HYUNDAI SANTA FE SPARNEYTINN DÍSILJEPPI NEW THINKING. NEW POSSIBILITIES. Kauptúni 1 - 210 Garðabæ 575 1200 - www.hyundai.is Verið velkomin í kaffi og reynsluakstur í dag milli kl. 10–16 * M ið as t vi ð bl an da ða n ak st ur sa m kv æ m t fr am le ið an da E N N E M M / S ÍA / N M 4 6 9 4 1 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070Hyundai / BL ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.