Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 18

Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 18
Ryanair Pantaði 200 Boeingþotur. Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur lagt inn pöntun á 200 Boeing- þotum en samkvæmt listaverði er pöntunin upp á 18 milljarða Banda- ríkjadala, 2.283 milljarða króna. Greint er frá þessu í Irish Indep- endent. Munu þeir Barack Obama Banda- ríkjaforseti og forsætisráðherra Ír- lands, Enda Kenny, staðfesta pönt- unina í næstu viku á fundi í Hvíta húsinu. Er þetta stærsta flugvéla- pöntun Ryanair frá stofnun flug- félagsins, samkvæmt fréttinni í morgun. Talsmaður Ryanair vildi ekki staðfesta fréttina þegar AFP- fréttastofan hafði samband í gær- morgun. Ætlunin mun vera sú að skipta út einhverjum þeirra 737 Boeing- þotna sem nú eru í notkun hjá Ryanair en eins verður um fjölgun að ræða í flugflota Ryanair. Ryanair pantar 200 Boeingþotur  Stærsta pöntun félagsins frá upphafi 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013 „Ráðuneytinu er ekki kunnugt um neinar vanefndir af hálfu kaup- enda. Frávik frá efni upphaflegs kaupsamnings hafa verið með sam- þykki ráðuneytisins,“ segir í svari Katrínar Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn frá Margréti Tryggvadóttur, þing- manni Hreyfingarinnar, varðandi sölu ríkisins á Símanum árið 2005. „Kaupverð samkvæmt kaup- samningi var greitt. Kaupendur greiddu fyrir allar þær eignir sem þeir fengu afsal fyrir. Í einhverjum tilvikum fékk félagið tímabundin afnot af landi ríkisins vegna þegar starfræktra fjarskiptamannvirkja og fjarskiptamastra á meðan þau eru nýtt með þeim hætti,“ segir í svari ráðherrans. Þá spurði þingmaðurinn um umsamið kaupverð og hversu mik- ið af því hefði verið greitt. Í svarinu segir að söluverðið sam- kvæmt kaupsamningi hafi verið 66,7 milljarðar króna sem hafi átt að greiða í þremur tilgreindum gjaldmiðlum. Söluandvirðið hafi verið greitt í þremur gjaldmiðlum hinn 6. sept- ember 2005, þ.e. 34.506 milljónir ísl. kr., 310 milljónir evra og 125 milljónir bandaríkjadala. Nánar á mbl.is Engar vanefndir við sölu Símans  Frávik frá efni upphaflegs kaup- samnings með samþykki ráðuneytisins Morgunblaðið/Sigurgeir S. Síminn Kaupverðið var 66,7 milljarðar. Stuttar fréttir ... ● Því er oft haldið fram, að fjár- málakreppan, sem hófst árið 2007 og varð hörðust í árs- lok 2008, hafi stafað af ónógu eftirliti stjórnvalda með fjár- málamörkuðum. Sumir fjármála- sérfræðingar halda því hins vegar fram, að vissulega hafi fjármálaeftirlit brugðist og sumir aðilar á markaði tekið meiri áhættu en hóflegt hafi ver- ið, en ríkisafskipti af þessum mörk- uðum hafi samt gert illt verra. Einn þessara fjármálasérfræðinga, prófess- or Philip Booth, flytur fyrirlestur í Há- skóla Íslands í dag kl. 12-13, um „raunverulegar orsakir fjármála- kreppunnar“. Fyrirlesturinn verður í Öskju, stofu N-132. Að honum standa viðskiptafræði- deild Háskóla Íslands og RNH. Að- gangur er ókeypis og öllum heimill. Fundarstjóri verður dr. Ingjaldur Hannibalsson prófessor, forseti viðskiptafræðideildar, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá RNH. Fyrirlestur um orsakir fjármálakreppunnar Philip Booth gjalddaga viðkomandi skuldabréfs, og hafa erlendu aðilarnir því fært sig úr skuldabréfum með nokkurra mánaða líftíma í bréf með 3-12 ára líftíma. Þessi breyting ætti að hugnast stjórnvöldum vel, þar sem eitt af markmiðum í núverandi áætlun um afnám hafta hefur verið að auka áhuga erlendra krónueigenda á langtímafjárfestingarkostum. Erlendir aðilar áttu í febrúarlok ríkisbréf fyrir 195 milljarða, eða sem nemur 37% af markaðshæfum ríkisbréfum. thorsteinn@mbl.is Eru að færa sig úr styttri bréfum  Verulegar hreyfingar erlendra aðila vekja athygli Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Markmiðið hefur verið að auka áhuga erlendra krónueig- enda á langtímafjárfestingarkostum. Það virðist vera að ganga eftir. Erlendir aðilar færðu sig í tals- verðum mæli úr stysta ríkisbréfa- flokknum í meðallanga og langa ríkisbréfaflokka í febrúar. Er það áframhald á þróun sem verið hef- ur undanfarna mánuði. Innlendir aðilar voru hins vegar langa- tkvæðamestir í útboðum Lána- mála á ríkisbréfum í febrúar- mánuði, en alls voru seld ríkisbréf fyrir 11,5 milljarða í tveimur út- boðum í mánuðinum. Þetta kemur fram í morgunkornum greining- ardeildar Íslandsbanka í gær. Segir þar að verulegar hreyf- ingar erlendra aðila milli ríkis- bréfaflokka í síðasta mánuði veki athygli. Alls seldu erlendir aðilar bréf í stysta ríkisbréfaflokknum, RIKB13, fyrir tæplega átta millj- arða, en þeir eru langstærstu eig- endur slíkra bréfa. Á móti keyptu þeir bréf í millilöngu- og löngu flokkunum RIKB16 fyrir 1,8 milljarða, í RIKB19 fyrir 2,4 milljarða, í RIKB22 fyrir 1,6 milljarða og í RIKB25 fyrir 0,8 milljarða. Þá er sérstaklega athyglisvert að erlendir aðilar keyptu bréf í verðtryggða RIKS21-flokknum fyrir þrjá milljarða í febrúar, en fram að þessu hefur eign þeirra í þeim flokki verið óveruleg. Síð- ustu tveir tölustafirnir í ofan- greindum heitum vísa til loka- Breytingar á ríkisbréfum » Alls voru seld ríkisbréf fyrir 11,5 milljarða í tveimur útboð- um í febrúarmánuði. » Erlendir aðilar áttu í febr- úarlok ríkisbréf fyrir 195 millj- arða. » Erlendu aðilarnir hafa fært sig úr skuldabréfum með nokk- urra mánaða líftíma í bréf með 3-12 ára líftíma.                                           !"# $% " &'( )* '$* +,-.,- +/0.-1 +,,.0/ ,,.2,1 ,,.231 +4.03, +11.+- +.1+-/ +/4.5 +-3.,5 +,-.5- +//.24 +,1.+3 ,,.2/0 ,,.+2/ +4./ +11.51 +.1,20 +42.2- +-3.0+ ,,3.1+1+ +,-./- +//.55 +,1.5 ,,.+5+ ,,.+01 +4./5/ +11.4 +.1,3- +42.-, +-5.+0 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Tekjuafkoma hins opinbera var nei- kvæð um 58,5 milljarða króna árið 2012 eða 3,4% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman nei- kvæð um 91,1 milljarð króna árið 2011. Tekjur hins opinbera námu um 735 milljörðum króna og hækkuðu um 55 milljarða króna milli ára eða um 8%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mæld- ust þær 43% samanborið við 42% ár- ið 2011. Útgjöld hins opinbera voru 794 milljarðar króna og jukust um 2,9%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum á vef Hagstof- unnar. Tekjuafkoma neikvæð um 58,5 milljarða Stofnað í júní 2008 Fjármálafyrirtækið Gamma var stofnað í júní 2008 en ekki skömmu eftir bankahrun sama ár, líkt og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Blaðið sagði frá því að Íslensk verð- bréf og Gamma eru í sameining- arviðræðum. Leiðrétt Við léttum þér lífið F A S TU S _H _0 5. 01 .1 3 Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 | Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 WWW.FASTUS.IS Stuðningshandföng Göngugrindur Griptangir Salernis- og sturtustólar Fastus ehf. býður upp á heildarlausnir innan endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja. Í verslun Fastus að Síðumúla 16, 2. hæð er að finna gott úrval af heilbrigðisvörum. Sérhæft fagfólk á sviði endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja leggur metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða við val á vörum fyrir einstaklinga og stofnanir. Komdu og skoðaðu úrvalið - við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.