Morgunblaðið - 13.03.2013, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013
Alls 99,8% kosningabærra íbúa
Falklandseyja reyndust fylgjandi
því að eyjarnar tilheyrðu áfram
Bretlandi í atkvæðagreiðslu sem
fram fór á mánudag. Aðeins þrír af
1.517 greiddu atkvæði gegn því að
eyjarnar yrðu áfram undir Bretum
en alls voru 1.672 á kjörskrá og
kosningaþátttaka 92%.
David Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, sagðist í gær
fagna niðurstöðunni og hvatti
stjórnvöld í Argentínu til að virða
hana en sendiherra Argentínu í
Lundúnum sagði atkvæðagreiðsl-
una ekki hafa neitt lagalegt gildi.
„Við virðum lífsmáta þeirra og
einkenni. Við virðum að þeir vilja
vera breskir áfram en svæðið sem
þeir búa á er ekki breskt,“ sagði
Alicia Castro en stjórnvöld í Buenos
Aires lýstu því yfir fyrir kosningar
að þær myndu ekki hafa áhrif á til-
kall Argentínu til eyjanna.
AFP
Breskir Íbúar í Stanley á kosningadag.
99,8% vilja tilheyra
Bretlandi áfram
FALKLANDSEYJAR
Breska lögreglan meðhöndlaði ekki
á réttan hátt ábendingar sem henni
bárust um meinta barnamisnotkun
þáttastjórnandans og fjölmiðlafígúr-
unnar Jimmys Saviles og vannýtti
tækifæri sem henni gáfust til að
koma höndum yfir hann. Þetta er
niðurstaða sérstakrar rannsóknar-
nefndar um starfshætti löggæsl-
unnar sem birt var í gær.
Savile er grunaður um að hafa
brotið kynferðislega gegn fjölda
fórnarlamba á tímabili sem spannar
Lögregla fór ekki rétt með
ásakanir á hendur Savile
Gat falið sig á
bak við frægðar-
ljómann
AFP
Glæpir Ásakanir á hendur Savile ná
allt aftur til ársins 1964.
yfir fimm áratugi en í skýrslu nefnd-
arinnar segir m.a. að fimm tilfelli
misnotkunar hafi borist á borð lög-
reglunnar á meðan Savile var enn á
lífi en að rangt hafi verið staðið að
málum í öll skiptin.
Drusilla Sharpling, sem fór fyrir
rannsókninni, sagði augljóst að lög-
reglan hefði gert mistök en að auki
hefði fórnarlömbunum þótt erfitt að
stíga fram. Hún sagði frægð Saviles
hafa átt þátt í því að hann komst upp
með glæpsamlegt framferði sitt.
„Það er ljóst að vegna frægðar
Saviles leitaði fólk að viðbótarsönn-
unum og bar sig sérstaklega var-
færnislega að vegna valdsins sem
hann hafði.“
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Svartur reykur barst frá strompi í
Sixtínsku kapellunnar í Vatíkaninu
um kl. 18:40 í gær, en það þýðir að
ekki náðist samstaða í atkvæða-
greiðslu um nýjan páfa. Kardínál-
arnir 115, sem kjósa páfa, koma
saman aftur í dag og kjósa þá aft-
ur. Páfakjörsfundur hófst um kl.
16.30 í gær bakvið luktar dyr kap-
ellunnar. Kardinálarnir 115 báðu
fyrir samstöðu innan kirkjunnar í
messu í Péturskirkjunni áður en
þeir gengu til fundarins og klöpp-
uðu ákaft þegar Angelo Sodano,
forseti kardinálasamkomunnar,
færði hinum „ástsæla og háæru-
verðuga“ Benedikt XVI. þakkir í
predikun sinni.
Bíða með eftirvæntingu
Kardinálarnir verða lokaðir inni
þar til nýr páfi hefur verið kjörinn
en til þess þarf tvo þriðju hluta at-
kvæða. Frá og með deginum í dag
verða kjörseðlarnir brenndir að
loknum tveimur atkvæðagreiðslum,
einu sinni að morgni og öðru sinni
að kvöldi, og gefur hvítur reykur til
kynna að nýr páfi hafi verið kjörinn
en svartur hið andstæða.
Þúsundir kaþólikka höfðu safnast
saman á Péturstorginu í rigning-
unni í gær þegar páfakjörsfund-
urinn var í þann mund að hefjast.
„Án páfa finnst mér ég umkomlaus,
eins og munaðarleysingi. Ég bið
um styrk til handa kardinálunum
svo þeir megi velja réttan mann til
að leiða kirkjuna,“ sagði franski
presturinn Guillaume Le Floch í
samtali við AFP.
Roger Seogo, prestur frá Búrk-
ína Fasó, gaf lítið fyrir vangaveltur
um það hvort næsti páfi yrði hugs-
anlega frá Afríku eða Asíu og sagði
það ekki skipta máli. „Við þurfum
einhvern sem er þess megnugur að
sjá kirkjunni fyrir því sem hún þarf
á að halda í dag, einhvern sem mun
aðstoða við að opna hana heiminum
og hlýða á fólk, virkilega hlusta á
áhyggjur hinna rétttrúuðu,“ sagði
hann. „Þetta eru hættulegir tímar,“
sagði Nicholas Gruner, 70 ára
prestur frá Kanada. „Það ríkir
meiri sundrung innan kirkjunnar
en nokkru sinni áður og við bíðum
ákvörðunarinnar um hver verður
valinn með beyg og kvíða.“
Svartur reykur frá páfakjöri
Páfakjörsfundur hófst í gær Þökkuðu Benedikt XVI. páfa með lófataki
Þúsundir söfnuðust saman Biðja um páfa til að leiða á erfiðum tímum
AFP
Velja nýjan páfa Kardinálarnir sverja þagnareið áður en páfakjörsfundur-
inn hefst og þá kallar siðameistarinn „Extra omnes“ sem þýðir „Allir út“.
Lengsti páfakjörsfundur á síð-
ustu hundrað árum stóð yfir í
fimm daga en þegar Benedikt
XVI. var kjörinn tók það kardin-
álana aðeins tvo daga að kom-
ast að niðurstöðu.
Af þeim eru þrír nefndir lík-
legastir til þess að hljóta kosn-
inguna: Angelo Scola frá Ítalíu,
Odilo Scherer frá Brasilíu og
Marc Ouellet frá Kanada.
Hjá veðbönkum þykir Scola
sigurstranglegastur, þá Peter
Turkson frá Gana og síðan
Scherer.
Veðjað á
niðurstöðuna
PÁFAKJÖR
Yfir 15.000 manns komu saman í Belgrad, höfuðborg
Serbíu, í gær og gengu saman í þögn til að minnast þess
að tíu ár væru liðin frá því að forsætisráðherrann Zoran
Djindjic var ráðinn af dögum.
Djindjic var fyrsti lýðræðislega kjörni forsætisráð-
herra Serbíu eftir að kommúnisminn leið undir lok þar í
landi en hann var skotinn til bana fyrir utan opinbera
byggingu 12. mars 2003.
AFP
15.000 gengu saman í þögn
Iðnaðarryksugur
NT 25/1 Eco
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur.
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
NT 55/1 Eco
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór sogstútur.
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
Sjálfvirk
hreinsun á síu