Morgunblaðið - 13.03.2013, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013
AF LISTUM
Jón Hlöðver
Áskelsson
Jonni í Hamborg“, eða JóhannesVilhelm Guðmundsson Þor-steinsson eins og hann hét
fullu nafni, er mörgum gleymdur en
á þó merkan sess í íslenskri djass-
sögu. Hann dó kornungur, aðeins 22
ára gamall, af slysförum úti í Kaup-
mannahöfn í júlí 1946, en hafði áður
afrekað að halda fyrstu íslensku
djasstónleikana í tónleikahúsi, nán-
ar tiltekið í Gamla bíói hinn 11. apríl
1946. Þegar 50 ár voru liðin frá
þessum tónleikum árið 1996 var
sama tónleikaskrá með nánast sömu
hljóðfæraskipan flutt í Gamla bíói
og síðar á Akureyri á Hótel KEA,
skáhallt á móti húsinu Hamborg.
Þangað sótti Jonni sitt viðurnefni á
barnsaldri og var farinn að vekja at-
hygli fyrir að vera síspilandi á pía-
nóið og Akureyringar á „prómen-
aði“-göngutúrum í miðbænum
heyrðu tóna hans óma út í Hafnar-
stræti.
Jonni fæddist á Siglufirði 13. mars1924, sonur hjónanna Guð-
mundar Hafliðasonar hafnarstjóra
og konu hans Theódóru Pálsdóttur.
Systkinin voru fimm: Sigríður, Haf-
liði, Álfheiður, Páll og Jonni yngst-
ur. Jonni átti tvo hálfbræður, Karl
og Inga Árdal. Vegna veikinda for-
eldra hans tók móðursystir Jonna,
Laufey Pálsdóttir á Akureyri,
„Laufey í Hamborg“, hann í fóstur
sex ára gamlan. Jonni ólst upp hjá
henni og seinni manni hennar, Jóni
E. Sigurðssyni, „Jóni í Akra“, og
fóstursystkinum: Steingrími J. Þor-
steinssyni og Sólveigu Björgu Jóns-
dóttur. Jóhannes, fyrri eiginmaður
Laufeyjar, og Jón voru kaupmenn í
Hamborg á Akureyri og þar bjó fjöl-
skyldan í miðbæ Akureyrar – gegnt
Hótel KEA.
Jonni naut tilsagnar í klassískum
píanóleik þar og síðar á trompet. Að
leika eftir eyranu var honum í blóð
borið og Fats Waller var ein af hans
stóru fyrirmyndum. Að sögn kunn-
ugra átti það markmið að verða góð-
ur í klassíkinni hug hans hálfan.
Árið 1996 var „Venni“ Linnet einn
frumkvöðla þess að halda minning-
artónleikana. Nú þegar ár vantar
upp á að níutíu ár séu liðin frá fæð-
ingu Jonna vill undirritaður varpa
ljósi á þennan ótrúlega mann.
Vernharður Linnet ritaði gagn-
merka grein sem birtist í Morgun-
blaðinu árið 1996 um Jonna, eina
Þjóðsagnapersóna í djassi
Pínóleikarinn Jóhannes Vilhelm Guðmundsson, kallaður Jonni í Hamborg, lést af slysförum 22 ára gamall.
helstu þjóðsagnapersónu íslenskrar
djasssögu, og er þar margan fróð-
leik að finna.
Í grein Vernharðs segir meðalannars svo af þessum merku
djasstónleikum í Gamla bíói: „Píanó-
leikarinn, sem gekk undir nafninu
„Jonni í Hamborg“, hafði þegar get-
ið sér orðstír sem ævintýramaður pí-
anósins og fékk með sér sex vaska
vini, sem mynduðu bandið sem fyllti
Gamla bíó tvisvar sinnum og fékk
lofsverða gagnrýni í öllum blöðum.
Elsa Sigfúss söngkona, sem kom
til lands um líkt leyti, hreifst svo af
leik Jonna að hún bauð honum að
leika á nokkrum tónleikum í Dan-
mörku og jafnvel í París þessa vor-
daga.
Evrópusumarið hans Jonna var-
aði þó ekki lengi því hann lést af
slysförum í Kaupmannahöfn í júlí
1946.“
Vernharður segir síðan að húsið
Hamborg á Akureyri megi hiklaust
tengja upphafi sögu íslensks djass-
píanóleiks og í raun sé athyglisvert
hve margir djasspíanóleikarar hafi
um lengri eða skemmri tíma búið á
Akureyri.
Undirritaður hefur kynnt sér ogkannað lífshlaup þessa merki-
lega manns og hefur orðið allvel
ágengt við að safna upplýsingum frá
fólki sem var samtíða Jonna. Saga
hans þarf að lifa, ekki síst á æsku-
stöðvum hans og fæðingarbæ, þ.e. á
Akureyri og á Siglufirði.
Eins og fyrr er getið efndi Jazz-
vakning til tónleika í Gamla bíói árið
1996, þegar 50 ár voru liðin frá hin-
um sögufrægu tónleikum Jonna.
Þeir voru síðan endurteknir á Akur-
eyri og þóttu takast afar vel. Þar
stigu saman á svið ungir menn og
gamlir vinir Jonna og endurtóku
gömlu efnisskrána frá lagi til lags,
utan það lag sem Jonni samdi og til-
einkaði sinni miklu og verðugu
fyrirmynd, djasspíanóleikaranum
Fats Waller og nefndi „Weight Wall-
er“, en það lag var eingöngu í
hugarheimi Jonna.
Píanóleikarinn sem sat þá bráð-
ungur við píanóið var og er enn í röð
okkar bestu djasspíanista, Agnar
Már Magnússon.
Hver þekkir ekki lagið góða:
„Suður um höfin“? Færri vita að
Jonni lék það fyrst opinberlega á Ís-
landi í Samkomuhúsinu á Akureyri,
oft kallað Gúttó, sumardaginn fyrsta
1939, en þá hafði ævivinur hans
Gunnar Steindórsson keypt sönginn
nýprentaðan úti á Englandi og fært
besta vini sínum að gjöf. Það var svo
annar æskuvinur á Akureyri, Skafti
Sigþórsson fiðluleikari í Sinfó, sem
orti síðar fallega textann, en það er
önnur saga.
»Hann dó kornungur,aðeins 22 ára gamall,
en hafði áður afrekað að
halda fyrstu íslensku
djasstónleikana í tón-
leikahúsi.
Höfundur er tónlistarmaður
á Akureyri.
Fyrstu tónleikar ensk-íslensku
hljómsveitarinnar Cheek Mountain
Thief á árinu verða á Kex hosteli í
kvöld kl. 21. Um upphitun sér Þórir
Georg og eru miðar seldir við inn-
ganginn. Að tónleikum loknum held-
ur sveitin í 4.500 km langt tónleika-
ferðalag um Frakkland sem hefst
með tónleikum í París 15. mars og
lýkur í Vannes 23. mars.
Samkvæmt upplýsingum skipu-
leggjenda leikur sveitin „gott angló-
íslenskt sveitapiltapopp, en í tónlist
Cheek Mountain Thief svífur andi
Íslands og Húsavíkur greinilega yfir
vötnum“.
Hljómsveitin Cheek Mountain Thief.
Upphitun
fyrir tón-
leikaferð
Gunnella Þorgeirsdóttir, aðjúnkt í
japönsku við Háskóla Íslands, fjallar
um gildi og fegurð origami og inn-
pökkunar í japanskri menningu á
Stefnumótakaffi í Gerðubergi í kvöld
kl. 20. Aðgangur er ókeypis og eru
allir velkomnir. Gunnella þekkir vel
til japanskrar menningar, en hún fór
sem skiptinemi til Japans þegar hún
var 18 ára. Gunnella gerði meistara-
prófsritgerð í þjóðfræði um íslenskar
hefðir og hjátrú sem tengjast með-
göngu. Hún vinnur nú að doktors-
verkefni þar sem hún rannsakar
sömu þætti í japanskri menningu.
Fegurð Origami krefst natni.
Gildi og feg-
urð origami
m.a. Besta
leikkona
í aukahlutverki
FRÁÞEIMSEMFÆRÐUOKKUR
ALICE INWONDERLANDOG LEIKSTJÓRA
SPIDERMANÞRÍLEIKSINS.
MÖGNUÐ
ÆVINTÝRA-
MYND Í STÓR-
KOSTLEGRI
ÞRÍVÍDD
Stórskemmtileg teiknimynd
fyrir alla fjölskylduna!
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
IDENTITY THIEF Sýnd kl. 8 - 10:20
OZ THE GREAT AND POWERFUL Sýnd kl. 5 - 8
21 AND OVER Sýnd kl. 10:40
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D Sýnd kl. 6
VESALINGARNIR Sýnd kl. 6 - 9
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
L
10
14
HHHH
- K.N. Empire
FRÁÞEIMSEMGERÐU
“THEHANGOVER”
ÓSKARSVERÐLAUN
M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS
DANIEL DAY-LEWIS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
-EMPIRE
IDENTITY THIEF KL. 5.40 - 8 - 10 12
21 AND OVER KL. 10.10 14
THIS IS 40 KL. 5.40 12 / JAGTEN KL. 8 16
IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
IDENTITY THIEF LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.40 L
THIS IS 40 KL. 6 12
DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16
DJANGO KL. 9 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L
- H.S.S., MBL
Yippie-Ki-Yay!
IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THIS IS 40 KL. 8 - 10.40 12
LINCOLN KL. 6 - 9 14
LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10