Morgunblaðið - 13.03.2013, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2013
Aðalsögupersóna fyrstuskáldsögu Lýðs Árnason-ar, Svartra túlipana, fer ámikilli þeysireið um ís-
lenskt samfélag; frá sakleysislegu
sjávarþorpi suður í sótsvarta spill-
inguna í Reykjavík, þar sem hann
sekkur á kaf í heim eiturlyfja og
glæpa, áður en hann snýr aftur heim
með lögregluna á hælunum.
Höfundurinn virðist ekki vera
maður einhamur því auk þess að hafa
starfað sem læknir, meðal annars á
Vestfjörðum – sem eru sögusvið bók-
arinnar að hluta, hefur hann samið og
leikið tónlist, birt smásögur og fram-
leitt kvikmyndir. Og tengingin við
heim kvikmyndanna er augljós í
Svörtum túlípönum. Að mörgu leyti
er sagan eins og uppskrift að kvik-
mynd; hraðri kvikmynd þar sem
skipt er ört milli tímaplana og frá-
sögnin knúin áfram af litríkum per-
sónum sem víla ekkert fyrir sér.
Sagan hefst þar sem sögumað-
urinn hefur snúið heim og er ekki
einn á ferð, því hann hefur lík í far-
teskinu. Þar sem hann ekur inn í bæ-
inn og gengur inn á yfirgefið æsku-
heimilið taka minningabrot að skjóta
upp kollinum. Frásagnarhátturinn er
hefðbundinn, þar sem lesandinn fer
með sögumanninum aftur í tímann,
og smám saman verður myndin fyllri,
rússibanareið aðalpersónanna tekur
að skýrast. Vinirnir kalla hann
„Brainy“, þar sem hann á gott með að
læra, en helsti vinurinn er hinn
„snemmsköllótti“ Hemmi, mikill
aðdáandi Bítlanna – „á bítlaslóðum
var Hemmi eins og Jón Bö á Njálu-
slóðum“ segir þegar hann er kynntur
til leiks. Móðir aðalpersónunnar talar
eins og véfrett í upphafi sögunnar,
þegar hún varar soninn við Hemma:
„Hann er sikkó-
pat,“ segir hún, og
sú er raunin. Æði
vafasamur félags-
skapur. Við hlið
Hemma er síðan
bróðir hans, eins-
konar grunn-
hygginn einka-
lífvörður, og þeir
kynnast hinum ofvirka Angantý og
systur hans, hinni dularfullu Úlfhildi,
fíkniefnaneytanda sem aðalpersónan
fellur fyrir.
Persónugalleríið er að mörgu leyti
frekar klisjukennt. Þetta eru erkitýp-
ur frekar en karakterar af holdi og
blóði – það er einn helsti galli verks-
ins. Hins vegar þjóna þær allar sínu
hlutverki, og það hvarflaði aftur og
aftur að þessum lesanda að hann
væri að lesa kvikmynd; sviðsetn-
ingar, söguheimurinn og sögufléttan
tala við, vísa í og tengjast (undir)
heimum sem hafa verið áberandi á
hvíta tjaldinu á síðustu árum, til að
mynda í kvikmyndinni Svartur á leik
og jafnvel frásagnarhætti bandaríska
leikstjórans Tarantinos.
Höfundurinn á oft góða spretti í
lýsingum og sviðsetningum, og ekki
er laust við að glitti í læknisfræðilega
þekkinguna eins og þar sem sögu-
maður situr einn í húsi móður sinnar
og ljósin fara af þorpinu: „Það er eins
með rafmagnið og lífið, maður veit
aldrei hvenær það fer. Til glöggvunar
get ég sagt að á hverjum degi færist
maður um 120 þúsund hjartaslögum
nær endalokunum. Óhugnanleg til-
hugsun …“
Sögupersónurnar flytja inn fíkni-
efni, auk þess að reka vafasaman
skemmtistað, og hlutverk „Brainy“
er að læra bókhald og gera starfsem-
ina löglega á pappírunum. „Við
bjuggum til fyrirtæki, dótturfyrir-
tæki, pappírsfyrirtæki, draugafyrir-
tæki, hlutafélög, eignarhaldsfélög,
líknarfélög, karlaklúbba, banka, pen-
ingamyllur og alls kyns svikamyllur
aðrar. Lagaglufur og mótsagnir voru
okkar ráspólar og markmiðið að búa
til svo öflugt vegakerfi að alltaf væri
einhver útgönguleið. Sem sagt, leit-
ast var við að vera alltaf réttum meg-
in við lögin, siðferðið hins vegar skipti
minna máli.“ Kunnuglegt, ekki satt –
enda nokkuð sannferðug sam-
tímasga.
Svartir túlípanar er fyrirtaks saga;
alls ekki gallalaus og ekki beint frum-
leg, en hröð, æsileg á köflum og ljóm-
andi vel skrifuð.
Morgunblaðið/Golli
Höfundurinn Aðalpersónan í sögu Lýðs fer á „þeysireið um íslenskt sam-
félag; frá sakleysislegu sjávarþorpi suður í sótsvarta spillinguna“.
Skáldsaga
Svartir túlípanar
bbbmn
Eftir Lýð Árnason.
Draumsýn 2012. 344 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Kvikmynd um undir-
heima í skáldsöguformi
„Þetta er ekki skýrsla heldur kvik-
mynd sem varpar ljósi á stöðu hæl-
isleitenda,“ segir Ingvar Þórðarson,
annar leikstjóri heimildakvikmynd-
arinnar Fit Hostel sem verður fum-
sýnd í Bíó Paradís klukkan 20 í
kvöld og verður í kjölfarið tekin þar
til sýningar. Kolfinna Baldvins-
dóttir leikstýrði myndinni með
Ingvari og sá Þuríður Einarsdóttir
um klippinguna. Megas flytir titil-
lagið „Hleypum engum inn“.
Í kvikmyndinni er fylgst með
hælisleitendum sem búa á gisti-
heimilinu Fit í Njarðvík, á árabilinu
2008 til 2011. „Við fylgdumst mest
með um tíu manna hópi og baráttu
þeirra við kerfið; baráttu þeirra um
að fá að vera hér,“ segir Ingvar.
Þegar kvikmyndagerðarmenn-
irnir hittu viðmælendur fyrst höfðu
sumir þeirra þegar dvalist þar í
nokkur ár. „Við
fylgdumst með
þeim í á þriðja
ár. Sumir fengu
úrlausn sinna
mála, enda varð
þetta fólk sýni-
legra eftir haust-
ið 2008 og fólk
fór að berjast
með því. Árið
2009 fengu tólf
dvalarleyfi af mannúðarástæðum en
ekki nema fimm árið áður og sex
árið eftir.“
Hælisleitendurnir hafa flúið
heimalandið af ýmsum ástæðum og
koma víða að úr heiminum.
Ingvar segir að þau hafi áunnið
sér traust fólksins sem kemur við
sögu en aðrir vildu ekkert af þeim
vita. „Hvert mál er einstakt en af-
greiðsla hvers og eins virðist líka
vera einstök. Þetta eru erfiðar sög-
ur og þetta fólk hefur lent í ýmsu,“
segir hann. „Þessi mynd er ekki
skýrsla en hún varpar ljósi á mál-
ið.“ efi@mbl.is
Gistiheimilið Hælisleitendurnir sem fylgst var með búa á Fit hosteli.
Kvikmynd um mál-
efni hælisleitenda
Heimildakvik-
myndin Fit Hostel
frumsýnd í kvöld
Ingvar
Þórisson
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL.5:20-8-10:40
OZ:THEGREATANDPOWERFUL2D KL. 5:20
OZ:GREATANDPOWERFULVIP2DKL.5:20-8-10:40
ÞETTAREDDAST KL. 8 -10:10
BEAUTIFULCREATURES KL. 8 -10:40
FLIGHT KL. 8 -10:10
WARMBODIES KL. 8 -10:50
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:50
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 6
KRINGLUNNI
PARSIFALÓPERA KL.18:00
OZ:GREATANDPOWERFUL KL. 5:20 - 8
OZ:THEGREATANDPOWERFUL 3D KL. 10:40
ÞETTAREDDAST KL. 10:40
THIS IS 40 KL. 8
THE IMPOSSIBLE KL. 5:40
OZ:GREATANDPOWERFUL3DKL.5:20-8-10:40
OZ:THEGREATANDPOWERFUL KL.6
IDENTITYTHIEF KL.5:30-8-10:30
FLIGHT KL.9-10:30
BEAUTIFULCREATURES KL.5:20
ARGO KL.8
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL. 8
IDENTITY THIEF KL. 10:40
ÞETTA REDDAST KL. 8 - 10:10
AKUREYRI
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL. 8
OZ:THEGREATANDPOWERFUL2D KL. 5:20
ÞETTA REDDAST KL. 8
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 6
TILNEFND TIL 2
ÓSKARSVERÐLAUNA
R.EBERT
LA TIMES
DISNEY BÝÐUR ÞÉR Í HREINT MAGNAÐ FERÐALAG
TIL TÖFRALANDSINS OZ
K.N. EMPIRETöfrandisjónarspil!
BÍÓVEFURINN/SÉÐ & HEYRT
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR ALICE INWONDERLAND
OG LEIKSTJÓRA SPIDERMAN ÞRÍLEIKSINS
FÓRBEINT ÁTOPPINN ÍUSA
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!