Morgunblaðið - 15.04.2013, Page 1
M Á N U D A G U R 1 5. A P R Í L 2 0 1 3
Stofnað 1913 86. tölublað 101. árgangur
UM VAND-
RÆÐAMANN
DAUÐANS
FÉKK DÝR-
MÆTT
SILFURBELTI
FJÖR HJÁ
BÖRNUNUM Á
JÓNASI FEITA
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 4 ÓTTARR HRAFNKELSSON 10KVIKMYNDIN FALSKUR FUGL 26
Byggingarfulltrúi hefur samþykkt
umsókn Höfðatorgs ehf. um bygg-
ingu 16 hæða hótels á Höfðatorgs-
reitnum í Borgartúni. Gert er ráð
fyrir því að á hótelinu verði 342
herbergi. Að sögn framkvæmda-
stjóra Höfðatorgs ehf. er fjár-
mögnun ekki tryggð en unnið er
að henni. Samhliða byggingu hót-
elsins verður bílakjallari undir
Höfðatorgi stækkaður. Hótelið á
að verða 17 þúsund fermetrar að
flatarmáli. Byggingarfulltrúi segir
að gert sé ráð fyrir þjónustu á
fyrstu og efstu hæð hótelsins og að
um sé að ræða hefðbundið þriggja
til fjögurra stjörnu ferðamanna-
hótel. »12
Morgunblaðið/Golli
Höfðatorg Byggja á 16 hæða hótel.
16 hæða hótel á Höfðatorgi
Áforma byggingu 342 herbergja
hótels sem verði 17 þús. fermetrar
Málshöfðun ASÍ gegn ríkinu vegna
skattlagningar lífeyrisréttinda
launafólks er tilbúin og verður
stefna þingfest á allra næstu dög-
um, samkvæmt upplýsingum
Magnúsar M. Norðdahl, deild-
arstjóra lögfræðideildar ASÍ. „Al-
þýðusamband Íslands höfðar málið
á grundvelli sérstakra ákvæða í
einkamálalögunum til að gæta
hagsmuna allra félagsmanna sinna,
sem jafnframt eru sjóðsfélagar í líf-
eyrissjóðunum á almennum vinnu-
markaði,“ segir hann.
Miðstjórn ASÍ, sem ákvað að
láta reyna á lögmæti eignarskatts-
ins og krefjast þess að hann verði
greiddur til baka, hefur haldið því
fram að álagning skattsins brjóti
gróflega gegn jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar. Tekjur af
skattinum í fyrra voru um 1.649
milljónir. Ríkið bauð þau málalok
fyrir áramót að síðari greiðsla
sjóðanna sem átti að innheimta á
þessu ári yrði felld brott. »16
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fyrir dóm Miðstjórn ASÍ höfðar mál
fyrir hönd allra félagsmanna sinna.
Mál ASÍ
gegn ríkinu
þingfest
Telja eignarskattinn
brot á jafnræðisreglu
Hér á landi lifa
flestir þeirra af
sem hljóta
stóræðaáverka
vegna slysa. Um
78% þeirra sem
gengust undir
meðferð vegna
slíkra áverka á
árunum 2000 til
2011 lifðu af og telst það vera góð-
ur árangur. Áverkar sem þessir eru
fátíðir hér á landi en í heildina voru
það 23 einstaklingar sem hlutu 35
æðaáverka. Þetta kom fram í erindi
Bergrósar K. Jóhannesdóttur,
deildarlæknis á skurðsviði Land-
spítala, á málþingi um stungu-
áverka, á skurðlæknaþingi um
helgina. »2
Flestir lifa
af stóræða-
áverka
Strákar á Ísafirði stóðu í ströngu í gær við lönd-
un á frosnum fiski af frystitogaranum Júlíusi
Geirmundssyni ÍS 270. Staldrað var stutt við í
svokölluðu brælustoppi. Vetur er á Vestfjörðum
og snjór liggur yfir öllu eins og víða fyrir norðan
og vestan, áfram er spáð snjókomu, og éljum í
dag. Því ættu ökumenn að fara gætilega í vetr-
arveðrinu. Hitinn fer víða yfir frostmark í dag
en næturfrost verður á öllu landinu.
Löndun af frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni á Ísafirði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Stóðu í ströngu að landa frosnum fisk í frosthörkunni
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Hugmyndin er að leysa málefni
þeirra sem tóku lánsveð á svipaðan
hátt og gert var með 110% leiðina.
Þannig að þau lán yrðu jöfnuð til sam-
ræmis við þá niðurfellingu sem aðrir
fengu á sínum tíma,“ segir Þórey S.
Þórðardóttir, framkvæmdastjóri
Landssamtaka lífeyrissjóða.
Þeir lífeyrissjóðir sem eiga aðild að
Landssamtökum lífeyrissjóða eru
með til umsagnar tillögu frá stjórn-
völdum um lausn á skuldavanda láns-
veðshóps. Samþykki lífeyrissjóðirnir
þessa útfærslu mun kostnaðurinn að
mestu lenda á ríkissjóði en lífeyris-
sjóðir hafa þröngar heimildir til af-
skrifta. Þórey segir Fjármálaeftirlitið
fylgjast náið með málinu enda eru
eigur lífeyrissjóðsfélaga varðar af
eignarrétti. Að sögn Þóreyjar hefur
tillagan verið kynnt lífeyrissjóðunum
og mun afstaða þeirra gagnvart henni
liggja fyrir innan tveggja vikna. Fái
tillagan samþykki þarf nýtt Alþingi
að samþykkja þau fjárútlát sem þarf
til skuldaniðurfellinga. Samkvæmt
svari viðskiptaráðherra við fyrir-
spurn Eyglóar Harðardóttur frá því í
maí í fyrra var heildarupphæð, um-
fram 110% veðsetningarhlutfall hjá
lánsveðshópi um 11,3 milljarðar kr.
og heildarfjárhæð lánsveða um 7,9
milljarðar kr. Eignir tæplega 2000
manns úr hópnum eru veðsettar um-
fram 110%.
MTillaga að lausn… »2
Niðurfelling til umsagnar
Tillaga um afskriftir vegna fasteignalána lánsveðshóps borin undir lífeyris-
sjóðina Niðurstöðu að vænta innan tveggja vikna Svipað og í 110% leið
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
vegna alþingiskosninganna færist í
dag yfir í Laugardalshöll þar sem
hægt verður að kjósa alla daga frá
kl. 10 til 22. Í gær höfðu 2.460
manns kosið utankjörfundar á öllu
landinu og í þeim sendiráðum sem
færa utankjörfundaratkvæða-
greiðsluna í tölvu. Í Reykjavík hafa
786 manns kosið frá því að utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslan hófst
2. mars. Sambærileg tala fyrir síð-
ustu alþingiskosningar er 689
manns. »6
Tæp 2.500 hafa
þegar kosið