Morgunblaðið - 15.04.2013, Page 4

Morgunblaðið - 15.04.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013 BAKSVIÐ Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Móðir mín bar þetta belti við mjög einfaldan einlitan kjól þegar hún hélt dóttur minni undir skírn, það er eina skiptið sem ég veit til þess að þetta belti hafi verið notað. Unga fólkið hefur kannski ekki áhuga á þessu og ég vil ekki að þetta sé á glámbekk. Mér finnst mjög mikið vægi í því að þetta komist hérna inn“ segir Jóna Garðarsdóttir, afkomandi Einars Skúlasonar bónda og gullsmiðs að Tannstaðarbakka við Hrútafjörð, en hún gaf Þjóðminjasafni silf- urbelti sem þykir einna merkast þeirra gripa sem almenningur gat látið meta á greiningardegi í Þjóð- minjasafninu sem var í gær. Þar gerðu þrír sérfræðingar safnsins greiningar á gripum í einkaeigu. Greiningin snerist um aldur, efni og uppruna gripanna en ekki verð- gildi þeirra. ,,Ég hef ekki séð svona belti frá hans hendi. En þetta belti hefur verið notað við skautbúninginn fyrst og fremst,“ segir Þór Magnússon fyrrverandi þjóðminjavörður og einn greinenda gripanna. Í tilefni af 150 ára af- mæli Þjóðminjasafnsins var sér- stakt silfurþema. Vel fór á að Þór væri einn greinenda en fyrir helgi kom út bók um íslenska silfursmíði eftir hann. Beltið fékk Jóna í arf frá móður sinni, Hönnu Brynjólfsdóttur ljós- myndara, sem fékk það í arf frá móður sinni, Ólafíu Einarsdóttur, sem var dóttir Einars. Ekki metið til fjár „Við metum ekki til fjár. Við er- um fyrst og fremst að reyna að komast að því hver hefur smíðað hlutinn og hver sé uppruni hans. Fólk veit oft heilmikið um gripinn og hefur oft gaman af því að segja sérfræðingum frá sem aftur geta sagt frá sinni þekkingu um hann. Oft myndast mjög skemmtilegar samræður út frá þessu,“ segir Bryndís Sverrisdóttir sviðsstjóri miðlunarsviðs hjá Þjóðminjasafni. „Oft voru bændur að smíða gripi í hjáverkum og hann safnaði fjöl- mörgum upplýsingum sem nýtast í þessari greiningu,“ segir Bryndís. Um 50 gripir voru greindir á tveimur klukkustundum. Biðröð myndaðist þegar greining hófst klukkan 14:00 og greinilegt var að áhugi var mikill. Hver hlutur var ítarlega greindur og dæmi voru um að gripur væri skoðaður og metinn í allt að hálftíma. „Þetta er liður í því að veita almenningi að- gang að safninu og sérfræðingum þess. Mikilvægt er að fólki finnist það vera velkomið á safnið. Eins er mjög mikilvægt fyrir okkur á safninu að fá að vita hvað leynist hjá fólki. Við erum alls ekki að fal- ast eftir því að fólk gefi þetta safn- inu. En ef þetta eru merkir gripir þá látum við fólk vita af því. Þá getum við látið fólk vita af því hvernig best sé að meðhöndla og geyma hlutina,“ segir Bryndís. Á fyrri árum hefur fjöldi dýr- gripa komið í ljós. Meðal annars stokkabelti frá 18. öld og gulltób- aksdós sem var í eigu Brynjólfs Péturssonar Fjölnismanns. Ekki tókst að upplýsa fólk um alla hluti. „Stundum eru hlutir er- lendir og maður þekkir ekki upp- runa þeirra. Maður er ekki alvitur. Eins eru fullt af hlutum í menning- arsögunni sem eru óþekktir en standa engu að síður fyrir sínu, “ segir Þór. Morgunblaðið/Golli Forláta silfurbelti Jóna Garðarsdóttir heldur hér á belti sem langafi hennar, Einar Skúlason, smíðaði. Vill ekki beltið á glámbekk  Greiningardagur Þjóðminjasafnsins fór fram í gær  Biðröð af fólki sem vildi forvitnast um hluti sína  Þjóðminjasafnið fékk dýrmætt silfurbelti að gjöf Einbeittur Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður, var einn grein- enda á greiningardegi Þjóðminjasafnsins sem var í gærdag. Silfurbelti Helsti dýrgripurinn var belti smíðað af Einari Skúlasyni. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins hyggjast leggja fram til- lögu á fundi borgarstjórnar á morgun um að borgarstjórn Reykjavíkur beiti sér fyrir því að komið verði á fót samstarfsnefnd lögreglu og Reykjavíkurborgar um löggæslumálefni, að sögn Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Engin nefnd frá 2007 „Svona nefnd var starfandi í marga áratugi og lögð niður árið 2007. Þá var gerð breyting á lög- regluumdæmunum og önnur nefnd átti að taka við henni en sú nefnd hefur aldrei komið saman,“ segir Kjartan og bætir við að vissulega sé þó ennþá ákveðið samstarf á milli lögreglunnar og embættis- manna borgarinnar. Að sögn Kjart- ans höfðu borgarfulltrúar með gömlu nefndinni beinan vettvang til þess að koma því á framfæri við lögreglu sem þeim þótti að mætti betur fara. „Lögreglan brást yf- irleitt mjög vel við ábendingunum og síðan gamla nefndin var lögð niður þá finnst mér óneitanlega að þennan vettvang hafi vantað,“ segir Kjartan en hann tekur fram að sér þyki lögreglan öll vera af vilja gerð. Þá bendir Kjartan á að í 12. grein lögreglulaga segi að starf- ræktar skuli sérstakar samstarfs- nefndir á vegum lögreglu og sveit- arfélaga. skulih@mbl.is Vilja aukið samráð við lögreglu  Segir lögreglu- lög kveða á um samstarfsnefnd Kjartan Magnússon Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir alvarlega líkamsárás á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er árásarmaðurinn meðlimur í skipulögðum glæpa- samtökum. Ekki er vitað um líðan fórnarlambsins. Árásarmaðurinn var í mjög ann- arlegu ástandi og fundust einnig fíkniefni í fórum hans. Lögregla rannsakar málsatvik. Karlmaður í haldi vegna líkamsárásar „Veðráttan hefur lítil sem engin áhrif á þá fáu fugla sem eru búnir að verpa núna. Þeir eru undir þetta búnir og geta tekist á við veðráttuna,“ segir Árni Þ. Sigfússon fuglafræðingur. Hann segir hins vegar að ef hressilegt hret myndi koma seint í maí, gæti það haft áhrif á fuglavarp. Svartþrösturinn er nýfarinn að verpa hér á landi og fer ört fjölgandi, einkum í Reykjavík. Hann er meðal þeirra spör- fugla sem eru fyrstir til að gera sér hreiður. Eitt par hafði gert sér haganlegt hreiður í Grafarvoginum. Árni var ekki hræddur um að ungarnir ættu í erfiðleikum með að klekjast út en svartþrösturinn gæti átt í erfiðleikum með að finna æti ef kalt yrði. Miklar líkur eru á að þetta par gæti átt þrjú vörp yfir sumarið. Vetrarveður hefur verið víða á landinu undanfarna daga. Í gær sást vart á milli húsa á Siglufirði og þá þurfti að aðstoða ökumenn sem lentu í vandræðum á Öxnadalsheiði. thorunn@mbl.is Kalsaveður hefur ekki áhrif á fuglavarp  Snjóþungt víða um land  Svartþröstur búinn að verpa Ljósmynd/Valur Óskarsson Hreiður Svartþrösturinn er búinn að búa sér til hreiður. Ljósmynd/Gísli Kristinsson Fugl Þeir eru lífseigir smáfuglarnir og þrauka hretið. Einar Skúlason gullsmiður frá Tannstaðabakka í Hrútafirði fædd- ist árið 1834 og lést árið 1917. Hann var sonur Skúla Einarssonar gullsmiðs og Magdalenu Jóns- dóttur. Beltið sem Jóna Garð- arsdóttir gaf Þjóðminjasafninu, er að sögn hennar gjöf til Guðrúnar Jónsdóttur, eiginkonu Einars og langömmu Jónu. Einar nam gull- smíði hjá Friðfinni Þorlákssyni gullsmið frá Akureyri. Einar var við nám hjá honum í þrjá vetur en hóf svo að stunda bústörf. Hann greip svo til silfursmíði í hjáverkum. Heimild: Óðinn. Gerði beltið fyrir eiginkonuna EINAR SKÚLASON GULLSMIÐUR SMÍÐAÐI BELTIÐ DÝRMÆTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.