Morgunblaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar Stuð Siglingaklúbburinn í Siglunesi á hundrað báta, kajaka, árabáta, segl- báta, vélbáta, seglskútur og fleira og það er mikið fjör hjá krökkunum. Úti á sjó er fjörið Hér eru krakkar á námskeiði í ölduróti. Jónas feiti hefur siglt með margt barnið enda smíðaður sérstaklega til þess fyrir þrjátíu árum. unnið við að sigla í Karíbahafinu og hvaðeina. Eitt sinn datt mér í hug að hlaupa Laugaveginn sem er 55 kíló- metra leið, alveg án þess að æfa hlaup, en ég bjó vel að hjólaforminu. Ég hljóp þetta á sex klukkutímum og sex mínútum og var í 12. sæti,“ segir Óttarr sem stóð fyrir því að hafa opið fyrir þá sem vildu stunda sjósund í Nauthólsvík árið 2006. „Það er ævintýri líkast hvernig það hefur þróast, við sjáum á gestabók- unum að um tuttugu þúsund manns hafa mætt í sjósundið á þessum sjö árum. Það er magnað að upplifa að margir koma helst í vitlausu veðri í stormi og stórhríð. Ein af ástæð- unum fyrir því að fólk mætir í sjó- sund til að synda í núll gráða heitum sjó þegar það hefur aðgang að 37 gráða heitum sundlaugum, er þörfin til að takast á við áskoranir.“ Krummarnir þekkja mig Nokkur dýr eru hluti af daglegu lífi þeirra sem starfa í Siglunesi, þar eru þrjár kanínur sem halda til á blettinum í kringum Sigluneshúsið og einnig hefur minkur reglulega viðkomu í grjótinu í flæðarmálinu. „Það er ágætt að hafa minkinn, hann heldur niðri rottunum. Og svo eru það krummarnir, þeir hópa sig sam- an hér, ætli þeir séu ekki um tólf þegar þeir eru flestir. Þeir búa inni í Fossvogi og koma hingað til að fá að éta, ég kem með matarafganga heiman frá mér og gef þeim alltaf á sama blettinum hér austan við sigl- ingaklúbbinn. Þeir fljúga stundum í flokk á eftir mér þegar ég hjóla heim í lok vinnudags. Ég hef á tilfinning- unni að þeir þekki mig, matföður sinn.“ Morgunblaðið/Rósa Braga Viðhald Sigurður Örn Aðalsteinsson starfsmaður var í óða önn að skafa gamla málningu af trébátnum Jónasi feita, hann þarf að mála á hverju vori. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013 www.volkswagen.is Volkswagen Caddy Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað. Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan- vélum frá framleiðanda. *Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur. Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós. Góður vinnufélagi Atvinnubílar Til afgreiðslu strax Fæst einnig fjórhjóladrifinn Caddy* kostar aðeins frá 3.090.000 kr. (2.642.151 kr. án vsk) HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Ef þig langar til að bæta kunnáttu þína í matargerð má gera ýmislegt til að auðvelda málin. Það skiptir t.d. máli að hafa öll hráefnin tilbúin, grænmetið skolað og þar fram eftir götunum. Þannig fær maður betri yf- irsýn yfir það sem á að fara saman og hvenær út í pottinn eða á pönnuna. Þá er auðvitað mikilvægt að ganga frá jafnóðum. Annað eykur hættuna á sulli og sóðaskap sem getur eyðilagt ánægjuna af eldhúsdútlinu. Eins er gott að yfirfara kryddskápinn til að vita hvað maður á og ákveða upp- skriftir út frá því. Betri eldamennska Morgunblaðið/Árni Sæberg Hráefni Hafðu allt tilbúið sem þarf. Röð og regla Í tilefni af degi lífeindafræðinga sem er í dag, verður opið hús hjá Rann- sóknakjarna bæði á LSH Hringbraut og LSH Fossvogi frá kl. 13.30-14.30. Lífeindafræðingar munu koma saman og vonast þeir til að sjá sem flesta. Allir eru velkomnir. Alþjóðlegur dagur lífeindafræðinga Lífeindafræði lykill að lækningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.