Morgunblaðið - 15.04.2013, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
Þú blómstrar meðALTA
nýja vatnshelda heyrnartækinu...
Alta eru ný heyrnartæki í hæsta gæðaflokki frá Oticon.
Hljóðvinnslan í Alta er sú þróaðasta fram til þessa og skilar þér meiri
skýrleika og framúrskarandi hljómgæðum.
Alta heyrnartækin eru vatnsheld!
G l æ s i b æ | Á l f h e i m um 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | www . h e y r n a r t æ k n i . i s
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
í síma 568 6880
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Byggingarfulltrúi hefur samþykkt umsókn
frá Höfðatorgi ehf. um byggingu nýs hótels á
Höfðatorgi við Borgartún. Fyrirhugað er að
hótelið verði rúmir 17 þúsund fermetrar að
stærð, á 16 hæðum með 342 herbergjum.
Unnið er að fjármögnun verkefnisins að sögn
Gunnars Vals Gíslasonar, framkvæmdastjóra
Höfðatorgs ehf. Niðurstaða um fjármögn-
unarþátt verkefnisins á að liggja fyrir um
miðjan maí. Bygging hótelsins hefur verið í
burðarliðnum um nokkra hríð en árið 2010
voru fyrirhugaðar framkvæmdir settar í salt.
Verktakafyrirtækið Eykt hefur séð um fram-
kvæmdir á Höfðatorgsreitnum og að sögn
Gunnars er áætlað að byggingartíminn sé um
tvö ár. Ásamt byggingu hótelsins er stefnt að
því að stækka bílakjallara undir Höfðatorgi.
3-4 stjörnu ferðamannahótel
Samkvæmt Birni Stefáni Hallssyni,
byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar, er um
að ræða hefðbundið 3-4 stjörnu ferðamanna-
hótel með þjónustu í anddyri og á efstu hæð
íbúðar-, atvinnu- og skrifstofuhúsnæði. Sam-
kvæmt Gunnari Val liggja ekki fyrir fleiri
framkvæmdir á svæðinu að svo stöddu. Á vef
Eyktar segir að skipulag Höfðatorgs gangi út
á að þar verði miðborgarstemning alla daga,
með kaffihúsum, veitingastöðum, verslunum,
þjónustufyrirtækjum, listsýningum og öðru
því sem einkennir mannlíf í hjarta
miðborgarinnar.
fyrirtækja en í hinni er skrifstofu- og fyr-
irtækjarekstur.
Miðborgarstemning við Höfðatorg
Þær fjórar byggingar sem eiga eftir að
rísa eru samkvæmt skipulagi sambland af
hótelsins. Að hans sögn er ekki gert ráð fyrir
aðstöðu til ráðstefnuhalds.
Samkvæmt skipulagi munu sjö bygg-
ingar rísa á Höfðatorgsreitnum. Þegar er bú-
ið að byggja tvær þeirra. Önnur hýsir starf-
semi Reykjavíkurborgar og nokkurra
Hyggjast byggja 16 hæða hótel
Byggingarfulltrúi hefur samþykkt leyfi fyrir byggingu 342 herbergja hótels Bílakjallari jafn-
framt stækkaður Áætlað að bygging hótelsins taki tvö ár Þriðja bygging af sjö á Höfðatorgi
Morgunblaðið/Golli
Hótellóð Hótelið á að rísa á Höfðatorgsreitnum og mun snúa að Skúlatúni.
16 hæða hótel
» Byggingarfulltrúi í Reykjavík hefur
veitt leyfi fyrir byggingu 16 hæða hótels
á Höfðatorgi í Borgartúni.
» Hótelið verður tvö ár í byggingu.
» Einnig stendur til að stækka bíla-
kjallara.
» Að sögn framkvæmdastjóra á enn
eftir að tryggja fjármögnun verkefn-
isins en niðurstaða um hana mun fást
fyrir miðjan maí.
Brunavarnir Suðurnesja áttu 100
ára afmæli síðastliðinn laugardag
en af því tilefni var Slökkviliðs-
minjasafn opnað í húsnæði Byggða-
safns Reykjanesbæjar í gamla
Rammahúsinu. Fjöldi fólks heim-
sótti safnið á laugardaginn en þar
var haldið sérstakt afmælishóf í til-
efni dagsins þar sem þessum tíma-
mótum var fagnað.
Á sýningunni má meðal annars
sjá fyrsta slökkviliðsbílinn í Kefla-
vík en hann mun vera glæsilega
uppgerður og líta út eins og nýr.
Jafnframt eru á sýningunni starfi
Brunavarna Suðurnesja gerð góð
skil í sérstakri tímalínu þar sem sjá
má fréttaumfjöllun um störf
slökkviliðsins í gegnum tíðina í
blöðum, og þá einkum Víkur-
fréttum.
Lengi hafa verið uppi áform um
að setja upp minjasafn um slökkvi-
liðið í Reykjavík en m.a. var áhugi
á því að setja slíkt safn upp við
Tjarnargötu í miðbæ Reykjavíkur.
Þá eru á Árbæjarsafninu ýmsir
munir frá slökkviliðinu í Reykjavík
og er þar jafnframt fjallað um
brunann sem átti sér stað í mið-
borg Reykjavíkur árið 1915 þegar
Hótel Reykjavík brann.
skulih@mbl.is
Nýtt slökkviliðsminjasafn
opnað í Reykjanesbæ
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Slökkviliðsbílar Á safninu má sjá eldrauða og fallega slökkviliðsbíla.
Allar gerðir Bílarnir eru ólíkir að gerð og lögun en eru þó allir rauðir.
Safnið opnað á 100 ára afmæli Brunavarna Suðurnesja