Morgunblaðið - 15.04.2013, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
fi p y j g p
C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
Villibráðar-paté prikmeð pa
Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró
Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ
- salat skufer
ðbo
arðameð Miðj
kjRisa-ræ
með peppadew iluS
ajónmeð japönsku m
het
Hörpuskeljar má, 3 s
Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer
Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð
Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R
sahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti m
Veitingar fyrir öll tækifæri,
stór og smá, fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Markmið okkar er alltaf það
sama, glæsilegar veitingar
og ómótstæðilegt bragð.
Persónuleg og góð þjónusta.
Sími 511 8090 • www.yndisauki.is
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
57
48
4
Benidorm
Costa del Sol
frá aðeins kr.
109.900
með hálfu fæði og drykk með mat
frá aðeins kr.
95.500
4. júní
í 7 eða 14 nætur
9. maí
í 20 nætur
20 nátta ferð – ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða frábært tilboð
í 7 nátta ferð til Benidorm þann
4 júní. Í boði er Hotel Melia ****
með hálfu fæði.
Hotel Melia ****
Kr. 109.900
með hálfu fæði.
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í herbergi
með hálfu fæði og drykk með mat í viku.
Aukagjald fyrir allt innifalið 19.600 krónur.
Sérstakur 15.000 króna afsláttur.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð
á Aguamarina íbúðarhótelinu þann
9. maí í 20 nætur. Önnur gisting í
boði á ótrúlegum kjörum.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða í
boði – verð getur hækkað án fyrirvara.
Aguamarina ***
Kr. 99.500
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í íbúð 20 nætur.
Verð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð m.
1 svefnherbergi kr. 113.900.
Félög sjálfstæðismanna í Reykjavík
vestur, boða í dag til fundar vegna
komandi Alþingiskosninga í kosn-
ingamiðstöðinni í Naustinu við
Vesturgötu klukkan 17.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, kemur í heim-
sókn í Naustið og verður við-
staddur fundinn, samkvæmt frétta-
tilkynningu frá félaginu.
Fundarstjóri verður Sólveig Pét-
ursdóttir, fyrrverandi ráðherra.
Boðið verður upp á veitingar og eru
allir velkomnir.
Bjarni Benediktsson
á fundi í Naustinu
Morgunblaðið/Ómar
Fundur í Naustinu Bjarni Benediktsson
heimsækir kosningamiðstöðina.
Sveit Álfhólsskóla vann sigur á
spennandi Íslandsmóti barna-
skólasveita í skák sem fram fór í
Rimaskóla um helgina. Skólinn
varði Íslandsmeistaratitil sinn en
sveitin vann einnig mótið árið
2012. Skáksveit Rimaskóla varð í
öðru sæti og skáksveit Hraun-
vallaskóla úr Hafnarfirði tók
þriðja sætið.
Sveitir Álfhólsskóla og Rima-
skóla höfðu allmikla yfirburði.
Álfhólsskóli mun því taka þátt í
Norðurlandamóti barna-
skólasveita sem fram fer í Finn-
landi í september 2013. Á síðasta
Norðurlandamóti, sem haldið var
í Svíþjóð, lenti Álfhólsskóli í öðru
sæti en sveitin er ákveðin í að
gera enn betur núna í haust.
Skáksveit Álfhólsskóla skipuðu
Dawid Kolka, Felix Steinþórsson,
Guðmundur Agnar Bragason og
Oddur Þór Unnsteinsson. Skák-
kennari og liðsstjóri er Lenka
Ptácníková.
Álfhólsskóli sigraði í skákinni
Skáklið Sigursveit Álfshólsskóla á
Íslandsmóti barnaskólasveita.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Samkvæmt nýrri viðhorfskönnun
sem Capacent Gallup vann fyrir
Landvernd eru 43,6% landsmanna
andvíg virkjanaframkvæmdum í
Bjarnarflagi við Mývatn en 30,5%
eru hlynnt þeim. 25,9% tóku ekki af-
stöðu með eða á móti. Stuðningur
við framkvæmdirnar er meiri meðal
karla en kvenna en 42% þeirra sögð-
ust vera frekar, mjög eða alfarið
hlynntir virkjanaframkvæmdunum
en 51% kvenna segist vera frekar,
mjög eða alfarið andvígt fram-
kvæmdunum.
Niðurstöður könnunarinnar voru
kynntar á aðalfundi Landverndar,
sem haldinn var um helgina.
51,3% vilja ekki fleiri álver
Í sömu könnun var spurt um af-
stöðu fólks til þess að fleiri álver
yrðu reist hér á landi til viðbótar við
þau sem þegar eru starfandi. 51,3%
reyndust andvíg fleiri álverum en
30,9% hlynnt. Töluverður munur er
einnig á afstöðu kynjanna til þess-
arar spurningar. 39% karla eru
hlynnt byggingu fleiri álvera en 44%
eru á móti. Aðeins 22% kvenna eru
hins vegar hlynnt því að fleiri álver
verði reist en 59% eru andvíg því.
1.450 manns voru í úrtaki könn-
unarinnar, 588 svöruðu ekki og var
svarhlutfallið 59,4%.
Í ályktun sem samþykkt var á
aðalfundi Landverndar segir að
Umhverfisstofnun hafi sett Mývatn
á rauðan lista yfir svæði sem eru
talin í verulegri hættu á að tapa
verndargildi sínu. Vísað er til yf-
irlitsskýrslu Umhverfisstofnunar
þar sem segi m.a. um ógnir sem
steðja að Mývatni: ,,Áform eru um
að virkja í Bjarnarflagi og óvissa
ríkir um áhrif virkjanafram-
kvæmda á vistkerfi Mývatns.“
Sérstaða á heimsvísu
Því hvetur aðalfundur
Landverndar verkefnisstjórn 3.
áfanga rammaáætlunar og Alþingi
til að endurskoða flokkun Bjarnar-
flags í rammaáætlun, þannig að
svæðið færist að minnsta kosti í
biðflokk á meðan möguleg áhrif
Bjarnarflagsvirkjunar á lífríki Mý-
vatns eru rannsökuð. Alþingi er
einnig hvatt til að lögleiða að nýju
vernd Mývatns- og Laxársvæðisins
sem var afnumin með lögum nr. 97/
2004.
„Einstakt lífríki Mývatns skapar
því sérstöðu á heimsvísu og í
verndaráætlun fyrir Mývatn og
Laxá segir að það sé skylda núlif-
andi kynslóðar að varðveita sér-
stöðu svæðisins og þar með að
tryggja komandi kynslóðum sama
aðgengi og svipaða upplifun og við
getum notið nú í dag,“ segir í álykt-
un aðalfundar Landverndar.
Morgunblaðið/Rax
Borhola í Bjarnarflagi Áformaðar virkjunarframkvæmdir eru umdeildar.
43,6% segjast
á móti virkjun
í Bjarnarflagi
Landvernd vill að svæðið fari í biðflokk