Morgunblaðið - 15.04.2013, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
www.gengurvel.is
PRO•STAMINUS
ÖFLUGT NÁTTÚRULEGT EFNI FYRIR KARLMENN
Pissar þú oft á
nóttunni?
Er bunan orðin
kraftlítil?
PRO•STAMINUS er spennandi nýjung
sem er fyrst og fremst ætluð karlmönnum
semhafa einkenni góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli sem getur valdið
vandræðum við þvaglát.
PRO•STAMINUS fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Japanska prinsessan Aiko brosti breitt til vin-
konu sinnar þegar hún spilaði á árlegum tón-
leikum sinfóníuhljómsveitar skólans Gakushuin í
Tókýó.
Aiko, sem er tólf ára er eina dóttir foreldra
sinna, krónprinsins Naruhito og krónprinsess-
unnar Masako. Faðir hennar spilaði einnig með
hljómsveitinni og lék á fiðlu. Þetta var í fyrsta
skipti sem þau tvö spiluðu saman opinberlega.
Faðir hennar Naruhito mun líklega sitja sem
keisari í Japan eftir daga föður síns þar sem
hann er réttmætur ríkisarfi, elstur bræðra.
AFP
Japönsk prinsessa lék af fingrum fram
Mikil hrina
árása gekk yfir
Mogadishu, höf-
uðborg Sómalíu,
í gær. Talið er
að að minnsta
kosti 34 hafi lát-
ist. Vopnaðir
menn réðust inn
í dómshúsið,
hófu skothríð og sprengdu upp
vesti og á sama tíma sprakk bíl-
sprengja. Samtökin Shebab, sem
tengjast Al-Queda, hafa lýst ódæð-
inu á hendur sér.
SÓMALÍA
34 létu lífið í
mikilli árásahrinu
Íbúar Venesúela gengu til kosninga
í gær og kusu sér nýjan forseta; eft-
irmann Hugo Chavez, sem lést 5.
mars síðastliðinn. Valið stendur á
milli tveggja frambjóðenda, Nicolas
Maduro, starfandi forseta, og
Henrique Capriles, sem tapaði fyrir
Chavez í kosningunum í október í
fyrra.
Formlegri kosningabaráttu lauk
á fimmtudaginn en þrátt fyrir það
hefur Maduro komið reglulega
fram í sjónvarpi og hvatt lands-
menn til að taka þátt í kosning-
unum. Maduro kom fram í sjón-
varpsávarpi um helgina og heiðraði
minningu Chavez. Með þessum
gjörðum sínum virti hann að vett-
ugi kvartanir stjórnarandstæðinga
um að hann misnotaði fjölmiðla í
eigin þágu.
Maduro hefur heitið því að halda
áfram á sömu braut og Chavez
markaði en hyggst draga enn frek-
ar úr fátækt í landinu. Maduro þyk-
ir sigurstranglegri af skoðana-
könnunum að dæma.
VENESÚELA
Íbúar Venesúela
kjósa nýjan forseta
AFP
Kosningar Langar raðir mynduðust.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
John Terry, sagði í gær að bandarísk
stjórnvöld væru skuldbundin að fullu
til þess að verja Japan, ef til kjarn-
orkuárása Norður-Kóreu kæmi. Ráð-
herrann tilkynnti þetta á fundi sem
hann átti í Tókýó í gær með Fumio
Kishida utanríkisráðherra Japans. Þá
sögðust þeir báðir ekki sætta sig við
að Norður-Kóreumenn byggju yfir
kjarnavopnum til frambúðar en von-
uðust þó til að hægt yrði að afvopna
Norður-Kóreu með friðsamlegum
hætti.
Þjóðirnar legðu allt kapp á að æski-
legast væri að fara samningaleiðina
við Norður-Kóreumenn. Kerry varaði
þá við frekari einangrun ef þeir héldu
hótunum sínum til streitu.
Búist er við því að Norður-Kóreu-
menn muni skjóta eldflaug á loft á
næstunni. KCNA, ríkisútvarp Norð-
ur-Kóreu, lýsti því yfir á föstudaginn
að ef Japanir reyndu að skjóta niður
eldflaugina myndi það þýða stríð. Á
Japan myndi kjarnorkubál loga glatt,
sagði m.a. í fréttaskýringu ríkisút-
varpsins.
Tokíó er síðasti viðkomustaður
John Kerry í reisu hans um Asíu, sem
miðar að því að lægja ófriðaröldurnar.
Í heimsókn Kerry til Peking í Kína
lagði hann áherslu á að tími væri
kominn til að stjórnvöld í Kína gripu
inn í ef þau vildu varðveita stöðug-
leika á svæðinu.
thorunn@mbl.is
Bandaríkin munu verja Japan
AFP
Fundur John Kerry og Fumio Kis-
hida utanríkisráðherrar í Tokýó.
Sætta sig ekki við kjarnorkueign
Norður-Kóreu Vilja samningaleið
Tvö ný tilvik fuglaflensu, H7N9,
hafa greinst í héraðinu Henan í
Kína. Hvorki vinir né fjölskylda,
sem voru í nánu samneyti við þá sem
sýktust, hafa veikst. Tilvikin greind-
ust daginn eftir að að sjö ára stúlka
hafði sýkst af fuglaflensu í Peking.
Yfirvöld segja að ellefu hafi þegar
látist af flensunni, alls hafa um 60
einstaklingar greinst með flensuna.
Sjö af þeim sem hafa látist eru á sjö-
tugsaldri.
Fyrsta tilvikið greindist í febrúar
í Suður-Kína, en nú hefur það
greinst á þremur öðrum stöðum í
landinu.
Enginn hefur greinst með fugla-
flensu utan landsins, samkvæmt
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO
sem jafnframt fullyrðir að flensan
berist ekki milli manna heldur frá
fiðurfénaði. Kínversk stjórnvöld
hafa hert reglur um viðskipti með
fiðurfénað og bannað er að versla
með lifandi fugla.
Auka skal upplýsingaflæði
Stofnunin hefur ennfremur hvatt
stjórnvöld Kína til að auka upplýs-
ingaflæði og gegnsæi í fréttaflutn-
ingi um útbreiðslu fuglaflensunnar.
Til að koma í veg fyrir að sama
ástand skapist nú og þegar svokall-
aður Sars-vírus breiddist út um all-
an heim árið 2003, þá smituðust
8.096 manns og 744 létu lífið.
AFP
Fuglaflensa Fólk ber grímur í Kína til að forðast að smitast af fuglaflensu.
Tvö ný tilvik
fuglaflensu
Berst ekki milli manna 11 látnir