Morgunblaðið - 15.04.2013, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
Þessir vordagar eru annasamir en skemmtilegir. Að undanförnuhefur verið í mörg horn að líta hjá mér t.d. vegna Prestastefnusem hefst á morgun. Svo er það afmælið. Í gær, sunnudag, kom
hingað fjöldi gesta sem fagnaði með okkur þessum tímamótum. Þarna
voru gamlar minningar rifjaðar upp og það má segja að þarna hafi
fjórir áratugir verið teknir fyrir á jafn mörgum klukkutímum,“ segir
sr. Árni Svanur Daníelsson sem er fertugur í dag.
Árni Svanur er Reykvíkingur að uppruna, annar tveggja sona
þeirra Guðrúnar Þorbjargar Svansdóttur og Daníels Árnasonar sem
bæði eru látin. „Ég gekk í Vogaskóla og ólst upp hér í Vogahverfinu
og hér bý í dag. Og börnin mín fara í gamla skólann minn – og því var
það með nokkru stolti sem ég hitti gamla skólastjórann minn á dög-
unum og sagði honum að hjónin hefðum skilað af okkur alls þremur
dætrum í þessa góðu menntastofnun,“ segir Árni sem er kvæntur sr.
Kristínu Þórunni Tómasdóttur og eiga þau alls sex börn.
Frá árinu 2001 hefur Árni Svanur starfað á Biskupsstofu – og hefur
þar upplýsinga- og fjölmiðlamál með höndum. „Kirkjan hefur verið
starfsvettvangur minn alla tíð,“ segir sr. Árni sem með Kristínu Þór-
unni vinnur að ýmsum verkefnum. Má þar nefna útgáfu Kirkjuritsins
en nýtt hefti þess er væntanlegt úr prentsmiðjunni strax eftir helgi.
sbs@mbl.is
Árni Svanur Daníelsson er 40 ára í dag
Prestur Kirkjan hefur verið starfsvettvangur minn alla tíð,“ segir sr.
Árni Svanur Daníelsson sem sinnir fjölmiðlamálum Biskupsstofu.
Fjörutíu ár á fjór-
um klukkutímum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Grindavík Björgvin Máni fæddist 13.
júlí. Hann vó 4.065 g og var 54 cm
langur. Foreldrar hans eru Inga Björg
Símonardóttir og Ekasit Thasaphong.
Nýir borgarar
Egilsstaðir Hallgrímur Vopni fæddist
3. júlí kl. 16.52. Hann vó 4.720 g og var
58 cm langur. Foreldrar hans eru Jón-
ína Brynjólfsdóttir og Davíð Arnar
Sigurðsson.
I
nga fæddist á Landamótum í
Köldukinn og ólst þar upp
til tíu ára aldurs er hún
flutti að Veisu í Fnjóskadal
þar sem hún sinnti öllum al-
mennum sveitastörfum þess tíma á
búi foreldra sinna.
Inga stundaði nám við Héraðs-
skólann á Laugarvatni 1934-35. Hún
starfaði við búið í Gunnarsholti á
Rangárvöllum sumarið 1935 og var
ráðskona við búið á Hólum í Hjalta-
dal 1936-37.
Inga fluttist til Reykjavíkur 1943
og hefur átt þar heima síðan. Auk
húsmóðurstarfa gegndi hún ýmsum
störfum utan heimilis. Hún var mikil
hannyrðakona, prjónaði mikið af
treflum, húfum og vettlingum og
öðrum ullarflíkum sem seldar voru í
Rammagerðinni við miklar vinsæld-
ir. Þá saumaði hún föt, kjóla og
skyrtur á fjölskylduna.
Inga tók þátt í starfi Kvenfélags
Inga Dagmar Karlsdóttir húsfreyja – 100 ára
Með börnunum Inga Dagmar, ásamt börnum sínum, Þuríði Ingunni, Karli Kristjáni, Einari og Helgu Karítas.
Gengur gjarnan kring-
um Klambratúnið
Úti í náttúrunni Með Þuríði Ingunni og Benedikt Þorvaldssyni.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
GÆÐI — ÞEKKING — ÞJÓNUSTA
EFNALAUG
ÞVOTTAHÚS
DÚKALEIGA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík
www.bjorg.is • Sími 553 1380