Morgunblaðið - 10.05.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 10.05.2013, Síða 4
SVIÐSLJÓS Skúli Hansen skulih@mbl.is „Ráðuneytið ákveður þannig að setja megi í gang rekstur án þess að afla starfsleyfis og gengur svo langt að vísa til skilmála starfsleyfis óskylds félags, Als, álvinnslu. Við gátum ekki sætt okkur við þetta, kvörtuðum til umhverfisráðuneytis- ins og vildum fá skýringar á þessu. Það komu engar haldbærar skýr- ingar frá því,“ segir Halldór Jóns- son, framkvæmdastjóri Als, ál- vinnslu hf. í Helguvík. Kratus sérhæfir sig í endurvinnslu á álgjalli og er starfrækt á Grundartanga. Segir þetta dæmalaust Halldór furðar sig á því að Kratus hafi síðasta sumar fengið undan- þágu frá því að sækja um starfsleyfi en sú undanþága gilti til 1. mars sl. Þá hafi hún nýverið verið framlengd þrátt fyrir aðfinnslur Als, álvinnslu. Halldór hefur sent inn kvörtun til umhverfisráðuneytisins vegna fram- lengingar á undanþágu fyrirtækis- ins Kratus frá því að hafa gilt starfs- leyfi. Hann bendir á að Kratus hafi fengið heimild til að fara ekki í um- hverfismat þótt starfsemi þess sé án efa matsskyld. Þá segir hann dæma- laust að eitt fyrirtæki hafi getað fengið leyfi til að starfa á grundvelli starfsleyfis annars fyrirtækis. Gamaldags aðferð Halldór segir ekki mikið jafnræði fólgið í þessu enda hafi Alur, ál- vinnsla þurft að fara í gegnum um- hverfismat áður en félagið fékk starfsleyfi. Að sögn hans er sú að- ferð sem Kratus beitir við endur- vinnslu álgjalls gamaldags og í eðli sínu ólík þeirri umhverfisvænu að- ferð sem Alur, álvinnsla beitir við endurvinnslu álgjalls. Því valdi það áhyggjum að undanþága Kratusar sé veitt á grundvelli starfsleyfis Als, álvinnslu, enda sé umrætt starfs- leyfi sérsniðið að framleiðsluferlum fyrirtækisins. „Þeir blanda salti við álgjallið sem þeir fá og þeir brenna þetta síðan, en þegar salt brennur þá er hætta á að til verði díoxín. Við bætum hins- vegar engu efni við og vinnum ál- gjallið sem sagt alveg með hreinum aðferðum,“ segir Halldór og bætir við: „Það er óheimilt að fallast á nýj- an rekstur sem hefur útblástur díoxíns í för með sér.“ Vísar þar til Stokkhólms-samningsins um þrá- virk lífræn efni, sem Ísland er aðili að. Þolmörkum náð Halldór skilur ekki hvers vegna nýr rekstur sem bætir við díoxín- mengun á svæði sem er þegar komið upp að þolmörkum þurfi ekki að fara í starfsleyfi áður en rekstur hefst. Vísar hann með þessum orð- um sínum til nýlegrar úttektar sér- fræðingahóps á vegum Faxaflóa- hafna sem komst að þeirri niðurstöðu að þolmörkum væri náð á Grundartanga hvað varðar styrk brennisteinsdíoxíðs við jaðar þynn- ingarsvæðisins. Aðspurð segist Svandís Svavars- dóttir umhverfisráðherra vera kom- in með umrætt mál á sitt borð og kveðst hún vera með það til skoð- unar. Furðar sig á undanþágu Kratusar  Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri Als, álvinnslu, segir það dæmalaust að fyrirtækið Kratus hafi getað fengið leyfi til að starfa á grundvelli starfsleyfis Als  Kvartar til umhverfisráðuneytisins © Mats Wibe Lund Grundartangi Loftmynd af iðnaðarsvæðinu á Grundartanga. Starfsemi Kratusar er á Grundartanga en þar fer fram endurvinnsla á álgjalli. Kratus » Fyrirtækið er á Grund- artanga og sérhæfir sig í end- urvinnslu álgjalls. » Það fékk undanþágu frá því að sækja um starfsleyfi 12. júní 2012. Undanþágan var fram- lengd í marsmánuði sl. » Alur, álvinnsla er með starf- semi sína í Helguvík. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 Aðalsafnaðarfundur Grafarholtssóknar Aðalsafnaðarfundur Grafarholtssóknarverður haldinn eftir messu í Guðríðarkirkju 12. maí kl. 12:15. • Venjuleg aðalfundarstörf • kosningar í sóknarnefnd • Önnur mál. Sóknarnefndin Guðmundur Stefán Maríusson, einn af þremur Íslend- ingum sem hafa klifið hlíðar Everest undanfarnar vik- ur, er hættur við tilraun sína til að ná á toppinn. Síð- ustu dagar hafa farið í aðlögun þar sem fjallgöngumennirnir klífa upp og niður til skiptis og reyna þannig að venjast hækkuninni og kvillunum sem fylgja þunna loftinu. Ingólfur Geir Gissurarson, félagi Guðmundar, heldur áfram för sinni. Að sögn Jóns Jóhanns Þórðarsonar, talsmanns félag- anna, hætti Guðmundur við eftir seinni aðlögunarferð- ina upp í hlíðar Everest. Hann glímdi við veikindi í öðr- um búðum fjallsins, sem eru í 6.480 metra hæð, og á leið upp í þriðju búðir fékk hann sáran brjóstverk sem hvarf ekki. „Ef ég væri 25 árum yngri hefði ég haldið áfram en maður verður að hafa skynsemina ofar keppnisskapinu,“ sagði Guðmundur í samtali við Jón Jóhann. Áður en Guðmundur kvaddi ferðafélaga sína hélt hópurinn kveðjustund. „Borðuð var kaka og horft á kvikmynd, “ segir Jón. Einnig voru fluttar ræður til heiðurs Guðmundi. Hæðaraðlögun hópsins er nú lokið og hvílist Ingólfur nú fyrir lokaátökin. Leifur Örn Svavarsson, sem einnig klífur Everst, hefur náð því markmiði sínu að gista einn í 7.000 metra hæð. Næsta markmið var að komast upp í 7.700 metra hæð en að sögn Sigrúnar Hrannar Hauksdóttur, eig- inkonu Leifs, hefur veður aftrað för hópsins. „Þetta var aðallega vegna þess að það var ekki breyting á veð- urspánni næstu vikuna,“ segir Sigrún. „Því var ekkert vit í því að vera á ferðinni.“ Þar af leiðandi var ákveðið að halda niður í grunnbúðir og ná þar góðri hvíld. „Hópurinn mun jafnvel lækka sig meira,“ segir Sigrún. Í framhaldi af því verður beðið eftir að veðrið leyfi áframhaldandi göngu og einnig eftir að línur verði til- búnar. Að sögn Sigrúnar er ekki raunhæft að gera ráð fyrir að Leifur nái á toppinn fyrr en um 20. maí næstkom- andi. larahalla@mbl.is Ljósmynd/Adventure Consultants Ævintýri lokið Fjallgöngugarpurinn Guðmundur Stefán Maríusson áður en hann hélt heim á leið í gær. Hættur við toppinn  Guðmundur glímdi við veikindi á leið upp Everest  Ingólfur og Leifur Örn halda áfram að markinu Kæra nokkurra hvalaskoðunarfyrir- tækja vegna ákvörðunar Siglinga- stofnunar um farþegafjölda og ör- yggismál svokallaðra RIB-báta er til skoðunar hjá innanríkisráðuneytinu. Þetta staðfestir Jóhannes Tómas- son, upplýsingafulltrúi ráðuneytis- ins, í samtali við blaðamann. Að sögn Jóhannesar eru vonandi bara fáar vikur í að ráðuneytið skili niðurstöðu sinni í málinu. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær eru hvalaskoðunarfyrirtæki sem gera út svokallaða RIB-báta ósátt við þær kröfur sem Siglinga- stofnun hefur viljað gera til reksturs bátanna með tilliti til öryggismála. Til dæmis má nefna að stofnunin vill að ekki séu fluttir fleiri en tólf far- þegar með bátunum þó svo að þeir rúmi átján farþega. Auk þess vill stofnunin að farþegarnir séu klæddir björgunarflotgöllum meðan á sigl- ingu stendur á tímabilinu frá 30. september til 1. júní ár hvert. Í viðbótargögnum sem þrír rekstraraðilar RIB-báta sendu inn- anríkisráðuneytinu vegna fyrr- nefndrar stjórnsýslukæru kemur meðal annars fram að umræddir að- ilar krefjast þess aðallega að ákvörð- un Siglingastofnunar verði hnekkt en til vara að henni verði frestað fram til hausts þar til frekari lausna- miðaðar umræður og ákvarðanir geta farið fram og fengið ítarlega skoðun, bæði með Siglingastofnun, hagsmunaaðilum sem og hlutaðeig- andi ráðuneytum. Ennfremur krefjast fyrirtækin þess að ráðuneytið beini þeim til- mælum til stofnunarinnar, ef til þarf með bráðabirgðareglugerð fram til haustsins 2013, að hún veiti farþega- leyfi fyrir umrædda báta fyrir árið 2013 á því tímabili sem óskað er eftir, í samræmi við fjölda sæta og björg- unarbúnaðar um borð í hverjum bát. skulih@mbl.is Kæra vegna RIB-báta í skoðun í ráðuneyti  Segir vonandi fáar vikur í niðurstöðu Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Sjóferð RIB-bátur á siglingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.