Morgunblaðið - 10.05.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013
HTH er metnaðarfullt danskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu
á innréttingum í eldhús og baðherbergi – auk fataskápa.
HTH er einn stærsti framleiðandi innréttinga í Evrópu, enda er dönsk
hönnun og danskt handverk eftirsótt og mikils metið um heim allan.
Komdu og upplifðu af eigin raun þá snilld, þegar saman fer listræn
sýn hönnuða, nákvæmar og framúrstefnulegar lausnir, framleiðsla
sem stenst fyllilega allan samanburð og uppfyllir ströngustu gæða-
og umhverfisstaðla.
Velkomin í ORMSSON LÁGMÚLA 8 og kynnist því nýjasta og
flottasta í eldhúsinnréttingum frá HTH – og því heitasta í AEG
eldhústækjum. Við hönnum án skuldbindinga fyrir þig tillögur að
nýja draumaeldhúsinu þínu og gerum þér frábært verðtilboð.
ELDHÚSIÐ ER HJARTA HEIMILISINS
ELDHÚSDAGAR
20%
afsláttur af öllumHTH innréttingum í maí!
20%
afsláttur af
hágæða AEG
eldhústækjum*
*með kaupum á HTH eldhúsinnréttingum
Helgaropnun:
LAUGARDAG FRÁ KL. 11-16
SUNNUDAG FRÁ KL. 13-16
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · 2. HÆÐ · SÍMI: 530-2819 & 530-2821
í ORMSSON
Jose Manuel Barroso, forseti fram-kvæmdastjórnar ESB, fer ekki
leynt með hvert sambandið stefnir.
Breska dagblaðið Telegraph segir
frá því að hann hafi hellt olíu á eld
umræðunnar um aðild Bretlands að
sambandinu með því að lýsa því yfir
að fjármálalegur samruni evrusvæð-
isins muni leiða til „aukins pólitísks
samruna“ allra 27 aðildarríkjanna.
Málið snýst aðsögn Barroso
um efnahagslegan
og peningalegan
samruna fyrir allt
Evrópusambandið.
Framkvæmdastjórn-
in muni brátt setja
fram slíkar hug-
myndir og þær verði
orðnar að veruleika
innan fárra ára.
ÍBretlandi vekjaþessi ummæli Barroso athygli
vegna þess að Cameron forsætisráð-
herra hyggst reyna að endurheimta
eitthvað af fullveldinu sem landið
hefur misst til Brussel.
Ummæli Barroso eru að ein-hverju leyti svar við þessum
áformum enda segir hann alla leið-
toga í Evrópu verða að sætta sig við
að pólitískur samruni sé óhjá-
kvæmilegur.
Íslenskir aðildarsinnar halda þvífram að Ísland geti fengið afslátt
af kröfum ESB í því sem þeir kalla
„samningaviðræður“ þó að enginn
árangur hafi enn náðst og engar vís-
bendingar séu um afslátt, nema síð-
ur sé.
Ætla þeir líka að halda því framað Ísland fengi afslátt þegar
kemur að þessum aukna samruna
sem Barroso og aðrir leiðtogar ESB
ætla sér að knýja í gegn á næstu ár-
um?
Jose Manuel
Barroso
Óhjákvæmileg
samrunaþróun
STAKSTEINAR
David Cameron
Veður víða um heim 9.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 7 léttskýjað
Akureyri 8 skýjað
Nuuk -1 snjókoma
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló 13 skýjað
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Helsinki 20 skýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 8 skúrir
Glasgow 10 skúrir
London 13 skýjað
París 16 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 24 léttskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 23 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 23 heiðskírt
Róm 22 léttskýjað
Aþena 18 skýjað
Winnipeg 7 skýjað
Montreal 21 skýjað
New York 13 skúrir
Chicago 22 alskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:28 22:21
ÍSAFJÖRÐUR 4:12 22:48
SIGLUFJÖRÐUR 3:54 22:31
DJÚPIVOGUR 3:52 21:56
LEIÐRÉTT
Fyrsta nýja flugvélin
keypt 1930
Sagt var frá því 1. maí sl. að TF-
KAK væri fyrsta nýja flugvélin sem
keypt var til Íslands og það árið
1946. Hið rétta er að Albert Jóhann-
esson keypti nýja vél frá Irwing-
verksmiðjunum í Bandaríkjunum
árið 1930 og var hún gjarnan kölluð
„Vífilsstaðavélin“.
Hækka þarf skattleysismörk veru-
lega til kjarabóta fyrir eldri borgara.
Þetta kom fram á landsfundi Lands-
sambands eldri borgara sem haldinn
var í Hafnarfirði 7. og 8. maí síðast-
liðinn. Á fundinum voru settar fram
nokkrar ályktanir um kjaramál eldri
borgara. Þar kom meðal annars
fram að hækka þyrfti skattleysis-
mörk verulega, enda væri það besta
kjarabótin fyrir eldri borgara.
Lögð var áhersla á niðurskurð á
kjörum aldraðra frá miðju ári 2009
þegar bætur voru skertar. „Sá mikli
niðurskurður hefur haft áhrif á kjör
þúsunda eldri borgara á undanförn-
um árum,“ segir í tilkynningu frá
Landssambandi eldri borgara. „Því
er skorað á nýkjörna þingmenn að
virða réttarstöðu aldraðra.“
Leiðrétting vanefnd
Fundurinn skoraði á verðandi rík-
isstjórn að taka til við að innleiða
nýtt frumvarp um almannatryggn-
ingar. „Vanefndir við að leiðrétta
kjör eldri boragara í samræmi við
launaþróun brjóta í bága við lög.“
Fundurinn lýsti einnig yfir
óánægju vegna mikilla hækkana sem
tóku gildi um síðastliðin áramót, en
þær felast meðal annars í hærri
læknis-, sjúkraþjálfunar- og nú síð-
ast lyfjakostnaði. Þá var óskað eftir
nýrri stefnu við álagningu fasteigna-
gjalda. larahalla@mbl.is
Skora á
nýja þing-
menn
Ályktað um kjara-
mál eldri borgara