Morgunblaðið - 10.05.2013, Side 9

Morgunblaðið - 10.05.2013, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Ný sending frá nanso www.rita.is Ríta tískuverslun Bæjarlind 6, sími 554 7030 Ermalausir toppar kr. 5.900 Str. 40-58 Litir: bleikt, svart, hvítt, coral „Síðastliðin þrjú ár eru reykingar nær óþekktar meðal allra grunnaskólanema á Seltjarnarnesi og áfengis- neysla heyrir sögunni til,“ segir Soffía Karlsdóttir, sviðsstjóri menningar- og samskiptasviðs Seltjarn- arness. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem gerð var meðal nemenda í 8.-10. bekk í grunnskólum landsins. Þar kemur einnig fram að á landsvísu er vímu- efnaneysla meðal grunnskólabarna einna minnst á Sel- tjarnarnesi. Undir neysluna sem könnuð er falla dag- legar reykingar, munn- og neftóbaksnotkun, áfengisdrykkja og neysla ólöglegra fíkniefna. Árangurinn einstakur Að sögn Jóns Sigfússonar, framkvæmdastjóra fyr- irtækisins Rannsóknir og greining sem sér um rann- sóknina, er árangurinn einstakur fyrir sveitarfélagið. Ljóst er að miklar framfarir hafa orðið en árið 1998 höfðu 60% nemenda í 10. bekk orðið ölvuð einu sinni eða oftar síðastliðna þrjátíu daga. Á síðasta ári fyllti enginn nemendanna þennan hóp og aðeins tvö þeirra, eða 4%, féllu undir þessa skilgreiningu í könnuninni í ár. Síðastliðin tvö ár hefur neysla neftóbaks verið óþekkt meðal nemenda í 8.-10. bekk á Seltjarnarnesi og á það sama við um neyslu marijúana. Frá árinu 2012 hefur enginn nemendanna neytt hass eða amfetamíns. Þá er neysla munntóbaks óþekkt í öllum þremur árgöngunum frá 2012. Afþreyingin skiptir unglingana máli Sigrún Hvanndal Magnúsdóttir, yfirfélagsráðgjafi bæjarins, þakkar þennan góða árangur öflugum sam- ráðshópi um áfengis- og vímuvarnir sem starfræktur hefur verið í bæjarfélaginu frá árinu 1998 þegar ástand- ið var hvað verst. Samráðshópurinn hittist reglulega en hann skipa ein- staklingar sem tengjast börnunum og unglingunum í bæjarfélaginu. „Þar berum við saman bækur og tökum á málum ef þess gerist þörf,“ segir Sigrún. Að sögn Sigrúnar hafa kannanir síðastliðin ár sýnt að starf hópsins er afar mikilvægt.„Við höfum fundið fyrir því að þegar gengur vel og slakað er á, þá kemur könn- unin verr út árið eftir,“ segir Sigrún. Því er afar mik- ilvægt að halda starfinu áfram og slaka hvergi á þó kannanir komi vel út. „Þetta er langhlaup sem krefst þolinmæði,“ segir Sigrún. „Nú er samfélagið að upp- skera ríkulegan árangur.“ Starf félagsmiðstöðvarinnar er mjög virkt og í haust stendur til að opna ungmennahús þar sem boðið verður upp á dagskrá fyrir ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára. „Börnin fara alltaf út fyrir bæjarmörkin í framhalds- skóla,“ segir Sigrún. „Við vildum skapa vettvang þannig að gamlir skólafélagar geti hist,“ bætir hún við og legg- ur áherslu á mikilvægi afþreyingar fyrir unglingana. Þar verður meðal annars bæði fræðsla, námskeið og skemmtidagskrá fyrir ungmennin. Sem hluti af forvarnarverkefninu var fyrir nokkrum árum sett á laggirnar ungmennafélag sem er með öfl- uga starfsemi. Að sögn Soffíu styður bærinn dyggilega við það á ýmsan máta. larahalla@mbl.is Unglingar á Seltjarnarnesi neyta síst vímuefna  Mikil bæting frá fyrri árum  Öflugur samráðshópur Morgunblaðið/Ernir Góður árangur Seltjarnarnesbær kemur vel úr úr ár- legri könnun á vímuefnaneyslu nemenda í 8.-10. bekk. mbl.is Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.