Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 10
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
L
ífefnafræðingar sem
gefa út vísindaskáld-
sögur á rafbók eru
ekki á hverju strái en
lífefnafræðingurinn
Guðný Ella Thorlacius er þó
einn þeirra. Guðný Ella útskrif-
aðist með meistaragráðu í líf-
efnafræði fyrir tveimur árum og
starfar nú hjá DeCode. Hún segir
lífefnafræðina ætíð hafa heillað og
verði hún áfram sitt aðalstarf þótt
ágætt sé að sinna ritstörfum með.
Skáldsaga Guðnýjar Ellu, sem
skrifuð er á ensku, heitir „Hidden
Luck“ og gaf hún bókina út sjálf á
Amazon.
Hugmynd komst loks á blað
„Skriftir hafa verið mitt aðal-
áhugamál síðan ég var mjög ung
en síðan byrjaði ég að skrifa af al-
vöru fyrir fimm árum. Þá ákvað
ég að setjast niður og koma loks-
ins frá mér hugmynd sem ég hafði
fengið þegar ég var að læra goða-
fræði í grunnskóla. Í goðafræðinni
eru jú miklar sögur og ævintýri og
kviknaði því hjá mér sú hugmynd
að skrifa sögu í kringum þann
ævintýraheim. Þetta varð síðan að
gæluverkefni sem ég vann á
kvöldin og í frítíma. Að lokum var
sagan svo allt í einu tilbúin og
komið að þeim punkti að leyfa
fleirum en vinum og fjölskyldu að
lesa. Það var stórt skref en ég
fékk góð viðbrögð og ákvað að
gefa bókina út í gegnum Amazon.
Þeir reka eigið útgáfufyrirtæki,
Kindle Direct Publishing, sem er
auðveld leið fyrir fólk til að koma
sögum sínum á framfæri. Svo er
aldrei að vita hvað gerist, en sá
möguleiki er alltaf fyrir hendi að
einhver uppgötvi söguna manns
þarna inni og vilji gefa hana út. Þá
er sá sveigjanleiki fyrir hendi að
geta tekið hana út hjá Amazon og
t.d. fengið hana prentaða,“ segir
Guðný Ella.
Hálfur guð
Sagan „Hidden Luck“ er um
unga stelpu sem heitir Lucky en
hún kemst að því einn daginn að
hún er hálfur guð. Mamma hennar
var Iðunn og foreldar hennar sem
ólu hana upp því ekki blóðfor-
eldrar hennar. Lucky kemst að
þessu á unglingsaldri þegar móðir
hennar lendir í hremmingum og er
þá undir Lucky komið að bjarga
málunum. Við það fer af stað heil-
mikil atburðarás þar sem Lucky
þarf að leita að blóðmóður sinni,
sem hún og finnur að lokum. Sag-
an er skrifuð fyrir unglinga þótt
Guðný Ella segi marga fullorðna
líka hafa haft gaman af henni.
„Það þarf ekki allt að vera svo
alvarlegt þegar maður skrifar fyr-
ir unglingana og þetta er svona á
léttari nótunum. Ég fer ekki djúpt
í norræna goðafræði heldur er
sagan frekar eins konar hliðarsaga
við þær sögur sem þar er að
finna,“ segir Guðný Ella.
Eðlilegri orðaforði á ensku
Sagan er skrifuð á ensku og
segir Guðný Ella það aðallega til-
komið af því að sig hafi á köflum
vantað eðlilegan orðaforða til að
skrifa vísindaskáldskap á íslensku.
Hún les gjarnan slíkar bækur á
ensku og lá því betur við að skrifa
Vísindaskáldsaga
lífefnafræðings
Guðný Ella Thorlacius er lífefnafræðingur sem hefur unun að því að skrifa í frí-
stundum. Hún hefur nú gefið út vísindaskáldsögu á rafbók í gegnum útgáfufyrir-
tæki Amazon. Sagan segir frá hinni ungu Lucky sem kemst að því að hún er hálf-
ur guð og blóðmóðir hennar sé í raun Iðunn en sagan er innblásin af Norrænni
goðafræði. Guðný Ella er nú þegar byrjuð að skrifa næstu bók um Lucky.
Hálfur guð Sagan af Lucky segir af leit hennar að blóðmóður sinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Smiðja Pamela De Sensi með unglingum sem bjuggu til alls konar hljóðfæri.
Á morgun laugardag kl. 15 verða tón-
listarkonurnar Halla Dröfn Jóns-
dóttir, Pamela De Sensi og Elín Gunn-
laugsdóttir með barnadagskrá í
Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi.
Þar munu þær m.a. flytja nýleg lög
við ljóð Þórarins Eldjárn. Börnin
munu t.d. kynnast þreytandi fiski-
flugu og sjá marglitar flautur.
Fyrir og eftir sjálfa dagskrána
stendur Pamela De Sensi fyrir hljóð-
færasmiðju, en þar læra börnin að
búa til eigin hljóðfæri. Þessi barna-
dagskrá er sett saman sérstaklega
með leikskólabörn í huga og er liður í
Vori í Árborg.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Barnadagskrá í Sunnlenska bókakaffinu
Hljóðfærasmiðja, þreytandi
fiskifluga og marglitar flautur
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013
Gaman er að kíkja á fésbókarsíðu
Tímaritraðarinnar 1005 en fyrsti ár-
gangur kemur út í dag, föstudag kl.
10.05. Af því tilefni er blásið til út-
gáfugleði á Kex Hostel við Skúlagötu
28 í Reykjavík. Gengið verður til dag-
skrár kl. 17. Þeir höfundar sem eiga
efni í 1005 þetta árið, þau Jón Hallur
Stefánsson, Sigurbjörg Þrastardóttir
og Hermann Stefánsson, lesa þar
upp, gestir bera saman bækur sínar,
auk þess sem tónelskur leynigestur
lætur ljós sitt skína og léttar
veitingar verða í boði.
Þeir áskrifendur sem sjá sér fært
að koma á Kex fá eintak sitt í hendur
við þetta tækifæri en leitast verður
við að koma eintökum til annarra
áskrifenda um eða eftir næstu helgi.
Að sjálfsögðu er hægt að gerast
áskrifandi við þetta tækifæri.
1005 kemur út í 200 tölusettum
eintökum og er afar eigulegt.
Vefsíðan www.facebook.com/1005.Timaritrod
Morgunblaðið/Kristinn
Skáld Sigurbjörg Þrastardóttir er einn þeirra höfunda sem lesa mun upp í dag.
Fögnuður á Kex hosteli í dag
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.