Morgunblaðið - 10.05.2013, Side 11
Morgunblaðið/Kristinn
Höfundur Guðný Ella Thorlacius hefur skrifað sögur frá unga aldri.
bókina á ensku. Hún segir að sér
hafi þótt dálítið leiðinlegt að hafa
hana ekki á íslensku en sagan hafi
einfaldlega flætt betur á ensku.
Guðný Ella teiknar einnig og
málar og hefur dundað sér við að
myndskreyta söguna að hluta þótt
hún sjái ekki endilega fyrir sér að
hún verði gefin út með teikn-
ingum.
„Ég les og skrifa í frístundum
og þegar færi gefst og mæli með
því að fólk prófi að setjast niður
og skrifa. Það getur verið gott
bara til að koma hugmyndum sín-
um á blað þótt maður ætli sér
ekkert lengra með það. Mér finnst
þetta þægilegt hobbí að geta sest
niður og gripið í þetta inn á milli,“
segir Guðný Ella sem er byrjuð að
skrifa framhald bókarinnar.
Myndskreyting Forsíða Hidden Luck og teikning eftir Guðnýju Ellu.
Sagan er skrifuð fyrir
unglinga þótt Guðný
Ella segi marga full-
orðna líka hafa haft
gaman af henni.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013
Háskólalestin sér um fjör og fræði í
Vesturbyggð um helgina en hún verð-
ur þar á ferðinni frá deginum í dag til
seinniparts laugardagsins 11. maí.
Í dag sækja nemendur eldri deilda
Grunnskóla Vesturbyggðar og Grunn-
skóla Tálknafjarðar námskeið í Há-
skóla unga fólksins í efnafræði, jarð-
fræði, stjörnufræði, japönsku,
hugmyndasögu og Vísindavefnum.
Á morgun, laugardaginn 11. maí,
verður síðan slegið upp veglegri vís-
indaveislu í Félagsheimili Patreks-
fjarðar kl. 12-16. Þar mun m.a.
Sprengjugengið landsfræga sýna kl.
12:30 og aftur 14:30. Einnig verður
þar kynnt japönsk menning, undur
jarðar og himinhvolfs, farið í leiki og
leystar þrautir. Matís, Náttúrustofa
Vestfjarða á Patreksfirði og fleiri
stofnanir á svæðinu taka að auki þátt
í veislunni.
Endilega …
Háskólalestin Staðið verður
fyrir fjöri og fræðslu á Vest-
fjörðum um helgina.
… kíkið á háskólalestina
í Vesturbyggð um helgina
Fyrir um það bil ári sáum við betri
helmingurinn að það væri ekkert
vit í því að reka tvo bíla á heimilinu
lengur. Úr varð að betri helming-
urinn hefur hjólað í vinnuna nærri
upp á hvern dag síðan þá en ég hef
þó aumkað mig yfir hann í mestu
vetrarhörkunum. Betri helming-
urinn vinnur öllu nær heimili okk-
ar en ég og þetta hefur orðið til
þess að ég hef tekið bílinn trausta-
taki. Um leið hef ég ekki velt mikið
fyrir mér þeim dugnaði sem betri
helmingur minn sýnir í raun hvern
dag sem hann hjólar í vinnuna.
Fyrr en nefnilega að ég keypti mér
sjálf hjól um daginn. Ég ímyndaði
mér nú ekki að ég færi beint í Tour
de France en svei mér þá hvað
lærvöðvarnir voru mér erfiðir
fyrstu vikuna! Í heilan mánuð hef
ég nú hjólað í norðanátt, útgrátin í
framan í strekkingnum með slef í
treflinum og bölvað því hversu dé-
skoti erfitt er í raun að hjóla.
Lærvöðvarnir vildu í fyrstu alls
ekki vera með og streittust á móti
hvað þeir gátu. Stífnuðu allir upp
svo að inn á milli fannst mér ég
varla hreyfast úr stað. Sérstaklega
í mestu vindhviðunum þar sem ég
þurfti að bíta á jaxlinn og bara
halda áfram. Ég hef
nefnilega fundið út að
bestri samvinnu við
lærvöðvana má ná með
því að hlusta alls ekk-
ert á þá. Hjóla frekar
áfram á þrjóskunni og
sjá! Skyndilega fara
þeir að vera örlítið
samvinnuþýðari og þá
man maður hvað er í
raun skemmtilegt að hjóla. Fá frá-
bæra hreyfingu og virða fyrir sér
mannlífið í góða veðrinu. Talandi
um gott veður þá
skemmir nú ekki fyr-
ir að norðanáttin
virðist nokkuð á und-
anhaldi. Þá hættir
slefið loksins að slett-
ast og tárin að renna,
úlpunni er kippt af
og með bros á vör
hjólar maður til móts
við sumarið.
Mæja masar
Morgunblaðið/Kristinn
Hjólaferð Það er ekkert grín að hjóla í roki og rigningu um bæinn.
Í heilan mán-
uð hef ég nú
hjólað í norð-
anátt, útgrátin
í framan í
strekkingnum.
Mæja
masar
maria@mbl.is
Í sumar verður boðið upp á list-
smiðjur fyrir börn á aldrinum 6-12 ára
í Hafnarborg. Um er að ræða
skemmtileg og uppbyggjandi nám-
skeið þar sem unnin verða skapandi
verkefni í fjölbreytta miðla, teiknað,
málað og mótað, með það að mark-
miði að þjálfa sjónræna athygli, örva
skapandi hugsun og persónulega
tjáningu.
Farið verður í vettvangsferðir og
undirstöðuatriði myndlistar kynnt
bæði í gegnum það að rannsaka um-
hverfið, sýningarnar í safninu og með
skapandi vinnu. Unnið verður út frá
sumarsýningum safnsins þar sem
meðal annars verður skoðað hvernig
listamenn vinna með pappír og texta,
unnið út frá málverkum og farið í
vettvangsferðir í Hellisgerði, garð-
urinn rannsakaður og notaður sem
innblástur. Umsjón með námskeið-
unum hefur Þórdís Jóhannesdóttir
myndlistarmaður. Námskeiðin hefj-
ast hinn 10. júní og fer skráning fram
í síma 585-5790 og í gegnum net-
fangið hafnarborg@hafnarfjordur.is.
Sumarlistsmiðjur í HafnarborgVettvangsferð-
ir í Hellisgerði
Sumarlistasmiðjur Listamenn framtíðarinnar spreyta sig.