Morgunblaðið - 10.05.2013, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.05.2013, Qupperneq 14
BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Trjátegundir sem voru gróðursettar í borgarlandinu um og upp úr 1980, m.a. við Rituhóla og Vesturberg í Breiðholti, yrðu líkast til ekki not- aðar ef skógræktin væri að hefjast nú, að mati Þórólfs Jónssonar, garð- yrkjustjóra Reykjavíkurborgar. Notast yrði við tegundir sem ekki næðu viðlíka hæð, a.m.k. upp við einkalóðir. Á sínum tíma hafi menn líklega ekki áttað sig á að skógurinn yrði svo gróskumikill að hann myndi skyggja á útsýni. Í liðinni viku tóku íbúar við Ritu- hóla sig til og felldu um 200 tré sem spilltu útsýni. Svipaðar aðstæður og við Rituhóla er víðar að finna, m.a. við Vesturberg í Breiðholti og í Fellahverfi. Þórólfur segir að starfsmenn borgarinnar fái reglulega símtöl frá fólki sem kvarti undan því að tré skyggi á útsýni, ýmist tré í borg- arlandinu eða hjá nágrönnum. Þá hafi fyrirtæki óskað eftir því að tré yrðu felld til að höfuðstöðvar þeirra eða fyrirtækjamerki sæist betur. Þau hafi undantekningarlaust feng- ið neitun. Þyrfti að strauja heilan skóg Borgin fellir tré sem skyggja á sól í görðum en hefur aldrei fellt tré eingöngu vegna þess að þau skyggja á útsýni, eftir því sem Þór- ólfur man best. Hann bendir á að ef fella ætti tré af þeirri ástæðu einni yrði víða lítið eftir af trjágróðri nema þá helst lágvaxnir runnar. Skjól og prýði sem hlýst af trjánum myndi tapast. „Það verður ekki bæði sleppt og haldið.“ Borgin hefur ekki mótað sér stefnu í þessum efnum, a.m.k. ekki skriflega, heldur er hvert tilvik fyrir sig metið. Þórólfur tekur fram að íbúarnir við Rituhóla hafi ekki sent formlegt erindi þar sem óskað var eftir því að trén yrðu felld áður en þeir gripu til sína eigin ráða, en borginni var þó kunnugt um óánægju íbúa við götuna. Þórólfur bendir á að skógurinn í hlíðinni fyrir neðan Hólahverfi skyggi á útsýni frá afar mörgum húsum og ef allir ættu að endur- heimta útsýnið þyrfti að grípa til róttækra aðgerða. „Þetta er heill skógur sem þyrfti að fara. Það þyrfti að strauja svolítið langt niður eftir hlíðinni,“ segir hann. Var nauðbitið og illa farið Trén í umræddri hlíð voru flest gróðursett um og eftir 1980. „Þá var þetta nauðbitið og illa farið land. Uppblásið holt,“ segir Þórólfur. Á sínum tíma hefðu menn kannski ekki séð það fyrir að skóg- urinn yrði svona gróskumikill og trén svona há og líklega hefðu íbú- arnir mótmælt gróðursetningunni á sínum tíma, hefðu þeir áttað sig á því. Hávöxnum tegundum hefði ver- ið plantað heldur ógætilega, ekki síst öspum. Ef skógræktin væri að hefjast núna væri hugsanlegt að aðrar trjátegundir yrðu fyrir valinu, t.d. birki í stað aspa og barrtrjáa. Birkið verði yfirleitt ekki eins hátt, oft um 8-10 metrar en barrtré geta auðveldlega náð 15-20 metra hæð og skyggja þar að auki alltaf jafn mikið á útsýnið því þau fella ekki barrið. Undanfarin sumur hafa aðstæður til skógræktar verið með besta móti og tré tekið vaxtarkipp. Þórólfur telur enga sérstaka ástæðu til að endurskoða stefnu borgarinnar í ljósi aukins vaxtar og viðbragða íbú- anna við Rituhóla. Frá 1980 og fram yfir 1995 stóð borgin fyrir töluverðri skógrækt, bæði í þéttbýli og á dreifbýlli svæð- um, s.s. á Hólmsheiði. Síðan þá hef- ur skógræktin fyrst of fremst snúist um að prýða götur og hverfi og auka á fjölbreytni tegunda. Aðrar trjátegundir yrðu valdar nú  Garðyrkjustjóri Reykjavíkur segir að líkast til yrði notast við aðrar tegundir ef skógrækt fyrir neðan Rituhóla og víðar væri að hefjast nú  Man ekki eftir að tré hafi verið fellt vegna útsýnis Morgunblaðið/Júlíus Skjólgott Skógurinn í borgarlandinu fyrir neðan Vesturberg teygir sig hátt og skyggir á útsýni til Snæfellsjökuls, Álftaness, Esjunnar og yfir Sundin. Húsin eru flest tveggja hæða og veitir ekki af til að eitthvað sjáist út. Vöxtur Þegar trén voru gróðursett voru líklega fáir að hugsa um að einn góðan veðurdag yrðu þau kannski aðeins of stór, a.m.k. fyrir smekk sumra. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 Aðeins þrjú verð: 690 kr.390 kr.290 kr. Nýtt samkomulag Reykjavíkur- borgar og innanríkisráðuneytisins gerir ráð fyrir að felld verði 90-120 grenitré, 10-15 metra há á um fjögurra hektara svæði um miðbik vesturhlíðar Öskjuhlíðar. Tilgangurinn er að auka flug- öryggi við notkun austur/vestur- flugbrautarinnar. Trén teygja sig- upp í svonefndan hindranaflöt flugbrautarinnar og eru sögð skapa hættu fyrir flugvélar í flug- taki og aðflugi. Isavia vill að trén verði felld eða lækkuð. Þórólfur Jónsson, garðyrkju- stjóri Reykjavíkurborgar, segir að ekki sé búið að ákveða hvenær trén verði felld en hann telur æskilegt að bíða með það fram á haust. Í fyrsta lagi vegna þess að á sumrin sé mikið um útivist í Öskjuhlíð og skógarhögg fari ekki vel saman við mikla umferð fólks. Í öðru lagi sé fuglavarp haf- ið og skógarhöggið myndi raska því. Morgunblaðið/Golli Hjólað í skóginum Mikið er um útivist í Öskjuhlíð á sumrin og fuglavarp. Æskilegra að fresta skógarhöggi  Meira um útivistarfólk og varp hafið Þórólfur Jónsson Sigrún Skaftadóttir flutti í Vestuberg 1975. Nokkru síðar var byrjað að gróðursetja aspir og barrtré fyrir neðan götuna. Hún segir að Norðmenn sem komu í heimsókn hafi hlegið að gróðursetningunni og sagt að einn góðan veðurdag myndi skógurinn eyðileggja útsýnið. Fólk hefði ekki haft miklar áhyggjur þá en þetta hefði síð- an komið á daginn. Augljóslega hefði skógræktin verið illa skipulögð. Hún nýtur þó enn af- ar fallegs útsýnis úr stofu- glugga á 2. hæð. Fleira spillir þó útsýninu en trén, m.a. forljótar byggingar og sagði Sigrún að það væri alveg jafn brýnt að rífa ljóta glerturninn í Kópavogi eins og að grisja skóginn. Norðmenn- irnir hlógu ILLA SKIPULAGT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.