Morgunblaðið - 10.05.2013, Síða 16

Morgunblaðið - 10.05.2013, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Með nýrri tækni hefur orðið sú breyting á miðlun veðurupplýsinga að mönnuðum stöðvum hefur fækk- að mjög og þeim sem senda rafræn- ar upplýsingar fjölgað að sama skapi. Þær raf- rænu senda upp- lýsingar mun þéttar en á móti greinir manns- augað margt sem tæknin sér ekki. Árni Sigurðs- son, veðurfræð- ingur hjá Veð- urstofu Íslands, hefur umsjón með mönnuðu veðurstöðvunum og segir að skiptar skoðanir séu um þessar breytingar. Sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Litlum vafa sé þó undirorpið að nýja tæknin standi að mörgu leyti framar þegar veður er kannað í náttmyrkri, mannsaugað sjái ekki vel í myrkri. Tækninni fleygir fram Rafræn skráning hafi rutt sér til rúms um allan heim og tækninni hafi vissulega fleygt fram. Að- spurður segist hann ekki hafa upp- lýsingar um hvort sparnaður náist með þessum breytingum, tækin kosti vissulega sitt. Árni segir að nú sé í gangi tilraun með nýja tegund af rafrænum tækj- um sem mæli skýjahæð og skyggni. Þau eigi að skynja hvort rigning sé eða úði svo dæmi séu tekin, en greini aðstæður út frá einum þröng- um punkti. Persónulegar upp- lýsingar mikils virði „Þetta er ekki sambærilegt við greiningu veðurathugunarmanns sem horfði kannski yfir sveitina sína og gat jafnvel séð allt að 100 kíló- metra út frá sér,“ segir Árni „Hann gat séð hvort það var úrkoma í grennd og gat gefið upplýsingar um magn og hæð lægstu skýja, og um hvort loftið var mjög hreint. Þessi nýja stöð gefur ekki upplýsingar ef skyggnið er betra en 20 kílómetrar og mælir allt út frá einum punkti. Nýju tækin skoða loftmassa á stærð við fótbolta og skynja hvort það eru einhverjar agnir í þessum massa eða hvernig skyggnið er í þeim litla pakka. Þegar tækið mælir skýjahæð þá er mælt beint upp og ef það hittir ekki á ský er niður- staðan að það sé ekki skýjað. Ef tækin hitta á ský og bláan himin álíka oft er niðurstaðan við mæl- ingar á skýjahulu að það sé hálf- skýjað.“ Árni segir að persónulegar upp- lýsingar frá veðurathugunarfólki á staðnum hafi verið mikils virði; t.d. um skýjafar, skyggni, hvort það rigndi eða snjóaði, upplýsingar um alla þætti veðurfars hafi verið í veð- urskeytunum. Frá sjálfvirku stöðv- unum komi takmarkaðri upplýs- ingar um veður, og í flestum tilfellum aðeins um vindstyrk, hita og raka. Mannaðar athuganir gerðar á flugvöllum Enn sem komið er sé sjálfvirku stöðvunum ekki treyst einum til að annast veðurupplýsingar frá flug- völlum. Þar séu gerðar mannaðar athuganir, við aðstæður eins og séu á Íslandi sé ekki talið ráðlegt að treysta tækjunum algerlega einum. „Ég neita því ekki að mér finnst net mannaðra stöðva orðið of gisið,“ segir Árni. „Þannig er engin stöð frá Litlu-Ávík á Norður-Ströndum suður í Hrútafjörð og alla leið yfir í Skagafjörð. Því getur hæglega legið þoka í Hrútafirði án þess að við höf- um upplýsingar um það. Núna er bara ein mönnuð stöð alla leið frá Eyrarbakka að Höfn í Hornafirði, það er á Vatnsskarðs- hólum. Þarna er gríðarlega stórt gat og við höfum ekki nákvæmar upplýsingar um veður á einstökum stöðum á þessari löngu leið. Það getur til dæmis verið bagalegt þeg- ar verið er að ráðleggja flug- mönnum í sjónflugi hvort þeim sé fært að fljúga um Suðurlandið. Ég hefði gjarnan viljað hafa mannaða stöð áfram á Klaustri,“ segir Árni. „Net mannaðra stöðva orðið of gisið“  Tækninni hefur fleygt fram en mannsaugað sér margt sem tæknin greinir ekki  Ein mönnuð stöð frá Eyrarbakka að Höfn í Hornafirði og ekki nákvæmar upplýsingar um veður á einstökum stöðum Veðurathugun Á Bláfeldi er bæði sjálfvirk stöð tengd staurnum í forgrunni og mönnuð veðurskeytastöð. Árni Sigurðsson Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Á safn Grímur Gíslason var veðurathugunarmaður á Blönduósi. Hafíssetrið fékk tæki hans frá Veðurstofu. Þegar mest var voru mannaðar veðurstöðvar sem sendu Veður- stofunni veðurskeyti á þriggja tíma fresti hátt í 40. Eftir að nokkrar stöðvar verða lagðar niður sem skeytastöðvar í vor og sumar verða mönnuðu veð- ur- skeyta- stöðvarnar 21 að með- talinni stöð- inni í húsi Veðurstof- unnar í Reykjavík. Mannaðar stöðvar sem senda upp- lýsingar um úrkomu verða rúmlega 66 eftir breytingarnar. Rafrænar veðurstöðvar Veður- stofunnar verða í sumar orðnar um 117, þar af sex sem mæla ský, skyggni og veður. Að auki notar Veðurstofan um 150 sjálfvirkar veðurstöðvar annarra stofnana, og þá einkum Vegagerðarinnar, Landsvirkjunar og Siglingastofn- unar. Mannaðar veðurskeytastöðvar á Stórhöfða, Kirkjubæjarklaustri, Hæl í Hreppum, Vík í Mýrdal, Lambavatni á Rauðasandi, Torf- um í Eyjafirði og Mýri í Bárðardal verða lagðar niður í ár. Frá sum- um þeirra bárust veðurskeyti all- an sólarhringinn, en öðrum 4-6 sinnum yfir daginn. Úrkoma verður áfram mæld handvirkt á þessum stöðvum, að Klaustri undanskildu, sem hættir alveg. 21 mönnuð skeytastöð NÝTA HÁTT Í 300 SJÁLFVIRKAR STÖÐVAR Veður Reyniber í rigningu. Borgarráð Reykjavíkur hefur nú heimilað umhverfis- og skipulags- sviði að bjóða út framkvæmdir við gerð nýrra heitra potta við Vestur- bæjarlaugina. Áætlaður kostnaður vegna verksins er um 120 milljónir króna. Fyrirhugaðir pottar saman- standa af vaðpotti fyrir börn með leiktækjum, nuddpotti og hvíld- arpotti. Einnig verður komið fyrir herða- og iljanuddi milli nudd- og hvíldarpottanna. Þar að auki er gert ráð fyrir jarðhýsi við pottana sem hýsir hreinsitæki og fleira. Núverandi sundlaugarsvæði verð- ur rýmkað til að sólar njóti sem best við pottana og verða nýjar girðingar reistar í kringum pottana. Gert er ráð fyrir að vatnsyfirborði potta verði lyft um 45 sentimetra frá laug- arbakka til að auðvelda aðgengi fatl- aðra. Einnig verður unnið að við- haldi við búningsklefa kvenna þar sem steypiböð og þurrksvæði verða endurnýjuð. Áætlaður kostnaður við það eru 35 milljónir króna. Ráðgert er að hefja framkvæmdir við laugina í lok maí og ljúka þeim í október. Út- boð vegna verksins verður auglýst um helgina. larahalla@mbl.is Ljósmynd/Reykjavíkurborg Viðbætur Tillaga Dagnýjar Helgadóttur að breytingum á útisvæði Vestur- bæjarlaugar, en þar er gert ráð fyrir nýjum heitum pottum. Nýir heitir pottar settir niður við Vesturbæjarlaug Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.