Morgunblaðið - 10.05.2013, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íslenski hesturinn verður notaður til
að vekja athygli á Íslandi á sýningu
og menningardagskrá sem efnt
verður til í húsnæði norrænu sendi-
ráðanna í Berlín í sumar. Sýningin
er einnig liður í að vekja athygli á
Heimsleikum íslenska hestsins sem
haldnir verða í borginni í byrjun
ágúst.
Mikill áhugi er á íslenska hest-
inum í Þýskalandi. Þar eru nú um 65
þúsund íslenskir hestar og margar
fjölskyldur sem þeim tengjast. „Ég
hef greinilega orðið var við jákvæð-
an áhuga fjölda fólks á Íslandi vegna
hestsins og ást sem við njótum góðs
af,“ segir Gunnar Snorri Gunnars-
son, sendiherra Íslands í Berlín.
Sendiráð norrænu ríkjanna hafa
sameiginlega aðstöðu til sýninga- og
tónleikahalds og skiptast á að nota
hana. Íslenska sendiráðið nýtti að-
stöðuna til að vekja athygli á ís-
lenskum bókmenntun í tengslum við
Bókamessuna í Frankfurt 2011 og í
sumar verður íslenski hesturinn í
öndvegi.
Nýtist í ferðaþjónustu
Á sýningunni sem Ragna Fróða,
fatahönnuður í Berlín, setur upp
verða verk íslenskra listamanna og
hönnuða, meðal annars ljósmyndir.
Sýningin verður opnuð með viðhöfn
15. maí og lýkur með móttöku 26.
júní, undir lok opinberrar heimsókn-
ar Ólafs Ragnars Grímssonar, for-
seta Íslands, til Berlínar.
Hliðardagskrá verður í tónleika-
salnum nokkrum sinnum. Þannig
verða sýndar heimildarmyndir um
íslenska hestinn 23. maí. Dagskrá
um íslenska hestinn í bókmenntum
verður 31. maí. Þá koma ungir ís-
lenskir tónlistarmenn sem búsettir
eru í Berlín fram á tónleikum 13.
júní.
„Svo bíðum við eftir heimsmeist-
aramótinu. Það er greinilegt að mik-
il þátttaka verður að heiman,“ segir
Gunnar Snorri um Heimsleika ís-
lenska hestsins sem haldnir verða í
borginni 4. til 11. ágúst. Hann segir
að mótið verði meira í brennipunkti
en fyrri mót þar sem þetta sé í
fyrsta skipti sem Heimsleikar ís-
lenska hestsins eru haldnir í höf-
uðborg Evrópuríkis. Metnaður sé
við skipulagningu leikanna og von á
mörgum áhorfendum. „Það
skemmtilega við þá jákvæðu athygli
sem við getum fengið með þessum
atburðum er að hún nýtist einnig í
ferðamálum, athygli er vakin á land-
inu sem áhugaverðum áfangastað,“
segir Gunnar Snorri og nefnir einnig
að ferðafólk sem fái
áhuga á hestinum
geti heimsótt
landið allt árið.
Hluti sýning-
arinnar fer á
mótssvæðið í
austurhluta
Berlínar og
einnig er hugs-
anlegt að hún
nýtist sendi-
ráðum í öðrum
löndum þar sem áhugi
er á íslenska hestin-
um.
Hesturinn kynnir landið
„Mér finnst spennandi viðfangs-
efni að tengja íslenska hestinn
við stefnur og strauma í listum
og hönnun í dag,“ segir Ragna
Fróða um sýninguna um hestinn
sem hún er að setja upp í sendi-
ráðinu. Hún vonast til að með því
fáist óvenjuleg sýn á íslenska
hestinn. Hún hefur fengið til liðs
við sig íslenska hönnuði, ljós-
myndara og myndlistarmenn.
Efninu er miðlað á mismun-
andi hátt og sagðar nokkrar sög-
ur. Nefnir Ragna að ljósmyndir
séu af hestum sem verið er að
flytja úr landi með fyrirsætum í
fötum frá íslenskum fatahönn-
uðum. Einnig myndir af hestum
á Íslandi og hestum sem komnir
eru úr landi og geta aldrei snúið
aftur til Íslands.
Meðal sýningargripa er hestur
í fullri stærð, gerður úr frauð-
plasti, eftir þýska myndlistar-
manninn Juliu Aatz. Verkið er
gert fyrir mótshaldara HM og
verður þar til sölu. Samkvæmt
þýskri hefð fara hestarnir um
allt land, málaðir á mismunandi
hátt.
Sjálf mun Ragna klæða hest-
inn í íslenska ull og er ætlunin að
hann verði skjóttur. Þetta
mun hún gera á kaffi-
húsakvöldi í sendi-
ráðinu. Að sýningu
lokinni fær hest-
urinn sama-
stað á leik-
skóla.
„Skjóni“ í
fullri stærð
ÓVENJULEG NÁLGUN
Hestur listakon-
unnar Juliu Aatz.
Ragna
Fróða
Gunnar Snorri
Gunnarsson
Tölt Teiknimynd Unu Lorenzen um töltandi hest er meðal verka á sýningunni í sendiráðinu í Berlín.
Íslenski hesturinn í öndvegi á sýningu í sendiráðinu í Berlín Liður í undir-
búningi Heimsleika íslenska hestsins sem haldnir verða í borginni í byrjun ágúst
Í slitsterku áklæði!
Verð áður 89.000
Alklæddur nautsleðri!
Verð áður 139.000
Þú sparar
20.000
Þú sparar
40.000
Tilboðsverð
99.000
út maí mánuð!
RISAÚTSALA!
Okkar besti hægindastóll
á verði sem hefur ekki sést
á Íslandi í mörg ár!
Rubelli 9332 H
með svifruggu, snúning, gormasæti
og frábærum bakstuðningi
3 leðurlitir
6 taulitir
Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181
www.innlit.is
Þekking • Þjónusta
Tilboðsverð
69.000