Morgunblaðið - 10.05.2013, Qupperneq 40
AF DANSI
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Gyðingafjall, Montjuïc, er suð-vestanvert við miðborgBarcelona. Þaðan er gott
útsýni yfir höfnina og borgina alla
reyndar, en þar er líka sitthvað að
gera menningar- og íþróttalegt.
Þar er til að mynda Ólympíu-
leikvangurinn og einnig ólympíu-
sundlaug, eftirminnilegur kirkju-
garður, Miró-safnið og katalónska
listasafnið og svo má lengi telja. Í
hlíðum Montjuïc var líka haldin
heimssýning 1929.
Borgaryfirvöld í Barcelonaeru gjörn á að hleypa af stað
stórverkefnum sem fela í senn í sér
byggingu mikilla mannvirkja og
endurnýjun hverfa í borginni. Gott
dæmi um það eru Ólympíuleikarnir
1992 sem gerbreyttu borgarmynd
Barcelona og gerðu hana að einni
mestu ferðamannaborg Evrópu.
Stórverkefni Barcelona á þriðja
áratug síðustu aldar var heimssýn-
ingin 1929 sem sér stað í húsum og
höllum og minnismerkjum í hlíðum
Montjuïc.
Meðal þeirra húsa sem þávoru reist er blómamark-
Bráðfyndið og beiskjublandið
dansævintýri á Gyðingafjalli
Ljósmynd/IT Dansa
Dansnemendur IT Dansa-hópurinn flytur bráðfyndið og beiskjublandið ævintýri Alexanders Ekmans.
aðurinn, Mercat de les Flors. Síðar
var blómamarkaðurinn fluttur en
eftir stóðu byggingar sem lítið voru
notaðar um árabil. Þegar enski
leikstjórinn og kvikmyndagerð-
armaðurinn Peter Brooks tók að
sér að setja Carmen upp í Barce-
lona 1983 segir sagan að þegar
hann hafi verið búinn að hafna öllu
sem stóð til boða hafi tæknimaður
nefnt að enn ætti eftir að skoða
einn sal, eða réttara sagt gamla
blómageymslu. Brooks hreifst af
salnum og upp frá því hefur hann
verið meðal helstu miðstöðva sviðs-
lista í Barcelona undir nafni Maria
Aurèlia Capmany eftir einum
helsta hvatamanninum að tilurð
hans.
Í næsta húsi við salinn er leik-og danslistaskóli Bacelona,
Institut del Teatre. Liður í námi í
danslistum er að fjórtán nemendur
á lokaári taka þátt í dansflokknum
IT Dansa sem setur upp sýningu og
ferðast um með hana. Svo vildi til
að í stuttri heimsókn til Barcelona
fyrir viku var mér boðið að sjá sýn-
ingu hópsins og er það tilefni þess-
ara skrifa.
Á dagskrá IT Dansa-hópsinsað þessu sinni voru fjögur
verk, mislöng og mismerkileg; Cor
Perdut, Naked Thoughts, In Me-
moriam og WHIM Fractured Fairy-
tale. Fyrsta verkið var það veiga-
minnsta, en rann vissulega vel enda
tónlistin úr smiðju söngkonunnar
Maria del Mar Bonet. Danshöfund-
urinn, Nacho Duato, er með helstu
danssmiðum Spánar, en hann er nú
listrænn stjórnandi Mikhælovskíj-
leikhússins í Sankti Pétursborg.
Verkið er ekki nýtt, frumflutt í Hol-
landi 1989 og nokkrum sinnum síð-
ar. Lítil átök eru í því og ekki mikil
spenna. Meira var um að vera í Na-
ked Thoughts eftir Raphael Bonac-
hela sem frumflutt var 2007 í
Barcelona. Í því verki var ljóðum
skáld- og listakonunnar Ainize
Txopitea fléttað saman við tónlist
og áhrifshljóð Ramon Balagué með
góðum árangri, þó inntakið hafi
ekki verið ýkja frumlegt – ástir
missamlyndra para. Dansarar voru
átta, mjög misjafnir að gæðum, sem
vonlegt er, en þeir bestu voru fram-
úrskarandi. In Memoriam eftir
belgíska danshöfundinn Sidi Larbi
Cherkaoui kom næst, mjög vel út-
færður dans tæknilega með fínar
hreyfingar og hæfilega dramatík
þó inntakið hafi verið þunnt og nið-
urstaðan fyrirsjáanleg. Tónlistin
var frábærlega flutt af korsíska
karlakórnum A Filetta, hljómaði úr
tölvu reyndar. In Memoriam var
frumflutt í Barcelona 2011.
Lokakafli sýningarinar varsvo WHIM Fractured Fairy-
tale eftir sænska danshöfundinn Al-
exander Ekman, sem hannaði einn-
ig búningana. Verkin á undan voru
hefðbundin um flest, en Ekman var
á annarri línu, nánast á annarri
plánetu. Frásögnin er einskonar
ævintýri þar sem hópurinn er allur
með og leikmunirnir stólar af ýms-
um gerðum. Verkið var frumflutt í
Barcelona fyrir sex árum og IT
Dansa-hópurinn hefur áður sett
það upp sem sjá má á YouTube.
Tónlistin er afskaplega vel notuð til
að ramma dansinn inn, til að mynda
er brot úr Árstíðum Vivaldis notað
til að undirstrika þvingaða gleði,
brot úr verki eftir Marcelle de
Lacour og brot úr óvenjulegri út-
setningu Edmundo Ros á Boléro til
að skapa vélræna stemningu og svo
var My Baby Just Cares for Me eftir
og með Ninu Simone notað til að
undirstrika fáránlega þráhyggju
ástarinnar. Afskaplega vel gert,
bráðfyndið og beiskjublandið æv-
intýri.
» Verkin á undanvoru hefðbundin um
flest, en Ekman var á
annarri línu, nánast á
annarri plánetu.
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is
KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
-Empire
-Hollywood
Reporter
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
12
12
16
STAR TREK 3D Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40(P)
MAMA Sýnd kl. 8 - 10:10
IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40
LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 4
OBLIVION Sýnd kl. 5:30
Stórmyndin sem
tekin var upp
á Íslandi