Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. J Ú N Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 137. tölublað 101. árgangur
TÓNLEIKA-
FERÐALAG TIL
BRETLANDS GERA SIG BREIÐA
TÓNHVÖRF
KVENNA
Í VIÐEY
AF DROTTNINGUM 40 TÓNLEIKARÖÐ 38KVARTETTINN SYKUR 10
Morgunblaðið/Golli
Sílikon Kona sem var með PIP-
púða segir skorta á eftirfylgni.
Kona, sem lét fjarlægja sprungna
PIP-sílikonpúða úr brjóstum sínum
og hefur glímt við margvíslegan
heilsubrest sem rakinn er til púð-
anna, segir enga eftirfylgni vera af
hálfu heilbrigðisyfirvalda. Land-
læknir segir eftirlit á ábyrgð lýta-
lækna og þeirra kvenna sem eru
með púðana.
Sílikon lak úr púðum konunnar
og olli henni margvíslegum skaða,
meðal annars er efnið í eitlum
hennar og vefir í líkama hennar
dóu. Hún leitaði sér lækninga í
Bandaríkjunum.
Jens Kjartansson, yfirlæknir
lýtalækningadeildar Landspítalans
og einn þeirra lækna sem notuðu
PIP-púðana, segir ráðlegt að fjar-
lægja púðana, þeir séu líklegri til
að rifna en aðrir sílikonpúðar. »12
Brjóstapúða-
máli hvergi
nærri lokið
Lýtalæknar bera
ábyrgð á eftirliti
Hið árlega Pæjumót sem haldið er í Vestmannaeyjum hófst í gær en það er fyrir 5. flokk telpna í fótbolta. Í ár taka
75 lið þátt í mótinu en það eru fimmtán fleiri en mættu til leiks í fyrra. Mótið stendur yfir þangað til á morgun og
eiga mörg glæsileg tilþrif með tuðruna áreiðanlega eftir að sjást. Einbeitingin skín úr andliti þessara tveggja
stúlkna sem tókust á um boltann í leik HK frá Kópavogi og Sindra frá Hornafirði í gær.
Glæsileg tilþrif í Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Boltinn byrjaður að rúlla á Pæjumótinu í Vestmannaeyjum
Endurskoða
þarf skatt-
lagningu á þá
sem nýta
náttúru-
auðlindir,
þannig að
samræmi sé í
álagningu
gjalda, að
mati Friðriks
J. Arngrímssonar, framkvæmda-
stjóra LÍÚ. Smábátasjómenn eru
ánægðir með fyrirhugaðar breyt-
ingar á veiðigjaldinu. Þingmenn
stjórnarandstöðunnar gagnrýndu
frumvarpið við umræður á Alþingi í
gær vegna boðaðrar lækkunar veiði-
gjalds. Helgi Hjörvar, Samfylkingu,
sagði útgerðarmenn og efnafólk fá
peninga strax en að skuldug heimili
væru sett í nefnd. »6
Samræmi
sé í álagn-
ingu gjalda
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Auðvitað voru þetta þeim viss vonbrigði en
þeir hafa hins vegar fullan skilning á því að
þetta er pólitísk ákvörðun nýrrar ríkisstjórnar
að gera hlé á viðræðunum. Það er í fullu sam-
ræmi við það sem við sögðum fyrir kosningar.
Þetta er lýðræðið og vilji ríkisstjórnarinnar og
þeirra sem kusu þessa tvo [ríkisstjórnar-
]flokka,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, utan-
ríkisráðherra, eftir fund sinn með Stefan Füle,
stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í Bruss-
el í gær.
Virðir vilja Íslendinga
Þar kynnti hann formlega þá afstöðu nýrr-
ar ríkisstjórnar að hætta aðildarviðræðun-
um.
Fyrr um daginn hitti utanríkisráðherra Li-
nas Linkevicius, utanríkisráðherra Litháens,
en Litháar taka við formennsku í ráðherraráði
ESB um næstu mánaðamót.
Füle sagði á blaðamannafundi eftir fund
þeirra utanríkisráðherra að ákvörðun Íslands
væri sér persónuleg vonbrigði þar sem hann
hefði tekið þátt í aðildarferlinu frá upphafi. „Ef
þú spyrð mig persónulega þá er mér þetta ekki
ljúft, þar sem ég hef verið með í ferlinu frá upp-
hafi og heimsótti Ísland nokkrum sinnum. En
ég er líka fagmaður og virði vilja kjörinna full-
trúa og almennings,“ svaraði Füle spurningu úr
sal.
Hann sagði að fulltrúar ESB biðu nú þess að
ný ríkisstjórn mæti stöðuna upp á nýtt. Mik-
ilvægt væri að ákvörðun um hvað yrði um að-
ildarviðræðurnar væri tekin að vel ígrunduðu
máli og það kæmi báðum aðilum vel að það tæki
ekki ótakmarkaðan tíma að komast að henni.
Birgir Ármannsson, formaður utanríkis-
málanefndar Alþingis, segir að ekki sé hægt að
nefna viku- eða mánaðafjölda um hvenær búið
verði að meta stöðu viðræðnanna og hagsmuni
Íslands í samhengi aðildar að ESB á þessu stigi.
„Ég get út af fyrir sig verið sammála þeim
ummælum Füle að það þarf að taka allar
ákvarðanir í þessu að vel ígrunduðu máli og um
leið er staðan auðvitað sú að það þarf að gerast
innan einhverra skynsamlegra tímamarka,“
segir Birgir.
Starfið nýtist í framtíðinni
Gert er ráð fyrir því að utanríkisráðherra
fundi með samninganefnd Íslands á næstu dög-
um til að fara yfir framhaldið.
„Það liggur í augum uppi að þegar gert er hlé
á viðræðunum er eðlilegt að starfi samninga-
nefndarinnar verði hætt og hún fari til annarra
starfa,“ segir Gunnar Bragi.
Ljóst sé þó að starf hennar hafi ekki verið til
einskis því að það sem komið hafi út úr við-
ræðum hennar við fulltrúa ESB nýtist í sam-
starfi við sambandið í framtíðinni.
Fundur Gunnar Bragi og Stefan Füle ræða við
blaðamenn í Brussel í gær. Füle sagði ákvörð-
unina um að hætta viðræðum vonbrigði.
Starfi samninganefndar hætt
Utanríkisráðherra ræddi við stækkunarstjóra ESB um hlé á aðildarviðræðum Füle segir best
fyrir báða aðila að ekki sé tekinn ótakmarkaður tími í að komast að niðurstöðu um framhald viðræðna
Banaslys varð í Skötufirði í Ísafjarð-
ardjúpi í gærmorgun. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á Vest-
fjörðum barst tilkynning um alvar-
legt umferðarslys í Skötufirði kl.
11:50 í gærmorgun. Bifreið hafði far-
ið út af veginum og oltið með þeim
afleiðingum að ökumaður kastaðist
út úr henni. Lögreglu- og sjúkralið
var sent frá Ísafirði og í framhaldi
var óskað aðstoðar þyrlu Landhelg-
isgæslunnar. Ökumaðurinn reyndist
alvarlega slasaður og var fluttur
ásamt farþega með þyrlunni á Land-
spítalann í Reykjavík. Þegar þangað
var komið reyndist ökumaðurinn lát-
inn. Slysið er til rannsóknar hjá
rannsóknardeild lögreglunnar á
Vestfjörðum.
Banaslys í
Skötufirði