Morgunblaðið - 14.06.2013, Síða 32

Morgunblaðið - 14.06.2013, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013 Smáauglýsingar Til sölu Til sölu hraðbátur BAYLINER, árg. ‘88 með 125 HP, 5,5 m. 2,25 m á breidd. Verð 1,4 millj. Skipti á bíl. Tilboð. Sími: 697 5850. Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali. Viðgerðir á flestum gerðum sauma- véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is eða hringdu í s. 892 3567 eftir hádegi alla daga. ÚTSALA - Swarovski-skartgripir Augnakonfekt. Glæsilegar kristals- ljósakrónur, veggljós, glös og post- ulín. Swarovski-skartgripir á sumar- afslætti til sölu. Frábær gjöf. Bohemia kristall, Glæsibæ. S. 571 2300. Ýmislegt Teg. 7194 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42. Verð: 14.685. Teg. 7095 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42. Verð: 14.685. Teg. 7315 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42. Verð: 14.885. Teg. 7314 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42. Verð: 14.885. Teg. 5606 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42. Verð: 14.685. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán. - fös. 10 - 18. Lokað laugardaga í sumar. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook.          !!"#$          ✝ Páll Jónssonfæddist í Reykjavík 19. maí 1932. Hann lést á heimili sínu 29. maí 2013. Foreldrar hans voru Jón Pálsson frá Efra-Apavatni, f. 6.6. 1904, d. 21.3. 1983, sundkennari, sonur Páls Erlings- sonar sundkennara og Ólafar Steingrímsdóttur. Móðir hans var Þórunn Sigurðardóttir frá Hörgs- landi á Síðu, f. 9.9. 1899, d. 9.5. 1991, húsfreyja, dóttir Sigurðar Péturssonar landspósts og Sigríð- ar Steingrímsdóttur. Systkini Páls voru Amalía Svala, f. 1943, d. 2012 og Sigurður, f. 1939, d. 1978. Þau bjuggu í Hringsjá á Laugarnesholtinu og gengu í Laugar- nesskóla. Páll lauk gagn- fræðaskólaprófi frá Héraðsskólanum að Laugarvatni og starfaði að því loknu við ýmis af- greiðslustörf. Lengstan starfsferil átti Páll hjá Skeljungi og endaði hann starfsferil sinn þar fyrir um 18 árum síðan. Páll var víðlesinn og hans helsta áhugamál var lest- ur bóka um mannkynssögu, menn og málefni. Útför Páls fer fram frá Garða- kirkju í dag, 14. júní 2013, klukk- an 15. Látinn er náfrændi minn og æskuleikfélagi, Páll Jónsson. Foreldrar Páls bjuggu á nýbýlinu Hringsjá við Sundlaugaveg og þar ólst hann upp. Í næsta ná- grenni bjuggu foreldrar mínir á nýbýlinu Sjálandi við Kleppsveg. Voru mæður okkar systur og feð- ur okkar bræður. Voru bræðurnir Páll og Sigurður helstu leikfélag- ar mínir í æsku. Á uppvaxtarár- um okkar var Laugarnesið í út- jaðri höfuðstaðarins eiginlega sveit og voru mörg heimili þar með smábúskap. Í næsta ná- grenni voru Sundlaugar Reykja- víkur, sem afi okkar, Páll Erlings- son, sundkennari, beitti sér fyrir að láta reisa og sóttu börn og ung- lingar mikið í laugarnar. Leik- vangur okkar var þetta umhverfi og ósnortin fjaran frá Laugarnesi inn í Grafarvog. Taflmennska var vinsæl dægrastytting og voru þeir bræður, Páll og Sigurður, slyngir skákmenn. Ótal ferðir áttum við Páll niður í Sundhöll, þar sem Jón, faðir Páls, var aðalsundkennari. Í einni slíkri ferð, þegar ég var sex ára, láðist mér að fara úr strætó með frænda á Barónsstíg. Ógleyman- leg er angistin, þegar ég var aura- laus niðri á Lækjartorgi og rataði ekki heim. Faðir Páls átti forláta kajak og stundaði sjófuglaveiðar. Eitt sinn fengum við kajakinn lánaðan og rérum út í Skarfaklett á Viðeyjarsundi og gengum upp á klettinn. Þetta þótti okkur mikið ævintýri. Nú er Skarfaklettur orðinn landfastur í Sundahöfn. Við félagarnir gerðum okkur ferð í veiðarfæraverslunina Geysi í Hafnarstræti og keyptum færi og öngla og ég man að ég var svo stuttur að afgreiðsluborðið náði mér í höku. Dorguðum við mikið á bryggjunni við flugskýlið í Vatna- görðum og olíubryggju Nafta, alltaf blautir í gúmmískóm og ull- arsokkum. Við lukum barnaskólanámi í Laugarnesskóla og Páll stundaði síðan nám við Héraðsskólann á Laugarvatni og Verslunarskól- ann. Páll var strax hlédrægur í æsku, en íhugull og gætinn félagi. Fyrstu launuðu störfin okkar beggja voru hjá Fiskimjölsverk- smiðjunni á Kletti, en þegar ég fór til náms 1955 í Þýskalandi minnkuðu samskipti okkar. Páll stundaði ýmsa vinnu um ævina, en lengst af starfaði hann á bensínafgreiðslustöðvum Skelj- ungs á höfuðborgarsvæðinu. Páll eignaðist fyrst Rússajeppa og hafði stöðugt í hyggju að heim- sækja mig á virkjunarsvæðin, þótt aldrei yrði af því. Nokkrar ferðir fór Páll þó á jeppanum til að heimsækja Vilhjálm Eyjólfs- son á Hnausum í Meðallandi. Seinna eignaðist hann nokkra Lödujeppa og eyddi ómældum fjármunum í viðhald á þeim. Hann ók Lödunni fram til síðasta dags. Páll var ekki mannblendinn og leitaði ekki mikið eftir samskipt- um við fólk. Þó hélt hann sam- bandi við gamla vinnufélaga hjá Skeljungi. Páll var hófsemdar- maður, en brúkaði neftóbak. Hann var fróður, afar minnisgóð- ur og fylgdist vel með þjóðmálum. Páll var ókvæntur og barnlaus og bjó alla tíð í eigin íbúð. Fjölskylda Svölu, systur hans, var í raun hans fjölskylda og sýndu þau hon- um mikla ræktarsemi og um- hyggju. Eftir fráfall Svölu á sl. hausti hafa dætur hennar, Þór- unn og Anna Sigríður, verið óþreytandi að sinna frænda sín- um. Hafi þær þökk fyrir það. Páll Ólafsson. Það er um margt að minnast þegar kemur að upprifjun á sög- um í kringum Pál móðurbróður. Fyrst er að nefna þá staðreynd að hann tranaði sér lítt fram og var ávallt fyrstur til að yfirgefa sam- kvæmið en í rólegu umhverfi datt margt merkilegt út úr honum, sérstaklega þegar rætt var um menn og málefni. Flugferð til Egilsstaða í kring- um 1950 var hans fyrsta flugferð. Næsta og reyndar jafnframt sú síðasta var ekki fyrr en um 50 ár- um seinna og þá á sama flugvöll. Hann hafði orð á því að fyrri flug- ferðin hefði kostað 252 kr. og það þótti dýrt í þá daga. Páll var mikill búri og lítið fyrir að eyða pening- um í óþarfa, eins og sést á fjölda flugferða yfir ævina. Óþarfi hét aftur á móti ekki Rússajeppi og ekki Lada heldur. Enda held ég að Rússajeppinn hafi verið endurnýjaður tvisvar og Ladan eitthvað oftar, á um 60 árum. Það var þó ekki lagst í end- urnýjun fyrr en pabbi og fleiri úr fjölskyldunni voru farin að hafa orð á því að það væru fleiri göt á bílnum en góðu hófi gegndi. Merkilega við Pál er hve stál minnugur hann var og um jólin 2011 sat ég með mömmu, pabba og Páli yfir mynd sem tekin var 1936 um borð í Dettifossi af sundknattleiksliðinu sem Jón fað- ir hans stýrði á Ólympíuleikunum í Berlín og er í bókinni um Úlfar augnlækni. Hann þekkti þar alla, þó hann hefði aldrei séð myndina. Í seinni tíð tók Páll miklu ást- fóstri við örbylgjuofn og þótti honum það apparat hið mesta þarfaþing. Hjá mér gekk hann undir nafninu Tjernóbyl, því eins og allt sem Páll átti þá var það notað á meðan það snérist, þó svo að allt plast inni í ofninum væri löngu fyrir bí. Í Tjernóbyl voru eldaðir laxahausar, grásleppa í tómatsósu ásamt fleiru sem fæst- ir telja krásir í dag. Ég minnist þess vel þegar ég gramsaði geir- nyt á sjónum og færði Páli. Jú, fiskurinn var góður sagði hann en lifrin er miklu betri. Sama var uppi á teningnum þegar ég ætlaði að færa honum lax í heilu. Nei, ég vil frekar bara hausa, hef ekkert að gera við fiskinn. Það er sérstakt að hugsa til þess að fyrir tveimur árum lagði ég til við mömmu að taka Pál með í ferð austur að Hnausum í heim- sókn til Villa frænda. Ári seinna var of seint að taka mömmu með en við feðgarnir ætluðum að fara með Pál. Hann var vélaður til far- arinnar en þegar á hólminn var komið treysti hann sér ekki í ferðalagið. Nú hálfu ári seinna er hann lagður af stað í annað og meira ferðalag. Með Páli móður- bróður mínum er genginn síðasti fjölskyldumeðlimurinn í Hringsjá og við sem eftir lifum geymum minningarnar með okkur þar til okkar tími kemur. Sindri Karl Sigurðsson. Þar sem ég stóð við ísskápinn að ná mér í mjólkurdreitil í kaffið fyrir örfáum dögum, fyllltist hjarta mitt trega og sorg þegar þeirri hugsun sló niður að aldrei kæmi Páll frændi aftur í kaffi til mín. Kannski hafa liðið tvenn jól í lífi mínu án þess að Páll hafi verið með í veisluhöldunum og nú er hann kominn yfir móðuna miklu, saddur lífdaga en ég á alltaf eftir að sakna hans, sakna þess þegar hann talaði við mig um fólk eins og við þekktum það bæði, sem var látið áður en ég fæddist, og mamma í eldhúsinu að sussa á hann, sakna þess að sjá hann koma brunandi á Lödu Sport, einkum brunaði hann í beygjum svo frægt var. Páll var brúnamikill og stór maður, ljúflyndur en þó stríðinn og sýndi mér alltaf þakklæti og gjafmildi fyrir alla aðstoð. Það kjaftaði ekki beinlínis á honum hver tuska en hann hafði gaman af að gantast við afgreiðslufólk og fólk sem hann hitti, sem kom mér stundum á óvart þar sem hann sótti lítið í umgengni við fólk. Nokkuð lengi eftir að hann var hættur á stöðinni kom hann þar við nánast daglega til að hitta fé- lagana og lesa blöðin. Þegar þeir voru ekki lengur þar voru hans fé- lagslegu tengsl helst við mömmu og pabba og okkur systkinabörn- in og börn okkar. Vil ég koma á framfærri kærri þökk til Úlfars og Dísu fyrir tryggð þeirra og kærleika sýndan Páli alla tíð og heimahjúkrun Heilsugæslunnar í Garðabæ þakka ég líka þjónustu við Pál fyrir hönd okkar fjölskyldunnar. Hann Páll mun alltaf lifa með okkur. Megi hann hvíla í friði og veit ég að hann á góða heimkomu Þórunn Sigurðardóttir. Páll Jónsson ✝ Róbert JamesAbbey fæddist í Keflavík 8. júlí 1978. Hann lést á heimili sínu 2. júní 2013. Foreldrar hans eru Júlíana Péturs- dóttir og David James Abbey. Þau slitu samvistum. Fósturfaðir hans er Guðleifur Guð- mundsson. Systkini Róberts eru: Ólafur Magnússon, í sam- búð og búsettur í Svíþjóð. Hann á fimm börn. Petra Ósk Magn- úsdóttir, búsett í Bandaríkj- unum, gift Russell Kelley, þau eiga þrjú börn. David Thomas Abbey, búsettur í Bandaríkj- unum, giftur Dahna Cheryl, þau eiga einn son. Róbert var gift- ur Erlu Sigurrósu Helgadóttur, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: Daníel James, f. 22.3. 1999, Mikael Davíð, f. 14.4. 2001 og Kristófer Hans, f. 14.4. 2001. Síðar kynntist hann Odd- nýju Björnsdóttur. Fyrir átti hún þrjú börn. Sam- an eiga þau: Róbert Gabríel, f. 30.7. 2008, Aron Úlfar, f. 18.11. 2002 og Emmu Söru, f. 14.11. 2012. Útför Róberts James Abbey fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 14. júní 2013, og hefst at- höfnin kl. 13. „Nú á ég engin börn eftir á Ís- landi.“ Þetta voru orð móður þinn- ar í símanum fyrir nokkrum mín- útum. Elsku besti Róbert minn, þetta eru erfiðir tímar fyrir fjöl- skylduna. Hjartans frændi, yndis- leg manneskja, þrautseigur, gleði- gjafi og hetja. Þessa dagana erum við að hitt- ast svo mörg sem höfum ekki sést í mörg ár. Systkin þín að koma að utan, margar heimsóknir hjá Júllu frænku, bakstur, kaffiboð og margt fleira. Þetta hljómar allt voðalega skemmtilega en raunin er önnur. Þetta er sorg, einmana- leiki og vanlíðan. Ég hefði sko sannarlega viljað gera þetta allt en við aðrar aðstæður – einhverjar gleðilegri. En svona er nú lífið, maður veit aldrei hvað næsti dag- ur ber í skauti sér. Ég er svo þakklát fyrir heim- sóknina um daginn. Að þú skyldir hafa gefið þér tíma til að heim- sækja frænku. Ótrúlegar þolraunir sem þú hefur þurft að ganga í gegnum elsku frændi síðan þú fékkst heila- blæðinguna. Ég verð þér ævinlega þakklát, að þú skyldir heimsækja okkur í Háseyluna um daginn. Þú stoppaðir svo lengi og spjallaðir um svo margt. En mest talaðir þú um börnin þín, hversu yndisleg þau væru og hversu heppinn þú værir. Þú talaðir mikið um dreng- ina þína hér í Keflavík og hversu mikið þér þótti vænt um þá. Þú talaðir líka um yndislegu börnin þín fyrir norðan og leyfðir mér að kynnast þeim í huganum, með sögum af þeim og lýsingum. Á meðan á samtali okkar stóð hugs- aði ég um það hversu heppinn þú værir með allan þennan barna- fjölda, ásamt fósturbörnum. En þrátt fyrir ást þína og væntum- þykju í garð allra barnanna, þá náðu þær tilfinningar ekki að yf- irstíga vanlíðan þína. Elsku karlinn minn, það hvarfl- aði ekki að mér að þér liði svona illa, þó svo að mig grunaði nú að þú værir með einhverja grímu. Ég vildi að ég hefði getað gert eitt- hvað. Ég hafði orð á því við Ás- geir, að þú værir heimsins glaðasti og bjartsýnasti maður, þrátt fyrir allt sem þú varst búinn að ganga í gegnum. Þú grínaðist, við hlógum og höfðum gaman. Ég átti ekki til eitt aukatekið orð hvað þú leist allt svo björtum augum, þrátt fyrir veikindi þín – þvílík auðmýkt! Þú gerðir lítið úr veikindum þínum og kvartaðir aldrei – ekki eina mín- útu. Þú baðst mig um að endur- vekja minningar hjá þér frá því í æsku og segja þér frá einhverjum uppátækjum, ferðalögum eða bara einhverju sem ég mundi um þig. Elsku karlinn, maður getur ekki ímyndað sér hvað þú varst að ganga í gegnum. Ég vildi að ég hefði getað breytt einhverju. En ég fann svo sannarlega til með þér. Það er einmitt á svona stund- um sem maður finnur hversu van- máttugur maður er. Þú kvaddir mig á laugardegin- um á Facebook og sagðist elska mig. Veistu, ég elska þig líka elsku frændi. Ég vona að þú finnir sann- an frið í hjarta þínu og fyrirgefir mér að hafa ekki áttað mig á því hversu illa þér leið. Í lokin ætla ég að segja eins og ein góð vinkona mín segir svo oft: „Með ást og kærleik í hjarta“ kveð ég þig, elsku besti frændi. Þín verður sárt saknað. Megi Guð umvefja börn þín og ástvini kærleik og um- hyggju. Þín frænka, Hrefna Tómasar. Róbert James Abbey

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.