Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 14.06.2013, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013 P áll fæddist í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp. Hann var í Barna- skóla og Gagnfræða- skóla Vestmannaeyja, lauk búfræðiprófi frá Bændaskól- anum á Hólum í Hjaltadal 1951 og er með vélstjóraréttindi frá Vél- skóla Vestmannaeyja frá 1952. Páll starfrækti kúabú föður síns í Eyjum 1950-54, var verslunarmaður við fyrirtæki hans 1954-72 og var umboðsmaður Ferðaskrifstofunnar Sunnu og Ferðaskrifstofunnar Út- sýnar í Eyjum um langt árabil. Upphaf ferðaþjónustu í Eyjum Páll hóf ferðaþjónustu í Vest- mannaeyjum árið 1970. „Ég festi kaup á húsinu Heimi árið 1970 og breytti því í gistiheimili. Þá áttaði ég mig fljótlega á því að það vantaði sárlega alla þjónustu fyrir þá ferða- menn sem komu til Eyja. Ég reyndi að bæta úr þessu og fyrr en varði sinnti öll fjölskyldan ferðaþjónustu. Ferðamannastraum- urinn til Eyja jókst mjög á þessum árum, að hluta til vegna þjónustu Páll Helgason ferðamálafrömuður – 80 ára Fjórir ættliðir Frá vinstri: Karl Pálsson, Brynjar Karl Karlsson, Gunnar Atli Brynjarsson og Páll Helgason. Faðir ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum Páll á PH Víkingi Mynd eftir Sigmund, hinn stórkostlega skopteiknara Morgunblaðsins um árabil, en Páll var einmitt vinsælt viðfangsefni hans. Þróttarinn Erlingur Jack Guðmundsson fagnar 32. ára afmæl-isdegi sínum í dag. Erlingur ráðgerir að halda upp á afmæliðum helgina með því að bjóða kærustu sinni og syni í afmælis- bröns. Erlingur er önnum kafinn en auk þess að leika knattspyrnu með Þrótti, rekur hann eigið kvikmyndafyrirtæki Ogfilms og þá starfar hann einnig hjá Sagafilm. „Ég hef aldrei verið mikið afmælisbarn, það hefur einhvern veg- inn alltaf hitt þannig á að ég er á æfingum eða í leikjum í kringum afmælisdaginn og ég hef því aldrei náð að halda almennilega upp á daginn,“ svarar Erlingur þegar hann er spurður um eftirminnilega afmælisdaga. „En afmælisdagurinn í fyrra var mjög flottur, þá var maður loksins með kærustu eftir margra ára einveru og þá var svo- leiðis stjanað við mann,“ segir afmælisbarnið í gamansömum tón. Erlingur hefur menntað sig í kvikmyndafræðunum og lært bæði leikstjórn og handritagerð en segist þó kunna best við sig í fram- leiðslu. Ogfilms var stofnað fyrir rúmu ári síðan og Erlingur við- urkennir að virkilega erfitt sé að koma inn á markaðinn. „Þetta er fyrirtæki með háleit markmið og núna erum við með eina kvikmynd í fullri lengd á klippiborðinu. Svo erum við að leggja lokahönd á heimildarmynd um Örlyg Sturluson,“ segir Erlingur og tekur fram að fleiri verkefni séu í farvatninu. Erlingur Jack Guðmundsson 32 ára Kvikmyndir Þúsundþjalasmiðurinn Erlingur Jack sáttur bak við tökuvélina, en hann rekur sitt eigið framleiðslufyrirtæki Ogfilms. Sparkandi kvik- myndagerðarmaður Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Ísafjörður Guðmundur Jörgen fædd- ist 23. október kl. 18.38. Hann vó 3.010 g og var 49 cm langur. Foreldrar hans eru Martha Kristín Pálmadóttir og Sveinn Geir Arnarsson. Nýr borgari Agnes Björk Einarsdóttir hélt tom- bólu við verslun Samkaupa við Borg- arbraut á Akureyri. Hún safnaði 504 krónum og styrkti Rauða krossinn með því. Hlutavelta „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isLín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri Sími 5332220 Sendum frítt Rýmum fyrir lindesign.is 25-50% afsláttur nýjum vörum Reykjavík & Akureyri úr vefverslun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.