Morgunblaðið - 14.06.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.06.2013, Blaðsíða 6
Hreppsnefndarfundur Greint var frá ákvörðuninni um að segja Gunnólfi sveitarstjóra upp störfum frá mánaðamótum á almennum fundi hreppsnefndar Langanesbyggðar. Trúnaðarbrestur á milli Gunnólfs Lárussonar, sveitarstjóra Langanes- byggðar, og sveitarstjórnarfólks er sögð ástæða þess að honum var sagt upp störfum í gær. Hreppsnefndin hafi því ekki treyst sér til að vinna áfram með Gunnólfi út kjör- tímabilið. Þetta kom fram í máli Siggeirs Stefánssonar, oddvita sveitarstjórn- arinnar, á almennum hreppsnefnd- arfundi. Hann skýrði ekki frekar í hverju sá trúnaðarbrestur fælist. Gunnólfur, sem hættir um mán- aðamótin, lýsti yfir furðu sinni og óánægju með uppsögnina á fund- inum og taldi góðan árangur hafa náðst í málefnum Langanesbyggðar á starfstíma sínum. Hann sagðist ætla að sitja áfram sem sveitar- stjórnarmaður út kjörtímabilið. Gunnólfur hefur verið sveitarstjóri á Langanesi frá árinu 2009 en hann var áður sveitarstjóri í Dalabyggð. Gunnólfi sagt upp sem sveitarstjóra Langanesbyggðar vegna trúnaðarbrests 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Margt í þessu kemur ekki beinlínis á óvart miðað við umræðu síðustu mánuði,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og vísar til stöðu ríkissjóðs. En í gær greindi Morgunblaðið frá því að samkvæmt tölum forsætis- og fjár- málaráðherra gæti afkoma ríkis- sjóðs orðið 14 milljörðum kr. lakari á þessu ári en áætlanir gerðu ráð fyrir og 27 milljörðum verri á því næsta. Gylfi bendir á að ýmsar breyting- ar hafi verið kynntar á ríkisfjármál- um að undanförnu. „Við höfum því haft talsverðar áhyggjur af því að staða ríkissjóðs bjóði ekki upp á þau fyrirheit sem gefin voru í aðdrag- anda kosninga.“ Aðspurður hvort hann telji eitt- hvað svigrúm vera til launahækkana þegar kemur að gerð kjarasamninga í haust segir Gylfi: „Það skiptir okk- ur auðvitað máli að hægt verði að ná utan um stöðu ríkissjóðs en á end- anum er þetta alltaf spurning um viðræður og forgangsröðun stjórn- valda. Á miðvikudag kynnti ríkis- stjórnin t.a.m. lækkun á auðlinda- skatti upp á ríflega 6 milljarða á næsta ári.“ Innlend framleiðsla nauðsynleg Már Wolfgang Mixa, fjármála- fræðingur og doktorsnemi í hag- fræði, segir vanta tilfinnanlega er- lenda jafnt sem innlenda fjárfestingu hér á landi. „Við getum ekki eingöngu treyst á að hingað komi erlendir ferðamenn heldur er nauðsynlegt að hefja hér framleiðslu,“ segir Már Wolfgang og bætir við að afnám gjaldeyrishafta hljóti að vera forgangsatriði stjórn- valda. „Ég hef aldrei skilið hvernig hægt sé að halda því fram að hingað komi erlendir fjárfestar til að reisa verksmiðjur og skapa störf í þessu gjaldeyrishaftaumhverfi,“ segir Már Wolfgang. Er því að hans mati skortur á langtímastefnu í þessum efnum. Aðspurður út í stöðu og horfur í ríkisfjármálum segir Már Wolfgang ástandið viðráðanlegt og afkomu ríkissjóðs langt í frá alslæma þótt hún sé vissulega lakari en menn töldu. „Auðvitað ber að taka þessar tölur alvarlega en sé litið á stóru heildarmyndina þá gæti staðan verið mun verri en raun ber vitni,“ segir Már Wolfgang og bætir við að mestu skiptir nú að skattalækkanir komi til með að örva innlent atvinnulíf. Spurning um forgangsröðun  Mikil þörf á fjárfestingum hér á landi Morgunblaðið/Eggert Ráðherrar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynna stöðu ríkissjóðs. Óvissa hefur ríkt um samning þyrlulækna við innanríkis- og vel- ferðarráðuneytið eftir að honum var sagt upp. Ögmundur Jónasson var innanríkisráðherra þegar ákvörðunin var tekin. Hanna Birna Kristjánsdóttir, núverandi innanríkisráðherra, sagði málið í góðum farvegi. „Við erum að leita lausna til að fá niðurstöðu í þetta milli innanríkis- ráðuneytisins og velferðarráðu- neytisins. Embættismenn beggja ráðuneyta eru að vinna í þessu núna.“ Læknar hafa um áratugaskeið verið hluti af áhöfn þeirra þyrlna sem sinna leitar- og björgunar- starfi hér á landi. „Það var sam- staða í báðum ráðuneytunum um að vinna að þessu í sameiningu og fara vel yfir málið,“ segir Hanna Birna sem segir viðræðurnar að- allega snúast um kostnaðarskipt- ingu. „Ég treysti því að úr þessu verði leyst farsællega sem allra fyrst.“ aslaug@mbl.is Þyrlur Samningaferli við þyrlu- lækna er í góðum farvegi. Ráðuneytin eru að semja við þyrlulækna „Staðan í ríkisfjármálum er til- tölulega slæm því ekki hefur verið gengið nægjanlega langt í hagræðingu auk þess sem alls- konar faldar ábyrgðir eiga enn eftir að koma í ljós,“ segir Ás- geir Jónsson, lektor við hag- fræðideild Háskóla Íslands. Segir Ásgeir því afar brýnt að stuðlað verði að langtíma hag- vexti. „Lykillinn að því er að við tengjumst aftur alþjóðlegu við- skiptaumhverfi,“ segir Ásgeir og bætir við að vandinn sé hins vegar sá að þau markmið sem haldið er á lofti í stjórnmála- umræðunni séu mörg hver ósamrýmanleg. „Ef við sleppum t.d. krónunni lausri getur það leitt til lækkunar á gengi henn- ar. Hvernig fer það saman við loforð og samninga um stöð- ugan kaupmátt?“ Skort hefur hagræðingu ÓSAMRÝMANLEG MARKMIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við viljum að það sé samræmi í álagningu gjalda á þá sem nýta nátt- úruauðlindir en að þau séu ekki bara lögð á sjávarútveginn,“ sagði Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann sagði að útgerðarmönn- um kæmi hækkun sérstaks veiði- gjalds á uppsjávarfisk verulega á óvart. Gerð er tillaga um það í frum- varpi sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra um breytingar á lögum um veiðigjöld sem dreift var á Alþingi í fyrrakvöld. „Við höfum ekki séð forsendurnar fyrir því að hækka sérstaka veiði- gjaldið frá því sem það var á þessu fiskveiðiári og ekki séð útreikningana sem liggja þar að baki,“ sagði Friðrik. Hann sagði LÍÚ hafa óskað eftir að fá að sjá þá útreikninga. Þá sagði Frið- rik að veruleg óvissa væri um næstu loðnuvertíð. Friðrik sagði þörf á að endurskoða skattlagninguna alveg frá grunni. Veiðigjöld, bæði hið almenna og sér- staka, eru mjög hátt hlutfall hvort heldur er af tekjum eða hagnaði út- gerðarinnar, að hans sögn. Friðrik sagði að lengi hefði verið talað um að leggja veiðigjöld á svokallaðan „um- framhagnað“, það er hagnað sem væri umfram það sem gerðist í öðrum atvinnugreinum. Friðrik sagði að út- gerðin væri ýmist rekin með tapi eða hagnaði og langt því frá að atvinnu- greinin skilaði almennt „umfram- hagnaði“. Hann sagði að veiðigjöldin, eins og þau hafa verið innheimt og stefnt er að með nýju frumvarp, yrðu áfram lögð á útgerðir án þess að þau legðust einungis á „umframhagnað“. Þau yrðu mjög hátt hlutfall af hagnaði margra sjávarútvegsfyrirtækja. Friðrik sagði að nota ætti þorsk- ígildisstuðla (þíg) við ákvörðun veið- gjalds en þeir endurspegluðu engan veginn afkomu veiða einstakra teg- unda. Stjórnarandstaðan gagnrýnin Á vef Landssambands smábátaeig- enda segir að frumvarpið beri það glöggt með sér að vera í átt til sátta við greiðendur sérstaks veiðigjalds. Bent er á það að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir lækkun á sérstöku veiði- gjaldi vegna botnfiskveiða en hækkun vegna uppsjávarveiða. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu frumvarp sjávarútvegs- ráðherra á fundi Alþingis í gær vegna boðaðrar lækkunar veiðigjalds á sjáv- arútveginn á þessu ári og 2014. Helgi Hjörvar, Samfylkingu, sagði útgerðarmenn og efnafólk fá peninga strax en að skuldug heimili væru sett í nefnd. Katrín Jakobsdóttir, formað- ur VG, sagði að yrði veiðigjaldafrum- varpið að lögum mundu tekjur rík- issjóðs dragast saman um 3,2 milljarða á þessu ári og 6,4 á því næsta. Á sama tíma væri veiðiráðgjöf hækkuð sem næmi aukningu útflutn- ingsverðmæta upp á 14-16 milljarða. Mikilvægt að bregðast við Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði í samtali við mbl.is að nauðsyn- legt hefði verið að bregðast við. Ella hefði tekið við frumvarp sem var tæknilega ómögulegt að framfylgja og áform í því sem hefðu lagt atvinnu- greinina í rúst. „Það var mikilvægt að bregðast við og nauðsynlegt á þessu sumarþingi,“ sagði Sigurður Ingi. Hann sagði markmiðin vera að koma á skynsam- legri gjaldtöku og að tryggja ríkis- sjóði tekjur. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Strandveiðar Aron ÞH var á handfæraveiðum út af Tjörnesi í fyrradag. Í baksýn til vinstri má sjá Mánáreyjar. Útgerðarmenn vilja samræmi í sköttum  Ráðherra segir veiðigjaldafrumvarpið vera nauðsynlegt Lögreglan stöðvaði alla umferð á þjóðvegi 1 um Borgarnes í gær. Var um að ræða átak lögreglunnar í samvinnu við aðrar stofnanir er vinna að umferðaröryggi, og var ástand allra bifreiða kannað og at- hugasemd gerð ef þörf var á. Að- eins um 14 bifreiðir reyndust þurfa frekara viðhald af alls 1100. Lögreglan kannaði ástand bifreiða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.