Morgunblaðið - 14.06.2013, Síða 19
FRÉTTASKÝRING
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Á markaðsráðandi fyrirtækjum
hvíla ákveðnar skyldur til að raska
ekki samkeppni. Þannig getur ým-
iss konar háttsemi sem öðrum fyr-
irtækjum á sama markaði er heimil
reynst markaðsráðandi fyrirtækj-
um óheimil, að sögn Snorra Stef-
ánssonar, héraðsdómslögmanns hjá
Logos. „Þetta þarf að meta í hvert
og eitt sinn en nefna mætti sem
dæmi um háttsemi sem hefur verið
talin fela í sér misnotkun á mark-
aðsráðandi stöðu skaðlega undir-
verðlagningu, ósanngjarna við-
skiptaskilmála, tryggðarafslætti og
fleira,“ segir Snorri í samtali við
Morgunblaðið..
Mega ekki hindra samkeppni
Í ákvörðun sinni í máli Mylluset-
urs ehf., útgefanda Viðskiptablaðs-
ins, gegn 365 miðlum ehf., sem birt
var í síðustu viku, taldi Samkeppn-
iseftirlitið talsverðar líkur vera á
því að 365 miðlar væru markaðs-
ráðandi á markaði fyrir auglýsingar
í dagblöðum miðað við þau gögn
sem lágu fyrir í málinu. Í 4. tölulið
4. greinar samkeppnislaga er mark-
aðsráðandi staða skilgreind sem sú
staða þegar fyrirtæki hefur þann
efnahagslega styrkleika að geta
hindrað virka samkeppni á þeim
markaði sem máli skiptir og það
getur að verulegu leyti starfað án
þess að taka tillit til viðskiptavina,
keppinauta og neytenda. Rétt er þó
að taka það fram að í umræddu
máli komst Samkeppniseftirlitið að
þeirri niðurstöðu að gögnin í málinu
gæfu ekki þær vísbendingar um
brot á samkeppnislögum að tilefni
væri til að rannsaka það frekar.
Þá er þeim fyrirtækjum sem hafa
markaðsráðandi stöðu óheimilt að
misnota þá stöðu sína. Um þetta er
kveðið á í 11. grein samkeppnis-
laga. Þar segir að misnotkun geti
m.a. falist í því að beint eða óbeint
sé krafist ósanngjarns kaup- eða
söluverðs eða aðrir ósanngjarnir
viðskiptaskilmálar settir, viðskipta-
aðilum sé mismunað með ólíkum
skilmálum í sams konar viðskiptum
og samkeppnisstaða þeirra þannig
veikt, settar séu takmarkanir á
framleiðslu, markaði eða tækniþró-
un, neytendum til tjóns, nú eða að
sett sé það skilyrði fyrir gerð samn-
inga að hinir viðsemjendurnir taki á
sig viðbótarskuldbindingar sem
ekki tengjast efni samninganna,
hvorki í eðli sínu né samkvæmt við-
skiptavenju. Er þetta ákvæði sam-
keppnislaga um misnotkun á mark-
aðsráðandi stöðu hliðstætt ákvæði
54. greinar EES-samningsins.
Í sjálfu sér ekki ólöglegt
Snorri bendir á að í sjálfu sér sé
ekkert ólöglegt við það að fyrirtæki
sé í markaðsráðandi stöðu. Fyrir-
tæki í slíkri stöðu verði hinsvegar
að huga að því sérstaklega hvernig
þau haga sér á markaðnum með
hliðsjón af þessari stöðu sinni. Þá
segir hann að ekki sé viðvarandi
eftirlit með því hvort fyrirtæki séu
markaðsráðandi. „Það er fyrst og
fremst tekin afstaða til þess hvort
svo sé af hálfu Samkeppniseftirlits-
ins við rannsókn á meintum brot-
um, það er að segja hvort um sé að
ræða misnotkun á markaðsráðandi
stöðu. Þá er hafin rannsókn á því,“
segir Snorri.
Aðspurður hvort Samkeppniseft-
irlitið haldi úti lista yfir markaðs-
ráðandi fyrirtæki segir Snorri svo
ekki vera. Þá bendir hann á að
mögulegt sé að fyrirtæki teljist
markaðsráðandi á einum tíma-
punkti en teljist síðan seinna meir
ekki vera í slíkri stöðu. „Það geta
líka bæst við fyrirtæki þannig að
um sé að ræða sameiginlega mark-
aðsráðandi stöðu,“ segir Snorri og
bendir á að auðvitað verði breyt-
ingar á mörkuðum og því þurfi að
meta þetta í hvert og eitt skipti.
Í 17. gr. c. samkeppnislaga segir:
„Telji Samkeppniseftirlitið að sam-
runi hindri virka samkeppni með
því að markaðsráðandi staða eins
eða fleiri fyrirtækja verði til eða
slík staða styrkist, eða verði til þess
að samkeppni á markaði raskist að
öðru leyti með umtalsverðum hætti,
getur stofnunin ógilt samruna“. Að
sögn Snorra má ætla, vegna þess
hvernig ákvæðið er orðað, að fyr-
irtæki sem er í markaðsráðandi
stöðu yrði alla jafna ekki heimilað
að kaupa annað fyrirtæki, sem
starfar á sama markaði, skilyrðis-
laust enda yrði slíkt líklegt til að
styrkja stöðuna.
Aðspurður hvort einhverjar sér-
stakar skyldur hvíli á markaðsráð-
andi fjölmiðlafyrirtækjum, umfram
önnur fyrirtæki, segir Snorri það í
sjálfu sér ekki vera þannig. Bendir
hann á að ákvæði 62. greinar fjöl-
miðlalaga, sem veitir Samkeppnis-
eftirlitinu heimild til að grípa til að-
gerða gegn aðstæðum sem koma í
veg fyrir, takmarka eða hafa skað-
leg áhrif á fjölræði og/eða fjöl-
breytni í fjölmiðlun almenningi til
tjóns, sé óháð því hvort markaðs-
ráðandi staða sé fyrir hendi eða
ekki. Ákvæðið komi til viðbótar
ákvæðum samkeppnislaga og veiti
Samkeppniseftirlitinu auknar heim-
ildir til afskipta af starfsemi fjöl-
miðla frá því sem verið hefur.
Geta ekki hagað sér
líkt og önnur fyrirtæki
Ákveðnar skyldur hvíla á markaðsráðandi fyrirtækjum
Morgunblaðið/Heiddi
Ráðandi Í nýlegri ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins segir að líkur séu
á að 365 miðlar séu ráðandi á mark-
aði fyrir auglýsingar í dagblöðum.
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Vegurinn um Köldukinn er enn lok-
aður eftir að aurskriða féll á veginn
í síðustu viku. Gunnar Bóasson, yf-
irverkstjóri hjá Vegagerðinni á
Húsavík, á ekki von á því að veg-
urinn opnist fyrr en í seinni hluta
næstu viku. Spurður hvort það sé
vegna skemmda á veginum eða
hættu á frekari skriðum svarar
Gunnar að það sé aðallega vegna
vegarins sem sé stórskemmdur.
„Við erum nokkurn veginn búnir
að hreinsa skriðurnar af veginum
og hreinsa úr vegsárinu,“ útskýrir
Gunnar og bætir við að vegurinn sé
hreinlega horfinn á hundrað metra
kafla. Þá sé klæðningin á veginum
skemmd á enn stærri kafla, hann
ímyndi sér að klæðningin sé í raun
ónýt á allt að tvö hundruð metra
kafla.
Hættan fer minnkandi
Fjárhagstjón liggur ekki fyrir en
það hleypur á milljónum að mati
Gunnars. Áætlað er að um tvö þús-
und rúmmetra af efni þurfi í veg-
inn.
Gunnar segir að sérfræðingar frá
Ofanflóðasjóði hafi á mánudag gef-
ið leyfi til að undirbúa framkvæmd-
ir við veginn. Hætta á frekari
skriðuföllum minnki með hverjum
deginum sem þurrt sé.
Kaldakinn Nokkrar skriður hafa fallið á svæðinu undanfarið en sú stærsta
reif veginn með sér, auk þess að fara yfir á, áður en hún staðnæmdist.
Lokað í Köldukinn
fram í næstu viku
Vegurinn horfinn á 100 metra kafla
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
Sláttutraktorar
Ýmsar útfærslur
mosatætarar,
jarðvegstætarar,
laufblásarar,
kantskerar.
Garðsláttuvélar
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Úðabrúsar
1-20 ltr.
Með og án
þrýstijafnara
Einnig
Sláttuorf
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Keðjusagir
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Hekkklippur
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Þýsk gæðatæki
sem auðvelda þér
garðvinnuna
Gerðu garðverkin skemmtilegri
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Trekking
(Petrol og Khaki)
Kuldaþol -20
Fyrir líkamsstærð 190 eða 175cm
Þyngd 190/1,70 kg og 175/1,65 kg
Verð kr. 13.995,-
Tjaldasalur - verið velkomin
Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngu
tjöld
Savana Junior
(blár og rauður)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 150 cm
Þyngd 0,95 kg
VERÐ 11.995,-
Savana
(blár)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 195cm
Þyngd 1,45 kg
Verð kr. 13.995,-
Micra
(grænn og blár)
Kuldaþol -14°C
Fyrir líkamsstærð 195 eða 185cm
Þyngd 195/1,0 kg og 185/0,95 kg
Verð kr. 16.995,-
FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS