Morgunblaðið - 14.06.2013, Side 27
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega
hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun.
WWW.PAPCO.IS
FIÐURMJÚK FÍFA
UMRÆÐAN 27Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Hugleiðsla
Fyrsta laugardag í
september 2003
bauðst mér, þá búsett-
um á þeim frábæra
stað Patreksfirði, að
taka þátt í hugleiðslu
með fólki sem komið
var frá Reykjavík. Um
20 manneskjur mættu
til að taka þátt í þess-
um viðburði. Ég hafði aldrei prófað
slíkt áður, en var fullur af forvitni
og hlakkaði mikið til. Persónuleg
upplifun, meðan á hugleiðslunni
stóð, var stórkostleg. Ég man það
að þegar ég kom úr henni hugsaði
ég með mér að þetta myndi mig svo
sannarlega langa að prófa aftur. Að-
komufólkið sem leiddi þessa hug-
leiðslu kynnti sig. Þau sögðust vera
frá Ljósheimum, miðstöð fyrir
huga, líkama og sál, staðsettum í
Reykjavík. Sú sem var í fyrirsvari
fyrir Ljósheima á þessum tíma (og
er ennþá) heitir Sólbjört Guð-
mundsdóttir. Hún er annar af
tveimur stofnendum Ljósheima.
Áhugi minn var vakinn. Mér leið
strax eins og þarna væri komið eitt-
hvað sem ég hefði beðið mjög lengi
eftir.
Eina helgi í desember sama ár
fór ég á hugleiðslunámskeið í Ljós-
heimum í Reykjavík. Ég var þarna
aðeins að kynnast töfrum hugleiðsl-
unnar og fékk strax þá tillfinningu
að hún væri frábær leið til að kyrra
hugann, losna við neikvæðar hugs-
anir. Ég kláraði námskeiðið, og hélt
aftur út á land til vinnu minnar.
Ljósheimaskóli
Síðla sumars 2007 flutti ég aftur
til Reykjavíkur og eitt af því fyrsta
sem ég gerði var að skrá mig í Ljós-
heimaskólann, sem er þriggja til
fjögurra ára skóli innan Ljósheima.
Skólinn hófst í septemberbyrjun
það ár. Ég skynjaði það strax að
skólinn yrði mikil áskorun fyrir mig,
en var alltaf meðvitaður um það að
ég væri á réttum stað. Skólinn er
byggður upp á fyrirlestrum, fræðslu
og hugleiðslu. Mikil tjáningarvinna
fer fram í tímum af hálfu nemenda.
Á milli tíma er oft gert ráð fyrir
heimavinnu, sem er aldrei íþyngj-
andi. Það er illmögulegt að fjalla í
stuttu máli um það sem fram fer í
skólanum, en allt miðar það að því
að þroska nemendur andlega. Gríð-
arlega yfirgripsmikill fróðleikur og
vinna sem þroskaði mig mikið. Á 3.
og 4. ári leið mér eins og ég væri
byrjaður að „uppskera“, og yfir mig
helltist mikið þakklæti og margar
aðrar jákvæðar tilfinningar. Ég var,
í stuttu máli sagt, orðinn mjög sátt-
ur við mig.
Kundalini-jóga
Þegar ég kláraði
skólann um vorið 2011,
fór ég beint í kundalini
jóga sem var nýbyrjað
að bjóða upp á í Ljós-
heimum, Ég hafði alltaf
haldið að jóga snerist
bara um það að minnka
stirðleika í líkamanum,
en svo reyndist ekki
vera. Í kundalini jóga
er unnið á markvissan
hátt með líkamsstöður,
augnfókus, andardrátt og möntrur.
Æfingar í hverjum tíma miða að því
að styrkja eitthvað ákveðið, t.d. inn-
kirtlastarfsemina, taugakerfið,
ónæmiskerfið, hryggsúluna, mjaðm-
ir, axlir, háls, einstök líffæri lík-
amans, æðakerfið, meltinguna, til-
finningar, hugsanir o.s.frv.
Leiðbeinendur okkar tala gjarnan
um „kríu dagsins“. Kundalini jóga
hefur, eins og allt annað sem ég hef
fengist við í Ljósheimum í gegnum
árin, hjálpað mér að kyrra hugann.
Ég er stöðugt að reyna að vera
meðvitaður um það að lifa í núinu
og njóta andartaksins. Áreitið á
hverjum degi er margvíslegt hjá
okkur öllum, bæði í vinnu og einka-
lífi. Kundalini jóga er þess vegna
fyrir alla.
Endalaust ferðalag
með góðum vinum
Það er mikið um að vera í Ljós-
heimum árið um kring, fyrir utan
það sem ég hef nefnt hér að framan;
meðgöngujóga, jóga nídra, jógísk
ráðgjöf, ýmis spennandi námskeið,
gong slökun í hádeginu á mánudög-
um, tveggja tíma gong slökun eitt
fimmtudagskvöld í hverjum mánuði,
einingarblessun öll fimmtudags-
kvöld og ýmsar frábærar meðferðir.
Í verslun Ljósheima á 3. hæð að
Borgartúni 3, er margt áhugavert
til sölu, t.d. kristallar, reykelsi, spá-
spil, geisladiskar og bækur. Góður
vinur Ljósheima, Selena, kemur
þrisvar á hverju ári til að setja upp
kristallasýningu og til kennslu í
Ljósheimum. Ljósheimadagur er
svo haldinn þrisvar á ári.
Tíminn minn með vinum mínum í
Ljósheimum, sem núna spannar
tæp 10 ár, hefur verið stórkostlegt
„ferðalag“. Hlýlegt viðmót þeirra,
metnaður, kunnátta og þolinmæði
er alveg einstakt.
Ljósheimar
– góður staður
Eftir Björn Amby
Lárusson
Björn Amby Lárusson
» Áreitið á hverjum
degi er margvíslegt
hjá okkur öllum, bæði í
vinnu og einkalífi.
Höfundur er löglærður fulltrúi hjá
sýslumanninum í Reykjavík.
Undanfarnar vikur og mánuði hef-
ur fólki orðið tíðrætt um erfitt
ástand á Landspítalanum. Spít-
alinn hefur ekki farið varhluta af
efnahags-
ástandinu, eins
og alþjóð veit.
Þrátt fyrir bág-
borna stöðu hef-
ur spítalanum
tekist að halda
sig innan ramma
fjárlaganna, án
þess að skerða
þjónustuna
þannig að undan
svíði. Á röntgendeild Landspítala
er sinnt alhliða myndgreiningu
þar sem gerðar eru ómskoðanir,
teknar röntgenmyndir og tölvu-
sneiðmyndir og gerð segulómun.
Röntgendeildin gegnir mikilvægu
hlutverki í eftirliti og meðferð
skjólstæðinga Landspítalans, sér í
lagi einstaklinga með krabbamein,
en eftirlit fer fyrst og fremst fram
með tölvusneiðmyndun og segul-
ómun. Segulómun er einnig mikið
notuð í myndgreiningu tauga-
sjúkdóma og stoðkerfissjúkdóma,
sem og myndgreiningu hjá börn-
um, þar sem henni fylgir engin
jónandi geislun. Á síðari árum hef-
ur dagdeildarþjónusta og göngu-
deildarþjónusta Landspítalans
aukist og margir koma að heiman
í myndgreiningarrannsóknir og
eftirlit hjá lækni sínum í fram-
haldinu.
Nú stendur fyrir dyrum upp-
færsla á öðru af tveimur segul-
ómtækjum Landspítalans og verð-
ur því lokað síðla sumars í fjórar
vikur. Mikil ásókn er í rannsóknir
með segulómun, sem eru tímafrek-
ar, og anna þessi tvö tæki því eng-
an núna veginn að sinna skjól-
stæðingum Landspítalans. Ekki
verður unnt að sinna ein-
staklingum sem eiga að koma í
rannsókn að heiman, heldur verð-
ur fyrst og fremst lögð áhersla á
að sinna þeim sem liggja inni á
sjúkrahúsinu. Því er hætt við að
langur biðlisti muni myndast eftir
segulómrannsóknum og er bara
tímaspursmál hvenær skaði hlýst
af. Við þessu er engin skamm-
tímalausn, en fyrir hefur lengið
lengi að þriðja tækið þurfi á Land-
spítalann. Ofan á erfitt ástand
bætist svo deila stjórnenda Land-
spítalans við geislafræðinga deild-
arinnar, sem leysa þarf sem allra
fyrst. Því skorar stjórn Félags ís-
lenskra röntgenlækna á stjórn-
endur Landspítala og stjórnvöld
að ganga í það sem allra fyrst að
bæta úr þessu ástandi.
MARÍANNA
GARÐARSDÓTTIR,
röntgenlæknir á Landspítala og
formaður Félags íslenskra
röntgenlækna.
Staðan á röntgendeild Landspítalans
Frá Maríönnu Garðarsdóttur
Maríanna
Garðarsdóttir
Verslunareigendur!
Ítalskir pappírspokar
í úrvali
Eingöngu sala
til fyrirtækja
Opið 08.00 - 16.00
www.flora.is | info@flora.is | Réttarhálsi 2 | 110 Rvk | Sími: 535 8500
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Vöggusæng
ur
Vöggusett
Póstsendum