Morgunblaðið - 14.06.2013, Síða 31

Morgunblaðið - 14.06.2013, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013 Elsku frændi. Ég er orðlaus yfir andláti þínu sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Aldrei bjóst ég við því að þurfa að kveðja þig svona snemma. Ég mun minnast þín fyrir hrekkina þína, fyrir brand- arana og fyrir allar þær skemmtilegu sögur sem bæði þú og Berglind hafið sagt mér. Fyrst og fremst mun ég þó minnast þín sem hins frábæra frænda sem tók svo vel á móti mér í hvert sinn sem ég kom í heimsókn. Ég orti nokkrar línur þér til heiðurs, þín verður sárt saknað. Forhert eru forlögin, ferleg og grimm, er hrakið hafa fallega fjölskyldu af fimm. Þrjú eftir þrauka af þrótti og dyggð, þrátt fyrir brimsjó af þrotlausri hryggð. Munu þó minningar margan kæta mann, því margbrotinn, mjúkur og merkilegur var hann. Ragnar var vaskur og í vinnunni beittur. Verulega vænn og öllum vinveittur. Ragnar Heiðar Guðsteinsson ✝ Ragnar HeiðarGuðsteinsson fæddist í Reykjavík 5. október 1954. Hann var bráð- kvaddur á heimili sínu 27. maí 2013. Útför Ragnars fór fram frá Bústaðakirkju 6. júní 2013. Hann var glaður og góður og fannst gaman að grína. Gjarnan svo glettinn með grímuna sína. Hann var hugulsamur og svo hjartahlýr, hinn mesti herramaður er í hjarta okkar býr. Hans börn munu blífa með framtíð svo bjarta. Birgi, Óskari og Berglindi ég bera mun í hjarta. Ég kveð nú þann karl með tárvota kinn. Hvíldu í friði, kæri frændi minn. Þín „uppáhaldsfrænka“, Margrét Hanna. Fallinn er frá fyrir aldur fram kær og góður vinur, Ragnar Guðsteinsson húsgagnasmíða- meistari eða Raggi eins og hann var oftast kallaður. Raggi var hjálpsamur, góður og greiðvik- inn maður. Vil ég minnast hans með er- indi úr ljóðinu Minning: Sumir hverfa fljótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Hvíl í friði, elsku Raggi, og takk fyrir allt. Minning þín mun lifa. Sendi börnum þínum, systk- inum og allri fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur. Þín vinkona, Hanna Stefánsdóttir. ✝ Hilmar Frið-riksson fædd- ist í Þykkvabæ 13. september 1929. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni í Reykjavík 17. maí 2013. Foreldrar hans voru Jónína Val- gerður Sigurðar- dóttir, húsfreyja í Miðkoti í Þykkva- bæ, og maður hennar Friðrik Friðriksson, kaupmaður í Þykkvabæ. Jónína var frá Akranesi en Friðrik frá Mið- koti. Hilmar var yngstur af sex börnum í Miðkoti. Jónína átti tvö börn af fyrra hjóna- bandi, Sigurbjart Guðjónsson og Elínborgu Guðjónsdóttur. Þau Jónína og Friðrik áttu Guðjónu og Hilmar. Tvær upp- eldissystur ólust með þeim upp í Miðkoti, Ásta Sveins- Marteinn Ingi býr með Dag- rúnu og unnusti Thelmu er Garðar. Hilmar gekk í Verzlunar- skóla Íslands og útskrifaðist þaðan með verslunarpóf og starfaði við verslun föður síns í Þykkvabæ, verslun Friðriks Friðrikssonar, uns fjölskyldan flutti til Reykjavíkur árið 1965. Hann starfaði sem slökkviliðsmaður hjá slökkvi- liði Keflavíkurflugvallar en stundaði lengst af verslunar- störf og var með eigin verslun sem hann rak með eiginkonu sinni. Eftir að Hilmar hætti verslunarstörfum fékk hann leyfi til að aka leigubíl og stundaði þann akstur meðan heilsan leyfði. Hilmar var í Frímúrararegl- unni og fylgdist vel með öllum íþróttum og þá sérstaklega með KR, enda bjó hann alla tíð í Vesturbænum eftir að hann flutti til Reykjavíkur ef undan eru skilin síðustu tvö árin, en þá bjó hann á hjúkr- unarheimilinu Sóltúni. Útför Hilmars fór fram í Neskirkju í kyrrþey 3. júní 2013. dóttir og Ragn- hildur Óskars- dóttir. Hilmar kvæntist hinn 18. júlí 1953 Sigrúnu Öldu Hoffritz, f. 18.6. 1930. Börn þeirra eru þrjú: Friðjóna, Guðjón Borgar og Smári. Friðjóna á eina dóttur, Sig- rúnu Öldu Magn- úsdóttir. Maður Sigrúnar Öldu er Jens Ásgeir, börn þeirra eru María Linda og Reynir Ingi. Guðjón Borgar er giftur Kristínu Lárusdóttur. Börn þeirra eru Hilmar, Lárus og Þórunn. Unnusta Hilmars er Lára Jóhanna, þau eiga dótt- urina Móeiði Maríu. Unnusti Þórunnar er Gunnar. Smári er giftur Jóhönnu Halldóru Mar- teinsdóttur, börn þeirra eru Marteinn Ingi og Thelma. Elskulegur tengdapabbi hef- ur kvatt okkur, þreyttur en sáttur. Ég hitti Hilmar tengdapabba fyrst í apríl 1982 þegar Smári kynnti mig fyrir foreldrum sín- um í Granaskjólinu. Það var af- ar ánægjuleg kynning því tengdaforeldrar mínir og ég höfðum kynnst nokkrum árum áður þegar þau voru í einni af ferðum sínum til Kanaríeyja en þar var ég með foreldrum mín- um ung að aldri. Það þurfti því lítið að kynna mig fyrir tilvon- andi tengdaforeldrum mínum þegar við Smári byrjuðum sam- an. Þau vissu „hverra manna“ ég væri. Hilmar var skemmtilegur maður, mikill húmoristi og átti auðvelt með að sjá skemmti- legar hliðar hvers máls. Stund- irnar í kringum jólin í Leik- fangahúsinu eru ógleymanlegar. Þá stóð hann vaktina í jólaösinni ásamt Öldu og fjölskyldu sinni og öðru starfsfólki þá daga sem afgreiðslutími leyfði fyrir jólin. Hilmar var ekki lengi að kenna mér tökin í afgreiðslunni og við Smári vorum mætt í Leikfanga- húsið um leið og síðustu jóla- prófunum lauk. Þorláksmess- urnar í Leikfangahúsinu líða mér seint úr minni. Það var ein- hver ólýsanleg stemning sem myndaðist. Mikil ös og mikið af fólki á Skólavörðustígnum. Ætt- ingjar og vinir komu í heimsókn með bakkelsi og kruðerí fyrir starfsfólkið og þáðu kaffi. Hilm- ar stóð þarna í stafni og seldi fjarstýrða bíla, Barbie-dúkkur, plastmódel, Action-man-kalla, hrekkjadót og allt milli himins og jarðar. Þótt ösin væri mikil pössuðu Hilmar og Alda upp á að allir færu í mat og kaffi reglulega og næðu smáhvíld í miklum önnum. Eftir langa daga eins og Þorláksmessu var farið í Granaskjólið og afrakstur dagsins talinn á borðstofuborð- inu langt fram á nótt. Þetta var skemmtilegur tími og Hilmar var í essinu sínu. Hilmar var mikill fjölskyldu- maður og var ánægðastur þegar allir voru saman, börn, tengda- börn, barnabörn og barnabarna- börn. Þá leið honum best, með hópinn sinn hjá sér. Helst hefði hann viljað fá alla fjölskylduna í mat vikulega til að borða hrossakjöt enda þekki ég engan sem hefur eins mikið dálæti á hrossakjöti og hann hafði. Soðið hrossakjöt, hrossabjúgu, hrossa- steikur að ógleymdum skræð- unum er matur sem mun æv- inlega minna mig á tengdapabba. Hann kenndi okk- ur að borða hrossakjöt á marga vegu og njóta þess. Þetta voru sérstakar stundir í hans huga þegar fjölskyldan kom saman í hrossakjöt, rótgróin hefð í fjöl- skyldunni. Síðustu árin var Hilmar orð- inn heilsuveill og orðinn saddur lífsdaga. Hann kvaddi okkur á einum fallegasta degi þessa vors, hinn 17. maí. Þann dag teygðu sólargeislarnir sig inn um gluggann í herberginu hans í Sóltúninu að rúminu og sólin og birtan faðmaði hann og fjöl- skylduna hans síðustu stundir hans hjá okkur. Hann bjó síð- ustu tvö árin í Sóltúni og naut þar yndislegrar umönnunar starfsfólksins. Fyrir þá einstöku umönnun þakkar fjölskyldan að leiðarlokum. Hilmar var sáttur við guð og menn, búinn að skila sínu og gott betur. Hann var tilbúinn í ferðina miklu. Takk fyrir samfylgdina elsku tengdapabbi. Jóhanna. Hilmar Friðriksson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar –– Meira fyrir lesendur Minningarorð og kveðjur samferðamanna eru dýrmætur virðingarvottur sem eftirlifandi ástvinum gefst nú kostur á að búa veglega umgjörð til varðveislu um ókomin ár. Minningar er innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um hinn látna í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag. Bókina, eitt eintak eða fleiri, má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningabok. Hægt er að fá bókina senda í pósti. Nánari upplýsingar í síma 569-1100.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.