Morgunblaðið - 14.06.2013, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2013
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Stundum er eina ráðið að halda að
sér höndum og bíða færis. En hvað sem upp
kann að koma, þá skaltu muna að þú hefur
gert það upp við sjálfan þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú slærð rækilega í gegn ef þú hefur
spjallið í lágmarki og kemur þér að því sem
skiptir máli. Ekki hafa áhyggjur og ekki að
flýta þér um of.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Geta þín til þess að kafa undir yf-
irborðið og komast að sannleikanum er ein-
stök. Hún gæti knúið þig til þess að taka
áhættu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að leita þér aðstoðar ef þú
ætlar ekki að drukkna í vinnu. Hættu svo öll-
um dagdraumum og komdu þér niður á jörð-
ina.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú heldur rétt á spilunum mun þér
ganga allt í haginn jafnt á vinnustað sem
heima fyrir. Láttu ekki gamlar tuggur slá þig
út af laginu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sá andstæðingur sem þú eitt sinn
hafðir í fullu tré við kemur nú aftur endurnýj-
aður til leiks. Reyndu að blanda þér ekki í
deilurnar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þetta er lukkudagurinn þinn og þú ættir
að gefa stjórnina frá þér. Nú er ákjósanlegur
tími til að til að ryðja gömlum ágreiningi úr
vegi. Drífðu þig af stað og láttu ljós þitt skína.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert upp á þitt besta og getur
nánast samið um hvað sem er því þú færð
fólk svo auðveldlega á þitt band. Hættu
óvissunni í ástarmálum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur áhyggjur af velferð fjöl-
skyldu þinnar og annarra sem standa þér
næst. Hugsaðu fyrst um eigin þarfir, annars
hefurðu ekkert að gefa öðrum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gættu þess að bera virðingu fyrir
menningu og trú annarra, sérstaklega ef þú
ert á þeirra heimavelli. Fjármál þín eru í rétt-
um farvegi, svo hættu bara að hafa áhyggjur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu það ekki setja þig úr jafn-
vægi, þótt eitt og annað gangi á í kring um
þig. Gerðu þitt besta í stöðunni og láttu það
fréttast að þú sért tilbúinn í hvað sem er.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fiskurinn sinnir verkefnum sínum af
slíkum stíl að þeir sem eru í kringum hann
suða af ánægju. Hugsanlega finnur þú hjá þér
hvöt til þess að koma vini til hjálpar.
Gráskeggur yrkir skáhendarbraghendur á leið í frí með
konunni sem pakkar niður í töskur
á meðan:
Eiginkonan öllu niður er að pakka.
Meðan ég með þankann þekka
þarf að fá mér bjór að drekka.
Svíf ég burt í sumarfrí til sólarlanda.
Ykkur bestu óskir sendi,
ánægður með glas í hendi.
Skúli Pálsson sendir honum vega-
nesti í vísnaformi:
Láttu sólu líkamann á lengi skína,
limi þína lita brúna
og líka – þó nú væri! – frúna.
Þá Steinunn P. Hafstað:
Eiginkonu yrkir svo með ofur snilli:
„Bara yfir hana helli
hrósi fram í rauða elli.“
Og Skúli bætir við:
Í Suðurlöndum situr hann og sýpur veigar,
eftir sopann yrkir þegar
ótal vísur stórkostlegar.
Höskuldur Búi Jónsson
slær á létta strengi:
Lýsisborinn, liggur hann í löðri sínu.
Eyðir hann þar evrukrónu
aumt er flagn á nefsins trjónu.
Loks Magnús Geir
Guðmundsson:
Þarna maður þekkir kauða þorstaríkan,
bjórinn þambar býsna glaður,
bráðum verður fullur maður.
Hreinn Guðvarðarson skrifar
skemmtilega frásögn á
Boðnarmjöð:
„Á níunda áratug síðustu aldar
var Hákon Aðalsteinsson húsvörður
hjá Menntask. á Egilsstöðum.
Stundum vildi dragast hjá honum
ýmislegt lítilræði. Eitt sinn gerðu
skúringakonur (síðar nefndar ræsti-
tæknar) aðsúg að Konna og heimt-
uðu að hann lagfærði skrúbba
þeirra og sópa.
Þá orti Hákon.
Dásemd marga Drottinn skóp
dyggðinni til varnar
en gleymdi þó að setja sóp
á sumar kerlingarnar.
Þær fengu undirritaðan
til að svara.
Mikið er nú kvenna heppinn hópur.
Hjartans þakkir, áhaldanna smiður,
en Hákon væri sæmilegur sópur
svona ef að hausinn sneri niður.
Hákon var síðari hluta ævinnar
með alskegg.“
Ingólfur Ómar Ármannsson
lumar á sumarstöku:
Veröld ljómar, drungi dvín,
daga rómum langa.
Söngvar óma, sólin skín,
sumarblómin anga.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Gráskeggi og Hákoni
Í klípu
„ÉG ELSKA HNETUR. NEMA UMFRAM
PAKKNINGARNAR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA ER ANNAÐ HVORT VATNSDÆLAN
EÐA ÚTVARPIÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar örlögin kalla.
SÚPA SÚPA
SÚPA
SÚPA SÚPA
SÚPA
SÚPA
SÚPA
SÚPA
SÚPA
SÚPA
SLÚBB!
ERU ÞIÐ MEÐ
SERVÍETTUR?
SJÁÐU FALLEGU
VORBLÓMIN,
GRETTIR.
ÞAU HVÍSLA TIL
OKKAR GLEÐI-
HUGSUNUM.
VOR ERU
TRUFLANDI.Kveðjuleikur Ólafs Stefánssonarmeð íslenska landsliðinu í hand-
bolta verður á sunnudag, þegar Ís-
land mætir Rúmeníu í undankeppni
Evrópumótsins í Laugardalshöll.
Frábært framtak að gefa stuðnings-
mönnum landsliðsins kost á að
kveðja goðsögnina á heimavelli og
veita um leið einum fremsta hand-
boltamanni heims um árabil tækifæri
til að þakka fyrir sig.
x x x
Einn galli er þó á gjöf Njarðar.Landsleikurinn hefst klukkan
19.45, en á sama tíma verða þrír leik-
ir í gangi í 7. umferð Pepsi-deildar
karla í fótbolta. Þar á meðal viður-
eign stórveldanna KR og ÍA á KR-
velli. Þremur leikjum verður nýlokið,
meðal annars viðureign annarra
stórvelda, Vals og ÍBV, að Hlíðar-
enda.
x x x
Hætt er við að margir, sem vildukveðja Óla með því að mæta á
síðasta landsleik hans, verði að láta
sér nægja að senda honum hug-
skeyti. Í fyrsta lagi reynist flestum
ógerningur að vera á tveimur stöðum
á sama tíma og miðað við árstíma og
mikilvægi fótboltaleikjanna hallast
Víkverji að því að áhugamenn um
handbolta og fótbolta taki almennt
fótboltann frekar fram yfir þurfi þeir
að velja á milli á sunnudag. Þeir sem
það geta fara örugglega bæði á fót-
boltaleik og svo á landsleikinn, en
síðan verða einhverjir í sporum Vík-
verja með valkvíða og fara hvergi.
x x x
Þrátt fyrir þessi mistök með tíma-setninguna er Víkverji sann-
færður um að uppselt verður á lands-
leikinn. Í fyrsta lagi vegna þess að
þetta er leikur í stórmóti og lands-
liðið á það skilið að fá fullt hús á alla
heimaleiki. Það er ekki sjálfgefið að
vera með í úrslitakeppni stórmóta ár
eftir ár en „strákarnir okkar“ hafa
sýnt og sannað að þar eiga þeir oftar
en ekki heima. Þeir ætla að tryggja
sér sigur í riðlinum og það er næg
ástæða til þess að fylla Höllina. Í
þriðja lagi er þetta síðasta tækifærið
til þess að sjá Ólaf Stefánsson í leik
með landsliðinu. Það eitt og sér næg-
ir til að fá fullt hús. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er
nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir
ljóma þinn yfir himininn.
(Sálmarnir 8:2)